Guðlaugur Þór fékk ekki leyfi læknis til að ferðast á COP27

Mat­væla­ráð­herra tekur þátt í lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27, í stað umhverf­is­ráð­herra sem stendur í for­manns­slag í Sjálf­stæð­is­flokknum. Ráð­herr­ann er fót­brot­inn og fékk ekki leyfi læknis til að ferð­ast til Egypta­lands.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, verður ekki fulltrúi stjórnvalda á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst á sunnudag, sama dag og formannskjör fer fram í Sjálfstæðisflokknum.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, verður ekki full­trúi stjórn­valda á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem hefst á sunnu­dag, sama dag og for­manns­kjör fer fram í Sjálf­stæð­is­flokknum. Mynd: Skjáskot: RÚV

Tuttug­asti og sjö­undi aðild­ar­ríkja­fundur Lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27, hefst í Sharm El-Sheikh í Egypta­landi á sunnu­dag. Sama dag fer fram for­manns­kjör á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, býður sig fram gegn Bjarna Bene­dikts­syni, sitj­andi for­manni.

Guð­laugur Þór mun ekki sækja ráð­stefn­una en Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra, fer fyrir hönd íslenskra stjórn­valda. Svandís mun ávarpa ráð­herra­fund og taka þátt í hlið­ar­við­burðum á ráð­stefn­unni.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá mat­væla­ráðu­neyt­inu stóð til að Guð­laugur Þór yrði við­staddur seinni viku lofts­lags­ráð­stefn­unnar og tæki þátt í við­burðum henni tengdri. „Ráðherra fót­brotn­aði fyrir nokkru og fær ekki leyfi læknis til að takast á hendur það ferða­lag sem ráð­stefnan krefst,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans. Guð­laugur Þór mun þó ávarpa við­burð á vegum Hring­borðs Norð­ur­slóða í gegnum streymi.

Vikan undirlögð fyrir undirbúning landsfundar

Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefst í dag. Guð­laugur Þór til­kynnti á sunnu­dag að hann myndi bjóða sig fram gegn Bjarna á lands­fund­inum.

Fram­boðið hafði legið í loft­inu í nokkra daga og spurst hafði út að menn­irnir tveir hefðu fundað undir lok síð­ustu viku til að kanna hvort önnur lausn væri á stöð­unni en for­manns­slag­ur.

Nið­ur­staðan var fram­boð og hefur vikan verið und­ir­lögð und­ir­bún­ingi þess hjá flokks­mönnum, sama hvorn þeir styðja. Þannig sótti Birgir Ármanns­son, for­seti þings­ins, til að mynda ekki þing Norð­ur­landa­ráðs sem fram fór í Helsinki í vik­unni og Bryndís Har­alds­dóttir, for­maður Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs, fór snemma heim af þing­inu.

50 þátttakendur frá Íslandi skráðir á COP27

Ísland sendir 17 full­trúa á lofts­lags­ráð­stefn­una. Sendi­nefnd­ina skipa full­trúar frá umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu, utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, mat­væla­ráðu­neyt­inu, Umhverf­is­stofnun og Orku­stofnun. Þá styrkir umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið full­trúa ung­menna til þátt­töku á fund­inum og er þetta í annað sinn sem full­trúi ung­menna er í opin­beru sendi­nefnd­inni.

Auk hinnar form­legu sendi­nefndar sækja þing­menn og full­trúar frá félaga­sam­tökum og fyr­ir­tækjum við­burði sem tengj­ast lofts­lags­ráð­stefn­unni beint eða óbeint, en um 50 þátt­tak­endur frá Íslandi eru skráð á COP27 og tengda við­burði. Áætlað er að í kringum 20 þús­und manns taki þátt í lofts­lags­ráð­stefn­unni og tengdum við­burðum í Sharm El Sheikh.

COP er stytt­ing á enska heit­inu „Con­­­fer­ence of the Parties“ eða ráð­­­stefna aðild­­­ar­­­ríkja og er þar vísað til alþjóð­­­legra samn­inga, ann­­­ars vegar um lofts­lags­­­mál og hins vegar fjöl­breytni líf­­­rík­­­is­ins. Sam­ein­uðu þjóð­­­irnar skipu­­­leggja ráð­­­stefn­­­urnar en þátt­tak­endur eru hátt­­­settir full­­­trúar ríkja, stað­bund­inna sam­­­taka og frjálsra félaga­­­sam­­­taka. Lofts­lags­ráð­stefnan í Egypta­landi verður sú 27. í röð­inni og kall­ast því stytt­ingar og ein­föld­unar COP27.

Á ráð­stefn­unni í ár mun Ísland leggja áherslu á að ekki verði vikið frá mark­miði Par­ís­ar­samn­ings­ins um að halda hlýnun jarðar frá iðn­bylt­ingu innan við 1,5 °C, en sam­kvæmt nýrri skýrslu Umhverf­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna munu núver­andi lof­orð ríkja um sam­drátt í losun ekki duga til að mark­miðið náist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP27

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár