Metsala á rósavíni og viftum í rauðri hitaviðvörun

Líkur eru á að hita­met verði slegin í Bret­landi eftir helg­ina en þar hefur verið gefin út rauð veð­ur­við­vörun vegna hita í fyrsta sinn. Nú þegar er farið að hitna þar í landi og kaup­hegðun Breta tekur mið af því.

Þessi maður gekk um Westminister með viftu á öxlinni fyrr í vikunni og er því væntanlega ekki einn af þeim fjölmörgu sem hafa keypt viftur í netverslun Aldi. Sala fyrirtækisins á viftum hefur rúmlega fimmtíufaldast í aðdraganda hitabylgjunnar í Bretlandi.
Þessi maður gekk um Westminister með viftu á öxl­inni fyrr í vik­unni og er því vænt­an­lega ekki einn af þeim fjöl­mörgu sem hafa keypt viftur í net­verslun Aldi. Sala fyr­ir­tæk­is­ins á viftum hefur rúm­lega fimm­tíu­fald­ast í aðdrag­anda hita­bylgj­unnar í Bret­landi. Mynd: EPA

Sala á rósa­víni, grill­mat, viftum og ís hefur tekið kipp í vik­unni í Bret­landi en nú þegar mik­ill hiti er í veð­ur­kort­unum. Spár gera ráð fyrir að hita­met gætu verið slegin eftir helg­ina og hafa stjórn­völd gefið út rauða veð­ur­við­vörun vegna hita í fyrsta sinn. Veð­ur­við­var­anir eru í gildi fyrir mánu­dag og þriðju­dag á nær öllu Englandi og nær rauða við­vörun til stórs svæðis í mið- og vest­ur­hluta Englands, allt frá London í Suðri til Manchester og York í norðri. [links]

Svo virð­ist sem Bretar kjósi frekar að drekka rósa­vín í stað hvít- eða rauð­víns í miklum hita en sala á rósa­víni hefur auk­ist um 50 pró­sent í þess­ari viku sam­an­borið við síð­ustu viku í stærstu versl­ana­keðju lands­ins sem höndlar með vín, Majestic Wine. Versl­ana­keðjan Aldi gerir einnig ráð fyrir auk­inni sölu á rósa­víni en sala á ljós­bleiku vín­inu hefur ekki verið jafn mikil í versl­unum Aldi síð­asta árið.

Frá þessu er greint á vef the Guardian en í frétt mið­ils­ins er fjallað um hvaða áhrif hit­inn hefur haft á kaup­hegðun Breta. Til að mynda varð um 150 pró­sent sölu­aukn­ing á ís í síð­ustu viku sam­an­borið við sömu viku í fyrra.

Líkur á að hitamet verði slegin

Gert er ráð fyrir því að við­skipta­vinir versl­un­ar­keðj­unnar Tesco muni gæða sér á um níu milljón frost­pinnum í vik­unni sem er nýtt met og það sama er uppi á ten­ingnum í versl­unum Sains­bury’s. Þar er gert ráð fyrir að sala á ís muni marg­fald­ast um helg­ina en í síð­ustu viku seldi versl­un­ar­keðjan rúm­lega fimm­fald­að­ist í síð­ustu viku sam­an­borið við vik­una á undan. [adspot]

Alls kyns vörur rata í rík­ari mæli í versl­un­ar­körfur Breta vegna kom­andi hita­bylgju. Tilbúnir kok­teilar, grill­matur, sól­ar­vörn og svita­lykt­areyðir selj­ast nú sem aldrei fyrr og í net­verslun Aldi hefur sala á raf­magn­s­viftum rúm­lega fimm­tíu­fald­ast.

Í umfjöllun BBC um hita­bylgj­una er haft eftir tals­manni bresku veð­ur­stof­unnar að líkur væri á að hita­met yrðu slegin í Bret­landi. Nú væru um helm­ings­líkur á að hit­inn fari yfir 40 gráður í hita­bylgj­unni. Núver­andi hita­met í Bret­landi er frá því árið 2019 þegar 38,7 gráðu hiti mæld­ist í Cambridge.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár