Óttast fjölgun tilfella sortuæxla samhliða hlýnandi veðri

Sér­fræð­ingar í Bret­landi ótt­ast að til­fellum húð­krabba­meins muni fjölga sam­hliða lofts­lags­breyt­ingum og hvetja fólk til að vera vart um sig í sól­inni.

Sortuæxli myndast þegar fólk verður fyrir sólbruna og raunar þrefaldast líkurnar á að fólk þrói með sér húðkrabbamein við það eitt að sólbrenna á tveggja ára fresti.
Sortu­æxli mynd­ast þegar fólk verður fyrir sól­bruna og raunar þre­fald­ast lík­urnar á að fólk þrói með sér húð­krabba­mein við það eitt að sól­brenna á tveggja ára fresti. Mynd: EPA

Breskir læknar segja til­efni til þess að hafa sér­stakar áhyggjur af hitn­andi veðri á heilsu fólks og vara við því að lík­legt sé að til­fellum húð­krabba­meins, svo sem sortu­æxla, muni fara fjölg­andi á næstu árum vegna hækk­andi hita­stigs í tenglsum við lofts­lags­breyt­ingar.

Hita­bylgjur hafa plagað Evr­ópu­búa í sumar og fjöldi hita­meta hefur fallið. Í Bret­landi fór hiti yfir 40,2 stig í júlí og segja sér­fræð­ingar að ekki sé um ein­stakan við­burð að ræða heldur sé þetta það sem koma skal. Með hækk­andi hita breyt­ast venjur fólks og það ver meiri tíma úti við, að því er Guardian hefur eftir heil­brigð­is­sér­fræð­ingum. Þetta getur leitt til þess að til­fellum sortu­æxla, alvar­leg­ustu gerðar húð­krabba­meins, fari fjölg­andi.

Sortu­æxli mynd­ast þegar fólk verður fyrir sól­bruna og raunar þre­fald­ast lík­urnar á að fólk þrói með sér húð­krabba­mein við það eitt að sól­brenna á tveggja ára fresti. Í Bret­landi hafa dauðs­föll vegna sortu­æxla meðal karla þre­fald­ast síðan 1970. Aukning hefur einnig mælst meðal kvenna. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Krabba­meins­fé­lags Íslands var með­al­fjöldi lát­inna af völdum sortu­æxlis í húð 7 karla og 5 konur á ári á árunum 2016 til 2020.

Samkvæmt sér­fræð­ingi sem Guardian ræddi við er það ekki hit­inn sem veldur auk­inni hættu á krabba­meini heldur breytt hegðun fólks vegna hækk­andi hita­stigs. Fólk sé lík­legra til þess að eyða meiri tíma utandyra þegar hlýrra er, og ekki bara á sumrin, sem verði til þess að fólk verði fyrir meiri útfjólu­bláum geyslum árið um kring, en sólin er almennt nógu sterk til þess að brenna frá mars og fram í októ­ber ár hvert.

Til þess að forð­ast auknar líkur á húð­krabba­meini sam­hliða hlýn­andi veðri er mælt með því að halda sig frá sól­inni á milli klukkan 11 og 15, halda sig í skugga og verja sig frá sól­inni með höttum, fatn­aði, auk þess að nota sól­ar­vörn og bera hana á sig reglu­lega yfir dag­inn. Sortu­æxli geta verið lífs­hættu­leg sé ekki gripið inn í á fyrstu stigum þess og því er einkar mik­il­vægt að leita læknis um leið og grunur kemur upp um slíkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár