Mestu þurrkar í fjóra áratugi – dýrin falla í hrönnum

Fyrst skrælnar gróð­ur­inn. Svo þorna vatns­bólin upp. Þá fara dýrin að falla. Fyrst gras­bít­arnir. Svo rán­dýrin. Og mann­eskjur. Hamfarir vegna þurrka eru yfir­vof­andi í aust­ur­hluta Afríku.

Hræ af fíl í Samburu nyrst í Kenía.
Hræ af fíl í Samburu nyrst í Kenía. Mynd: EPA

512 gnýir, 205 fílar, 381 sebra­hestur, 51 buffalói, 49 grevy-sebrar, teg­und sem er í útrým­ing­ar­hættu. Þessi dýr og tugir til við­bótar hafa týnt lífi í frið­löndum Austur-Afr­íku­rík­is­ins Kenía á síð­ustu mán­uðum. Hafa drep­ist úr hor eða ofþornað. Gríð­ar­legir þurrkar, þeir mestu í ára­tugi, geisa í land­inu. Búfén­aður hefur líka strá­fallið og bændur hafa keppst við að selja frá sér grind­hor­aðar skepnur sem þeir geta ekki fóðrað eða útvegað vatn. Margar þeirra hafa drep­ist á leið­inni á mark­að­inn eða dregið sinn síð­asta and­ar­drátt þegar þangað er komið.

Þegar dýrin falla er stutt í ham­farir meðal manna.

[adspot]

Í skýrslu sem þjóð­garða­stofnun Kenía sendi frá sér á föstu­dag birt­ist myrk mynd af ástand­inu. Þurrka­tímar eru tvisvar á ári í lönd­unum við mið­baug, en þegar þeir drag­ast á lang­inn, líkt og nú hefur gerst, er voð­inn vís.

Á stórum svæðum í Kenía hefur vart fallið deigur dropi úr lofti í að verða tvö ár. Þetta hefur eins og gefur að skilja áhrif á allt vist­kerfið og hrísl­ast niður fæðu­p­íramíd­ann hraðar og hraðar eftir því sem þurrk­arnir drag­ast á lang­inn.

Fyrst skrælnar gróð­ur­inn. Svo þurrkast ár og önnur vatns­ból upp. Dýrin fara að falla. Fyrst gras­bít­arnir. Svo rán­dýrin. Og mann­eskjur.

Full­orð­inn fíll drekkur um 240 lítra af vatni á dag. Þá er að finna í mörgum friðlanda Kenía og í nokkrum þeirra allra vin­sæl­ustu, m.a. Amboseli-þjóð­garð­inum, Laikipia-Samburu og Tsavo hafa þurrkað geisað mán­uðum saman. Í Kenía eru aðeins um 36 þús­und fílar. Þeim stafar orðið meiri ógn af lofts­lags­breyt­ingum en veiði­þjófum, sagði Najib Balala, fyrr­ver­andi ráð­herra umhverfis- og ferða­mála, lands­ins í við­tali við BBC í júlí.

[adspot]

Grípa þarf til neyð­ar­að­gerða svo að hor­fellir verði ekki enn útbreidd­ari, segja sam­tök sem fylgj­ast vel með gangi mála. Stjórn­völd í Kenía segj­ast þegar hafa reynt að bregð­ast við, m.a. með því að bora eftir vatni og flytja vatn á tank­bílum frá einu svæði til ann­ars.

Þurrk­arnir eru ekki bundnir við Kenía. Þeir geisa í öllum löndum hins svo­kall­aða Horns Afríku, m.a. í Sómalíu og Eþíópíu. Þar búa átján millj­ónir manna við mat­ar­skort í augna­blik­inu.

Veð­ur­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna segir þurrk­ana þá lengstu á svæð­inu í fjóra ára­tugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár