Skógareldar, þurrkar og neyðarástand í versnandi hitabylgju

Hita­bylgja gengur yfir við Mið­jarð­ar­hafið þar sem þurrkar og skóg­ar­eldar geisa, og nálg­ast nú Bret­landseyjar þar sem neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir.

Maður kælir sig niður í ítölskum gosbrunni.
Maður kælir sig niður í ítölskum gos­brunni. Mynd: EPA

Þúsundir hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín vegna skóg­ar­elda og hund­ruð lát­ist í hita­bylgj­unni sem nú gengur yfir í suð­ur­hluta Evrópu. Ástandið hefur verið hvað verst í mið-Evrópu, svo sem á Spáni og í Frakk­landi og Portúgal, þar sem skóg­ar­eldar geisa víða, auk þess sem Ítalir glíma við versta þurrk í land­inu í 70 ár. Í öllum þessum löndum hafa hita­tölur farið vel yfir 40 stig og mæld­ist mest 49 stigum í Sevilla á Spáni.

[links]Nú um helg­ina fær­ist hita­bylgjan til norð­urs og aust­urs, og hefur neyð­ar­á­standi verið lýst yfir í Bret­landi vegna rauðrar hita­við­vör­unar í fyrsta sinn. Þar er talið að hit­inn nái hámarki á mánu­dag og þriðju­dag og hafa Bretar verið hvattir til þess að und­ir­búa sig vel og vera helst ekki á ferð­inni, því búast megi við tals­verðum töfum á lest­ar­sam­göngum, en lestar munu þurfa að aka hægar en ella og ráð­gert er að eldar muni setja strik í reikn­ing­inn á ein­hverjum leiðum, auk þess sem salt­bílar hafa víða verið sendir á götur út til þess að dreifa sandi, í stað salts, í til­raun til þess að koma í veg fyrir að mal­bik bráðni í hit­anum.

Talið er að hiti í Bret­landi geti farið yfir 40 stig á sumum stöðum, þar á meðal í London. Þá má búast við því að hita­bylgjan teygi sig til Belgíu og Hollands, auk þess sem angar hennar munu hafa ein­hver áhrif í Danmörku og í Svíþjóð, þó ekki sé búist við að hiti þar fari yfir 30 stig.

Skóg­ar­eldar hafa þegar brennt stærra land­svæði í Portúgal en allt árið í fyrra, og þurrkar á Ítalíu gætu leitt til skorts á ólívu­olíu, risott­ohrís­grjónum og pasta. Vís­inda­menn vara við því að þetta sé aðeins byrj­unin og að þurrkar og öfgar í veðri eigi eftir að versna vegna lofts­lags­vár­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hitabylgja

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár