Söguleg hitabylgja í uppsiglingu

Ein mesta hita­bylgja í vel yfir 250 ár er talin vera í upp­sigl­ingu í Evrópu. Alvar­leik­inn felst ekki aðeins í sögu­lega háu hita­stigi heldur því hversu lengi sá hiti mun vara.

Veðurfréttakona BBC var heldur áhyggjufull er hún flutti fréttir af hitabylgjunni.
Veð­ur­frétta­kona BBC var heldur áhyggju­full er hún flutti fréttir af hita­bylgj­unni. Mynd: Skjáskot af BBC

Hún gæti orðið lífs­hættu­leg, hita­bylgjan sem nú þegar geisar í vest­an­verðri Evrópu og á sam­kvæmt spám eftir að teygja sig víðar. Veð­ur­fræð­ingar ótt­ast að hit­inn mikli eigi eftir að ríkja næstu daga og jafn­vel vikur. Að hita­bylgjan verði jafn­vel sú mesta á þessum slóðum í tæpar þrjár aldir.

Frá því í byrjun júlí hefur hit­inn marg­sinnis náð 38 stigum í höf­uð­borgum Portú­gals og Spánar. Brenn­andi heitt hefur verið í Sevilla á Spáni á hverjum degi í meira en viku. Í síð­ustu viku náði hann 44 gráðum.

Langvarandi hitabylgja

„Við höfum áhyggjur af því að þessi hiti gæti orðið að lang­vinnri hita­bylgju á mörgum stöðum í Evrópu,“ segir Tyler Roys, veð­ur­fræð­ingur hjá banda­rísku veð­ur­frétta­stof­unni AccuWeather. Með lang­vinnri hita­bylgju er átt við að óvenju mik­ill hiti mælist í tutt­ugu daga í röð eða lengur. Hann segir hita­bylgj­una ekki verða bundna við Portúgal, Frakk­land og Spán heldur megi gera ráð fyrir að dalir Ung­verja­lands, aust­ur­hlutar Króatíu, Bosníu og Serbíu, syðstu hlutar Rúmeníu og þeir nyrstu í Búlgaríu verði fyrir barð­inu á bylgj­unni

Ein mesta hita­bylgja sem orðið hefur í Evrópu gekk yfir árið 2003. Talið er að jafn­vel 30 þús­und manns hafi lát­ist vegna hennar. Sú sem nú er í upp­sigl­ingu gæti orðið meiri – jafn­vel sú mesta í álf­unni frá árinu 1757.

[adspot]

En hvaðan kemur þessi gríð­ar­legi hiti?

Frá eyði­mörk­inni Sahara í Afríku. Þaðan streymir nú mjög heitt loft sem með degi hverjum fær­ist norðan og austar. Þess er að vænta að það nái til Belgíu, Hollands, Þýska­lands og Bret­lands yfir helgi. Hita­stigið þar hefur víða verið óvenju­hátt í sumar en talið er að mörg hita­met muni falla á allra næstu dögum.

Þótt heitt verði í London er ekki talið að öfgarnar verði þar mestar þótt spáð sé 30-35 stiga hita þar – jafn­vel alla helg­ina og fram eftir næstu viku.

Gefnar hafa verið út við­var­anir, sumar app­el­sínugular og jafn­vel rauðar, vegna þess sem koma skal. Þar er það ekki vind­hrað­inn sem ræður litnum líkt og við Íslend­ingar eigum svo vel að þekkja heldur hita­stigið. Því hærra – þeim mun dekkri verður lit­ur­inn sem not­aður er til að vara við.

Sky News segir að bresk stjórn­völd hafi rætt hvort að lýsa þurfi yfir neyð­ar­á­standi. Til að það sé gert þarf hita­bylgjan að ógna heilsu fólks, ekki aðeins þeirra sem við­kvæmir eru vegna veik­inda eða ald­urs heldur ungu og heil­brigðu fólki.

Í París má eiga von á um 38-40 stiga hita um helg­ina og fyrstu daga næstu viku. Þar er bar­átta við gróð­ur­elda hafin í suð­vest­ur­hluta lands­ins og þús­undum manna verið gert að yfir­gefa heim­ili sín vegna þeirra. Í dag er þjóð­há­tíð­ar­dagur þeirra og engar flug­elda­sýn­ingar voru á döf­inni enda gætu flug­eldar auð­veld­lega kveikt í þurrum gróðri víða.

En ástandið verður verst í Portúgal og á Spáni, ef spár ganga eftir. Í löndum þar sem þegar er mjög heitt og gróð­ur­eldar farnir að geisa vegna þurrka.

Nær hitinn á Spáni 50 stigum?

Veð­ur­fræð­ingur AccuWeather telur að í aust­ur­hluta Portúgal og í suður- og vest­ur­hluta Spánar gæti hit­inn nálg­ast það sem þekk­ist helst í Dauða­dalnum í Banda­ríkj­unum – heitasta stað ver­aldar. Þegar í dag, fimmtu­dag, gæti hita­stigið nálg­ast 50 gráð­urnar á Spáni.

Þetta gæti haft áhrif á ferða­plön fólks. Þegar hafa verið teknar ákvarð­anir um að loka nokkrum ferða­manna­stöðum í Portúgal og það sama gæti orðið uppi á ten­ingnum á Spáni og í Frakk­landi.

Vissu­lega munu loft­kældar bygg­ingar hjálpa en þess má geta að til dæmis á Ítalíu er ekki hægt að kæla niður fyrir 27 gráð­urnar. Það er gert í sparn­að­ar­skyni vegna orku­skorts sem vofir yfir Evrópu vegna stríðs­ins í Úkraínu, segir í grein Politico.

Reikna má með að hiti verði yfir með­al­tali miðað við árs­tíma víða á meg­in­landi Evrópu á næstu dögum og jafn­vel vikum.

Veð­ur­stofan hvatti Íslend­inga á far­alds­fæti að kynna sér vel veð­ur­spár á áfanga­stöðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár