Stærsta vandamálið sem stigmagnar öll önnur vandamál

Krafa þró­un­ar­ríkja um fjár­hags­legan stuðn­ing þró­aðri ríkja verður í brennid­epli á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27. „Stærsta vanda­málið, sem stig­magnar öll önnur vanda­mál, eru lofts­lags­breyt­ingar,“ segir for­seti Ungra umhverf­is­sinna.

„Það verða alltaf önnur vandamál. En stærsta vandamálið, sem stigmagnar öll önnur vandamál, eru loftslagsbreytingar. Því lengur sem við bíðum með að takast á við þær, því erfiðara verður það,“ segir Tinna Hallgrímsdóttir, forseti Ungra umhverfissinna.
„Það verða alltaf önnur vanda­mál. En stærsta vanda­málið, sem stig­magnar öll önnur vanda­mál, eru lofts­lags­breyt­ingar. Því lengur sem við bíðum með að takast á við þær, því erf­ið­ara verður það,“ segir Tinna Hall­gríms­dóttir, for­seti Ungra umhverf­is­sinna. Mynd: Aðsend

Bjart­sýni og góður andi ein­kenna upp­hafs­daga lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna að mati Tinnu Hall­gríms­dóttur, for­seta Ungra umhverf­is­sinna.

Tuttug­asta og sjö­unda lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27, hófst í Sharm el-Sheikh í Egypta­landi á sunnu­dag. Þetta er í þriðja sinn sem Tinna tekur þátt í lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna og mun hún taka þátt í við­burðum og umræðum alla ráð­stefn­una, sem lýkur 18. nóv­em­ber.

[adspot]„Ég bý að góðri reynslu að hafa farið áður. En skipu­lagið er ekki með besta móti í ár. Það var ennþá verið að byggja og búa til hluti þegar við mættum, það var eins og þetta væri hálf til­búið en samt ekki,“ segir Tinna í sam­tali við Kjarnann.

Töp og tjón í brennidepli

Antonio Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði í upp­hafs­ræðu sinni á ráð­stefn­unni að heim­ur­inn væri á „hraðri leið til lofts­lags­hel­vítis“ og val­kost­irnir væru skýrir – lofts­lags­sam­komu­lag eða sam­komu­lag um dauða fjölda fólks.

„Guterres setti svo­lítið tón­inn og hann var mjög harð­orður varð­andi þennan dag­skrár­lið Töp og tjón,“ segir Tinna.

Töp og tjón (e. Loss and Damage) snýr að fjár­veit­ingum til ríkja í fram­línu lofts­lagskrepp­unnar sem þurfa að glíma dag­lega við afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga. Sam­komu­lag náð­ist í upp­hafi ráð­stefn­unnar að koma mál­efn­inu á dag­skrá, meðal ann­ars með því að ræða hvort stofna ætti sér­stakan bóta­sjóð til ríkja sem verða fyrir óbæt­an­legum skaða vegna hlýn­unar jarðar.

[links]Ljóst er að töp og tjón verða í brennid­epli í samn­inga­við­ræðum á ráð­stefn­unni, mál­efni sem Tinna hefur sér­stakan áhuga á. „Þetta eru þær afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga sem ekki er hægt að aðlag­ast. Við erum alltaf að tala um sam­drátt í losun og aðlögun, en svo er það næsta skref eða þriðji vink­ill­inn, að sumar þjóðir hafa hrein­lega ekki get­una til að aðlag­ast afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga, annað hvort vegna ónægra inn­viða­trygg­inga eða af því að lofts­lags­ham­far­irnar eru af það stórum skala,“ segir Tinna og nefnir gríð­ar­leg flóð í Pakistan í lok ágúst sem dæmi um raun­veru­leika lofts­lags­breyt­inga vegna hlýn­unar jarðar. Mestu þurrkar í fjóra ára­tugi sem geisa nú í Eþíópíu er annað, og enn nýlegra, dæmi.

„Gríð­ar­lega mik­ill skaði er að eiga sér stað – manns­líf, inn­viðir, efna­hags­legt tjón – bara nefndu það. Það var krafa þró­un­ar­landa að fá þetta form­lega sam­þykkt á dag­skrá og það náð­ist í gegn. En það skiptir miklu máli hvernig það þró­ast,“ segir Tinna, sem fagnar því að stofnun bóta­sjóðs verði rædd, en að það skipti máli að fjár­magnið í sjóðnum fari sér­stak­lega í sjóð­inn en verði ekki tekið úr öðrum fram­lögum, svo sem þeim sem verja á í að aðlag­ast áhrifum lofts­lags­breyt­inga.

Þurfum ekki enn einn samráðsvettvang

Tinna segir að það verði áhuga­vert að fylgj­ast með hvernig samn­inga­við­ræð­urnar þró­ast. „Hvort við fáum virki­lega það sem þró­un­ar­ríkin hafa verið að krefj­ast eða hvort við endum eins og síð­ast, að ná í gegn sam­ráðs­vett­vangi eða fleiri tækni­legum umræðum um það hvernig við munum mögu­lega fjár­magna þessar aðgerðir.“

Áfram­hald­andi frestun á aðgerðum er eitt­hvað sem þarf að yfir­stíga að mati Tinnu. „Við erum komin á þann punkt að þró­un­ar­löndin eru farin að kalla virki­lega mikið eftir þessu og sér­stak­lega í ár, þegar ráð­stefnan er á afrískri grundu, og nú er þetta komið form­lega á dag­skrá og það skiptir máli hvernig það mun þró­ast.“ Sam­ráðs­vett­vangur er góður sem slíkur en Tinna segir meiri þörf á beinu fjár­magni en enn einum sam­ráðs­vett­vangi.

[adspot],,Við verðum að sýna skiln­ing á þann hátt að við aðstoðum, til dæmis þessi minna þró­uðu ríki sem eru að reyna að standa við sínar skuld­bind­ingar í lofts­lags­málum, mörg hver með metn­að­ar­full mark­mið, en hafa kannski ekki til þess burði í ljósi efna­hags­legrar stöðu eða tapi og tjóni sem þau eru að verða fyrir vegna lofts­lags­breyt­inga.“

Þó fjár­magnið sé mik­il­vægt snýst aðstoðin einnig um að sýna sam­kennd og sam­hug að mati Tinnu. „Fólk er að verða fyrir hræði­legum ham­förum vegna lofts­lags­breyt­inga núna sem er sam­eig­in­legt vanda­mál. Við verðum að sýna að við erum ein heild í þessu og það er það sem ramma­samn­ing­ur­inn snýst um. En það vantar svo­lítið upp á að við sjáum þetta jafn­vægi á milli ríkj­anna.“

„Það verða alltaf önnur vandamál“

Simon Stiell tók nýverið við sem yfir­maður lofts­lags­mála hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum. Í upp­hafs­ræðu sinni sagð­ist hann ótt­ast að önnur mál væru ofar á for­gangs­lista þjóð­ar­leið­togar heims­ins. Þar ber hæst að nefna stríðið í Úkraínu og afleið­ingar þess; orku­kreppu sem hefur meðal ann­ars aukið eft­ir­spurn eftir kolum.

Tinna segir orku­krepp­una ákveðna birt­ing­ar­mynd aðgerða­leysis í lofts­lags­málum. „Ef við værum búin að byggja upp inn­viði og annað fyrir end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa fyrr værum við í minni vand­ræðum.“

Þá segir hún það ekk­ert nýtt að benda á önnur mál sem þykja mik­il­væg­ari en áhrif lofts­lags­breyt­inga hverju sinni. „COVID var notað sem ákveðin afsökun til að vera ekki að ein­blína á lofts­lags­að­gerðir, svo kemur þetta núna. Það verða alltaf önnur vanda­mál. En stærsta vanda­málið, sem stig­magnar öll önnur vanda­mál, eru lofts­lags­breyt­ingar. Því lengur sem við bíðum með að takast á við þær, því erf­ið­ara verður það.“

Vonar að sjónarmið Ungra umhverfissinna nái inn í samningaviðræður

Auk Tinnu er Egill Ö. Her­manns­son, vara­for­seti Ungra umhverf­is­sinna, full­trúi á ráð­stefn­unni. Þá er Finnur Ricart Andrason ung­menna­full­trúi Sam­ein­uðu þjóð­anna á sviði lofts­lags­mála á ráð­stefn­unni og Steffi Meisl er á vegum Háskóla Íslands. Öll sitja þau í stjórn Ungra umhverf­is­sinna. Finnur sat einnig COP26 í Glasgow á síð­asta ári.

Markmið Ungra umhverf­is­sinna á COP27 er að hafa áhrif á ákvarð­ana­töku, miðla upp­lýs­ingum heim til Íslands og mynda tengsl sem gætu nýst félag­inu og mál­staðnum. „Það sem við viljum hafa áhrif á hérna úti er til dæmis að hafa bein áhrif á íslensku sendi­nefnd­ina. Við erum að koma okkar sjón­ar­miðum inn þar sem von­andi smit­ast út í samn­inga­við­ræður,“ segir Tinna.

Félagið mun einnig kynna Sólina, verk­efni sem félagið stóð fyrir í aðdrag­anda síð­ustu Alþing­is­kosn­inga þar sem lofts­lags- og umhverf­is­stefnu stjórn­mála­flokka var gefin ein­kunn. Tinna segir það mikið til­hlökk­un­ar­efni að kynna verk­efnið.

Von er á 120 þjóð­ar­leið­togum á ráð­stefn­una og alls um 30 þús­und gestum á meðan henni stendur. Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra verður full­trúi íslenskra stjórn­valda og eini ráð­herr­ann sem sækir COP27. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, fót­brotn­aði í síð­asta mán­uði og fékk ekki leyfi læknis til að ferð­ast til Egypta­lands.

Svandís verður við­stödd seinni hluta ráð­stefn­unnar og mun hún ávarpa ráð­herra­fund á þing­inu 15. eða 16. nóv­em­ber. Einnig er gert ráð fyrir að hún taki þátt í hlið­ar­við­burðum, hring­borðsum­ræðum ráð­herra og eigi beinar við­ræður við aðra ráð­herra á þing­inu, m.a. um jökla, fjár­mögnun lofts­lags­að­gerða og fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP27

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár