Truss vill ekki að Karl konungur sæki COP27

Umhverf­is­mál hafa löngum verið Karli kon­ungi hug­leikin. Hann mun hins vegar ekki sækja lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27, í næsta mán­uði þar sem Lis Truzz for­sæt­is­ráð­herra ráð­lagði honum að fara ekki.

Karl Englandskonungur hafði áhuga á að sækja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27, í Egyptalandi í næsta mánuði. Liz Truss forsætisráðherra finnst það ekki svo góð hugmynd.
Karl Eng­lands­kon­ungur hafði áhuga á að sækja lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27, í Egypta­landi í næsta mán­uði. Liz Truss for­sæt­is­ráð­herra finnst það ekki svo góð hug­mynd. Mynd: EPA

Karl III. kon­ungur mun ekki sækja lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27, sem fram fer í Egypta­landi í nóv­em­ber.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá kon­ungs­höll­inni í kjöl­far fréttar the Sunday Times um helg­ina þar sem full­yrt er að Liz Truss, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafi „skipað“ kóng­inum að mæta ekki.

Í til­kynn­ingu kon­ungs­hall­ar­innar segir að kon­ung­ur­inn hafi leitað ráða hjá for­sæt­is­ráð­herr­anum. „Í sátt og sam­lyndi og af virð­ingu var það sam­róma sam­komu­lag að kon­ung­ur­inn mun ekki sækja ráð­stefn­una,“ segir í til­kynn­ingu hall­ar­innar.

Karl hafði lýst yfir áhuga á að sækja ráð­stefn­una áður en hann tók við krún­unni í síð­asta mán­uði við frá­fall Elísa­betar II. Eng­lands­drottn­ingar, móður hans. Kon­ung­legur frétta­rit­ari BBC telur að ráð­legg­ingar for­sæt­is­ráð­herra hljóti að valda kon­ung­inum von­brigðum þar sem hann hefur sýnt umhverf­is­málum ástríðu svo ára­tugum skiptir.

[links]COP er stytt­ing á enska heit­inu „Con­­fer­ence of the Parties“ eða ráð­­stefna aðild­­ar­­ríkja og er þar vísað til alþjóð­­legra samn­inga, ann­­ars vegar um lofts­lags­­mál og hins vegar fjöl­breytni líf­­rík­­is­ins. Sam­ein­uðu þjóð­­irnar skipu­­leggja ráð­­stefn­­urnar en þátt­tak­endur eru hátt­­settir full­­trúar ríkja, stað­bund­inna sam­­taka og frjálsra félaga­­sam­­taka. Lofts­lags­ráð­stefnan í Egypta­landi verður sú 27. í röð­inni og kall­ast því stytt­ingar og ein­föld­unar COP27.

Karl flutti ávarp á COP26 í Glasgow á síð­asta ári, þá sem prins­inn af Wales. Strax að ráð­stefn­unni lok­inni sýndi hann áhuga á að taka þátt í COP27 þar sem hann ferð­að­ist til Egypta­lands, með sam­þykki þáver­andi rík­is­stjórnar Bret­lands, og fund­aði með Abdel Fattah Al-Sisi, for­seta Egypta­lands.

Talaði um loftslagsbreytingar á meðan flestir þögðu

Karl hefur verið ötull tals­maður fyrir umhverfis- og lofts­lags­málum, löngu áður en slík mál komust í almenna umræðu. Árið 1968 tal­aði hann um lofts­lags­breyt­ingar í ræðu sinni, hug­tak sem fáir könn­uð­ust við á þeim tíma­punkti.

Þegar hann tók við krún­unni fyrir tæpum mán­uði síðan heyrð­ust raddir þær efnis að kon­ung­ur­inn myndi ekki tóna niður ástríðu sína fyrir umhverf­is­málum. En kon­ung­ur­inn þarf að fara eftir strang­ari reglum, það er, að við­halda póli­tísku hlut­leysi.

Markmið COP síð­ustu ár hefur verið að hægja á lofts­lags­breyt­ingum, einna helst með því að halda hlýnun jarðar undir 1,5 gráðum. Í loka­yf­ir­lýs­ingu ráð­stefn­unnar í fyrra var í fyrsta sinn kveðið á um að draga úr kola­notkun. Við­fangs­efni ráð­stefn­unnar í ár eru snúin, ekki síst vegna orku­krís­unnar sem ríkir vegna inn­rás Rússa í Úkraínu.

Ekki er þó úti­lokað að kon­ung­ur­inn muni koma að ráð­stefn­unni með einum eða öðrum hætti. Í Glasgow í fyrra flutti Elísabet Eng­lands­drottn­ing ávarp en í gegnum fjar­fund­ar­búnað. Ekki er úti­lokað að Karli muni gera slíkt hið sama í ár í Egypta­landi þó svo að Truss hafi meinað honum að mæta í per­sónu. COP27 hefst 8. nóv­em­ber og lýkur þann 16.

Tobias Ellwood, þing­maður Íhalds­flokks­ins, vonar að almenn skyn­semi muni ráði för og að kon­ung­inum verði leyft að sækja ráð­stefn­una. Í færslu á Twitter segir hann að kon­ung­ur­inn njóti virð­ingar um allan heim þegar kemur að umhverf­is­málum og lofts­lags­málum. „Nærvera hans mun styrkja og vald­efla bresku sendi­nefnd­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP27

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár