Sex sjóðandi heitar staðreyndir um hitabylgjuna

Hann er runn­inn upp, dag­ur­inn sem verður að öllum lík­indum sá lang heit­asti hingað til í sögu Bret­lands. Hann kemur í kjöl­far heit­ustu nætur sem sögur fara af. Banvæn hita­bylgja sem geisar í Evrópu afhjúpar margt – meðal ann­ars stétta­skipt­ingu.

Kæling í vatnsúða í Andalúsíu.
Kæling í vatnsúða í Andalúsíu. Mynd: EPA

Hita­bylgjan sem geisar víða í Evrópu fer í sögu­bæk­urnar. Hún hefur legið eins og mara yfir Suður- og Vestur-Evrópu en mun í dag ná norðar og austar. Til Hollands, Belgíu og Þýska­lands til dæmis. Hitamet hafa þegar verið slegin víða, sam­göngur hafa farið úr skorðum og þús­undir hekt­ara lands brunnið í skóg­ar­eldum.

Það er af mörgu að taka varð­andi þessi ósköp öll en Kjarninn valdi sex stað­reyndir sem kveikt hafa á við­vör­un­ar­bjöllum í hugum margra.

[adspot]

Heitasta nóttin – heitasti dagurinn

Hitamet hafa fallið á að minnsta kosti 188 stöðum víðs vegar um heim­inn í ár. Af þeim hafa fimm­tíu fallið und­an­farna viku. Til sam­an­burðar hafa aðeins átján kulda­met fallið á þessu ári.

Þetta ójafn­vægi er til marks um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum. „Þetta er sú hnatt­ræna hlýnun sem búast má við vegna auk­inna gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ hefur CNN eftir Gabriel Vecchi, lofts­lags­fræð­ingi og pró­fessor við Princeton-háskóla. „Þetta er nú sá veru­leiki sem við búum í.“

Hiti mæld­ist víða ekki undir 25 gráðum í Bret­landi í nótt. Þar með er hita­met að næt­ur­lagi í land­inu slegið en það eldra er frá því í ágúst árið 1990.

Klukkan 10 í morgun var hit­inn þegar kom­inn í 35 gráður í London. Í dag er spáð heitasta degi allra tíma. Og rétt eftir hádegið var hita­met lands­ins slegið er hiti mæld­ist 39,1 stig í Surrey. Gamla metið var 38,7 gráður.

En þetta var aðeins byrj­unin. Fyrst sagði veð­ur­stofan að von væri á 39 gráðum. Svo 40. Þá 41. Nú, um hádegi að íslenskum tíma, er talið að hit­inn á Bret­landseyjum geti farið í 42 gráður.

Á morgun, mið­viku­dag, er spáð þrumu­veðri og hefur breska veð­ur­stofan gefið út við­var­anir vegna þess.

Loftslagsbreytingar „drepa“

Vís­inda­menn segja að öfgar í hita jafnt sem öðrum veð­ur­fars­legum þáttum megi rekja til lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum. „Lofts­lags­breyt­ingar drepa,“ sagði Pedro Sánchez, for­sæt­is­ráð­herra Spánar í gær er hann heim­sótti þrjú svæði þar sem stjórn­lausir skóg­ar­eldar geisa. „Lofts­lags­breyt­ingar drepa fólk, þær drepa vist­kerfi og líf­breyti­leika.“

Spánn hefur orðið mjög illa úti í hita­bylgj­unni síð­ustu daga. Allt landið er nán­ast undir og hiti víða mælst yfir 40 gráðum.

Sumarið 2020 fengu breskir vís­inda­menn á bauk­inn fyrir að draga upp mynd af því hvernig veð­ur­kort fram­tíð­ar­innar kynni að líta út vegna lofts­lags­breyt­inga. Þeir birtu spá­kort fyrir 23. júlí 2050 sem margir hlógu hrein­lega að. Spákort dags­ins í dag er slá­andi líkt því sem sér­fræð­ing­arnir sögðu að gæti átt sér stað eftir tæpa þrjá ára­tugi, segir Simon Lee, lofts­lags­sér­fræð­ingur við Columbina-háskóla. „Það sem ger­ist á þriðju­dag veitir inn­sýn í það sem koma skal í fram­tíð­inni.“

Þessi þriðju­dagur er nú runn­inn upp.

Bráðnuð flugbraut og æðandi eldar

Hita­bylgjan hefur mörg and­lit. Eitt þeirra er að mal­bikið á flug­braut á Luton-flug­velli í London hrein­lega bráðn­aði. Þar fór hit­inn upp í 37 gráður í gær.

Bretar hafa verið hvattir til að halda sig heima yfir heitasta tíma dags­ins og eru varaðir við notkun almenn­ings­sam­gangna að nauð­synja­lausu. Enginn vill vera fastur í óloft­kældri neð­an­jarð­ar­lest í þessum hita. „Verið með vatn á ykkur,“ segja sam­göngu­yf­ir­völd í London. Hægt hefur verið á öllum lestum. Svona mik­ill hiti getur valdið skemmdum á alls konar bún­aði, ekki síst raf­magn­s­köplum og línum.

Tug­þús­undir hafa þurft að flýja undan skóg­ar­eldum í Frakk­landi, á Spáni og í Portúgal. Í Frakk­landi hafa tæp­lega 40 þús­und manns þurft að yfir­gefa heim­ili sín vegna elda sem loga á þremur svæðum. Tveir þeirra hafa logað í nokkra daga og sá þriðji kvikn­aði í morgun. Þykkur reykur yfir borg­inni Bordeaux í morgun. Gríð­ar­legt álag er á neyð­ar­þjón­ustu, m.a. vegna þús­unda sím­tala frá skelfdum borg­urum.

Að minnsta kosti 20 þús­und hekt­arar lands hafa brunnið í þeim sem lengur hafa logað.

Mannfall

Talið er að hita­bylgjan í Suður- og Vestur-Evrópu hafi þegar kostað yfir 1.100 manns lífið. Dagurinn í dag ógnar áfram lífi fólks, sagði í til­kynn­ingu bresku veð­ur­stof­unnar. „Ef fólk á við­kvæma ætt­ingja eða nágranna, núna er rétti tím­inn til að ganga úr skugga um að þeir séu að beita við­eig­andi aðgerðum til að fást við hit­ann,“ sagði tals­maður veð­ur­stof­unnar. „Ef spáin í dag gengur eftir gæti líf fólks verið í hættu.“

Stéttaskipting

BBC hefur beitt ýmsum aðferðum, m.a. gervi­tungla­myndum, til að kom­ast að því hverjir það eru sem eiga á hættu að verða verst úti í hita­bylgj­unni. Nið­ur­staðan er sú að fólk í fátæk­ustu hverf­unum hvort sem er á Englandi, Wales eða Skotlandi, er tvö­falt lík­legra til að búa við umtals­vert meiri hita en nágrannar þeirra. Þetta skýrist af fyr­ir­brigði sem kall­ast „urban heat island effect“ – heitar borg­areyjur – sem skýrist af því mikla magni steypu og mal­biks á afmörk­uðum svæðum sem gleypa í sig hita úr sól­ar­ljós­inu. Í hverfum efna­meira fólks eru fleiri og stærri græn svæði sem draga úr þessum áhrifum.

Þetta getur skipt gríð­ar­legu máli. Í fyrra komst BBC að því að í einu hverfi var hit­inn 5 gráðum heit­ari en mæld­ist í almenn­ings­garði skammt frá.

BBC telur að sex millj­ónir manna búi á þessum heitu borg­areyjum í Bret­landi.

Kælingin

Árið 2018 er talið að loft­kæl­ing­ar­bún­aður hvers konar hafi nýtt 10 pró­sent af allri raf­orku sem fram­leidd var í heim­inum. Þá voru Japanir og Banda­ríkja­menn langstærstu not­endur slíks bún­aðar en reikna má með að um 90 pró­sent heim­ila í Banda­ríkj­unum noti slíkt, bæði búnað sem kælir loftið (AC) eða viftur til að kæla það með hreyf­ingu. Hins vegar bjuggu aðeins um 8 pró­sent af fólki á heit­ustu svæðum jarðar við slíkan munað árið 2018.

Og núna þegar sumrin á flestum vest­ur­löndum eru aug­ljós­lega að verða heit­ari er spreng­ing í notkun á loft­kæl­ingum í upp­sigl­ingu. Talið er að eft­ir­spurn eftir raf­orku til að kæla sig eigi eftir að meira en þre­fald­ast til árs­ins 2050.

Þetta er auð­vitað víta­hringur sem þarf að brjóta. Vís­inda­menn benda á að ýmsar leiðir séu færar til að kæla hýbýli. Það megi t.d. læra af þjóðum sem búa við Mið­jarð­ar­hafið. Hanna þarf hús með þetta í huga. Svo hægt sé að koma hreyf­ingu á loftið með því að opna glugga og kom­ast í skugga.

Græn svæði í borgum gera líka mikið gagn. Þeim þarf að fjölga, ekki fækka.

Eft­ir­far­andi eru líka góð ráð:

Drekktu eitt vatns­glas auka­lega á hverjum klukku­tíma.

Bleyttu fötin þín

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hitabylgja

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár