Regntímabil „á sterum“ – flóðin miklu forsmekkurinn af því sem koma skal

Hvers vegna hefur þriðj­ungur Pakist­ans farið á kaf í vatn? Á því eru nokkrar skýr­ingar en þær tengj­ast flestar ef ekki allar lofts­lags­breyt­ingum af manna völdum.

Vegum hefur skolað burt, bygg­ingum sömu­leiðis. Land­bún­að­ar­svæði eru ónýt og hund­ruð þús­unda manna hafa orðið inn­lyksa, Komast hvergi. Hafa misst allar sínar ver­ald­legu eigur. Og jafn­vel ást­vini.

Um þriðj­ungur Pakist­ans hefur farið á kaf í hinum for­dæma­lausu flóðum sem þar geisa. Meira en eitt þús­und manns hafa týnt lífi. Hinar árs­tíða­bundnu monsún-rign­ingar hafa verið sér­stak­lega ákafar þetta sum­arið. Það hefur rignt. Og það hefur rignt. Og það heldur áfram að rigna.

[adspot]

Lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum eru taldar stór þáttur í ham­för­unum nú. Í fyrsta lagi hefur úrkomu­á­kefðin auk­ist, sem er talin sterk vís­bend­ing um áhrif breyt­ing­anna, og í öðru lagi hafa jöklar hopað. Í Pakistan eru fjöl­margir jöklar, yfir 7.200 tals­ins, fleiri en á nokkrum stað á jarð­ríki ef frá eru talin heim­skauta­svæðin. En þar sem hita­stig er tekið að hækka vegna lofts­lags­breyt­inga hefur það áhrif á bráðnun jöklanna. Þeir hopa þegar ákoman verður minni og bráðn­unin meiri. Þegar jafn­vægi þeirra er raskað. Jök­ul­vatnið streymir því niður fjalls­hlíð­arnar og bland­ast rign­ing­ar­vatn­inu. Marg­faldar kraft þess og umfang allt. Og úrkoman sem féll áður sem snjór er lík­legri til að falla sem regn eftir því sem hita­stig hækkar.

Losa um 1 prósent gróðurhúsalofttegunda

„Í stað þess að halda mik­il­feng­leika þeirra og vernda þá fyrir kom­andi kyn­slóðir og nátt­úr­una þá erum við að horfa á þá bráðna,“ sagði Sherry Rehman, lofts­lags­ráð­herra Pakist­ans, í við­tali í vik­unni. Óttast er að Pakistan, sem vegna tak­mark­aðra inn­viða og fátæktar er meðal þeirra tíu ríkja sem eru hvað ber­skjöld­uð­ust fyrir lofts­lags­breyt­ingum, eigi eftir að þurfa að fást við meiri og tíð­ari flóð í fram­tíð­inni. Land­bún­aður er stærsta atvinnu­greinin, grein sem er háð­ari veðri og vindum en nokkur önnur. Hraðar lofts­lags­breyt­ingar gætu koll­varpað grunn­stoðum margra sam­fé­laga því tími mun þá ekki gef­ast til nauð­syn­legrar aðlög­unar.

Lofts­lags­breyt­ingar virða engin landa­mæri. Þær bitna því auð­vitað ekki ein­göngu á þeim sem menga mest. Stjórn­völd í Pakistan hafa bent á að sam­kvæmt nið­ur­stöðu Sam­ein­uðu þjóð­anna megi rekja innan við eitt pró­sent af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heim­inum til lands­ins. Þetta benda þau á til að setja hlut­ina í sam­hengi – setja í sam­hengi þann skaða sem ríkin sem menga mest eru að valda þeim sem minnsta ábyrgð á yfir­vof­andi ham­förum bera. Að þyngstu byrð­arnar af lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum legg­ist á fátæk ríki sem stóli á land­búnað og aðrar nátt­úru­auð­lindir.

Rann­sóknir sem gerðar voru á jöklunum í Himalaya-fjöll­unum á síð­asta ári, fjall­garð­inum sem m.a. liggur um Pakistan, sýnir að bráðnun er hrað­ari og meiri en áður var talið. „Nið­ur­stöður okkar sýna að ísinn tap­ast nú í jöklum Himalaya-fjall­anna á að minnsta kosti tíu sinnum meiri hraða en að með­al­tali síð­ustu hund­rað ár,“ var haft eftir Jonathan Carrivick, aðal­höf­undi rann­sókn­ar­innar, er hún kom út.

Aðstæður í Pakistan eru með þeim hætti að fari saman árs­tíða­bundnar rign­ingar og þessi mikla bráðnun er voð­inn vís. Og það er einmitt það sem hefur sýnt sig síð­ustu daga. Ástæðan fyrir því að monsún-rign­ingar verða ákaf­ari með auknum áhrifum lofts­lags­breyt­inga er sú að heit­ara loft getur haldið í sér meiri raka sem svo fellur til jarðar við ákveðnar aðstæður í loft­hjúpnum.

En fleira kemur til, segir í ítar­legri frétta­skýr­ingu banda­ríska frétta­mið­ils­ins VOX um málið.

[adspot]

Í fjöll­unum í Pakistan eru jök­ul­lón. Jöklar og ísjakar mynda í þeim stíflur en þegar vatnið í þeim eykst mynd­ast meiri þrýst­ingur á stífl­urnar og þær bresta. Þetta, til við­bótar við það sem á undan er talið, getur aukið hætt­una á skyndi­flóðum á lág­lendi.

Hættan varð ber­sýni­leg í apríl sem var óvenju­lega heitur í land­inu. Þá brast stífla við lón vegna hraðrar bráðn­unar jök­uls­ins og vatnið flæddi yfir þorp og hreif með sér brýr. Á þessum slóðum, í norð­an­verðu land­inu, eru hund­ruð jök­ul­lóna sem vís­inda­menn segja að fyllist nú fyrr með hverju árinu sem líði. Vís­inda­menn segja mikla hættu á því að stíflur í 33 þeirra bresti sem hefði ófyr­ir­séðar afleið­ingar í för með sér.

Aðlögun nauðsynleg

Úr því sem komið er, vilja margir vís­inda­menn meina, verður ekki hægt að snúa þess­ari þróun við, jafn­vel þótt háleit mark­mið um að halda hlýnun innan 1,5 gráða, náist. Vissu­lega er hægt að draga úr hraða breyt­ing­anna, að því er talið er, en jökl­arnir í Pakistan munu halda áfram að rýrna. Þess vegna þarf að horfa til aðlög­unar, að ríki fari í aðgerðir sem miða að því að verj­ast áhrif­unum sem lík­lega verða ekki umflúin úr þessu.

Áratugur er síðan að efna­meiri ríki hétu því að veita þeim efna­minni fjár­stuðn­ing í þessu skyni. Stjórn­völd í Pakistan krefj­ast þess nú að þau lof­orð verði upp­fyllt að fullu. „Þró­un­ar­ríki sem eru ekki ábyrg fyrir meiri­hluta los­unar, þurfa of oft að fást við mestu afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga,“ segir Aamir Khan, sendi­herra Pakist­ans gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum. „Við­ur­kenna verður þær áskor­anir sem þró­un­ar­ríki standa frammi fyrir núna vegna lofts­lags­breyt­inga.“

Bæj­ar­búar í Nowshera í norð­ur­hluta Pakistan hafa notað slöngur úr bíldekkjum eins og björg­un­ar­hringi til að halda sér á floti og kom­ast um gruggugt vatnið sem flæddi um götur og inn í hvert ein­asta hús og eyði­lagði flest sem fyrir varð. Óttast er að far­sóttir taki við af flóð­unum enda mikil hætta á alls konar mengun í vatn­inu.

Settar hafa verið upp tjald­búðir fyrir hund­ruð manna sem hafa misst allt sitt. Aðrir reyna að hafa auga með húsum sínum, eða það sem eftir er af þeim, þótt enn sé tölu­vert í að hægt sé að dvelja í þeim.

Bíða þarf eftir því að vatnið sjatni. Að ekki þurfi að vaða upp að hnjám eða mitti í eld­hús­inu eða svefn­her­bergj­unum. Fólk í mörgum þorpum hefur ekki kom­ist heim til sín í fleiri daga og jafn­vel vikur. Það þakkar fyrir að vera á lífi en ótt­ast hungur og algjört tekju­fall þar sem upp­skerur eru ónýtar og skepnur drukkn­aðar.

Monsún-rign­ing­arnar eru oft gríð­ar­lega á þessum slóðum. En fólk man ekki eftir öðru eins. Úrkoman hefur verið marg­falt meiri en í með­al­ári á sumum svæðum. „Monsún-rign­ing á sterum“, sagði António Gutt­erres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, á þriðju­dag. Heims­byggðin væri að „ganga í svefni“, beint inn í „hrun umhverf­is­ins“.

Víða hefur stytt upp. En á öðrum svæðum fer ástandið versn­andi. Hlaup eru hafin í jök­ulám sem ná munu byggð innan skamms.

Eyði­legg­ingin og mann­fallið gæti því enn átt eftir að aukast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár