Raunverulegur árangur eða „bla, bla, bla“?

Markmið lofts­lags­sam­komu­lags­ins sem náð­ist á COP26 í Glasgow miðar að því að hægja á lofts­lags­breyt­ingum. Óljóst er hins vegar hvort eig­in­legt mark­mið náist, að halda hlýnun jarðar undir 1,5 gráðum.

26. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lauk í gær. Í fyrsta sinn er kveðið á um að draga úr notkun kola í lokayfirlýsingu ráðstefnunnar.
26. lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna lauk í gær. Í fyrsta sinn er kveðið á um að draga úr notkun kola í loka­yf­ir­lýs­ingu ráð­stefn­unnar. Mynd: EPA

Lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP26, lauk í Glasgow í gær, degi á eftir áætlun, þegar leið­togar hátt í 200 ríkja heims sam­þykktu loka­út­gáfu yfir­lýs­ingar um aðgerðir í lofts­lags­málum. Lofts­lags­ráð­stefnan var sú 26. í röð­inni og þetta er í fyrsta sinn sem skýrt er kveðið á um að draga úr kola­notkun. Orðalagi varð­andi kola­á­kvæðið var hins vegar breytt í loka­út­gáfu sam­komu­lags­ins og hefur það varpað skugga á nið­ur­stöðu ráð­stefn­unnar.

Kína og Indland þurfa að útskýra mál sitt

Ekkert jarð­efna­elds­neyti veldur jafn mik­illi losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og kol. Í loka­drögum sam­komu­lags­ins sagði að „horfið yrði frá“ notkun kola sem elds­neytis. Í loka­út­gáfu sam­komu­lags­ins stendur hins vegar að „dregið verði úr“ notkun kola. Kín­verjar og Ind­verjar þrýstu mest á orða­lags­breyt­ing­una og höfðu að lokum erindi sem erf­iði. Alok Sharma, for­seti lofts­lags­ráð­stefn­unn­ar, segir nið­ur­stöðu ráð­stefn­unnar „brot­hættan sigur“ og að hans mati skulda Kína og Indlandríkjum sem við­kvæm eru fyrir lofts­lags­breyt­ingum útskýr­ingu á áhersl­unni sem ríkin lögðu á breyt­ingu orða­lags um kola­notkun.

[links]Sharma hét því við upp­haf ráð­stefn­unnar fyrir um tveimur vikum að Glas­gow myndi upp­fylla það sem lofað var í Par­ís. „COP26 er okkar síð­asta, far­sælasta von til að vera innan 1,5 gráðu markanna,“ sagði Sharma í setn­ing­ar­ræðu sinni í Glas­gow. Sharma var með grát­staf­ina í kverk­unum við lok ráð­stefn­unnar í gær þegar hann baðst afsök­unar á fram­þróun mála. Hann sagð­ist skilja von­brigðin en að hans mati var breyt­ing á orða­lagi um kol nauð­syn­leg til að vernda önnur ákvæði samn­ings­ins. Það sem skipti máli er, að hans mati, að yfir­lýs­ingin tryggir að hægt verði að halda hlýnun jarðar undir 1,5 gráðum.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra tók í sama streng í Silfrinu í dag. „Ríki heims eru að standa við mark­miðið um að hlýnun jarðar auk­ist ekki meira en um 1,5 gráður. Ef að við náum því ekki þá erum við að sjá gríð­ar­lega miklar breyt­ingar á vist­kerfum jarð­ar­innar.“ Guð­mundur Ingi fagn­aði sam­komu­lag­inu í færslu á Facebook í gær. „Ég hefði samt viljað sjá ríki heims setja fram metn­að­ar­fyllri lands­mark­mið um sam­drátt í losun til að tryggja fram­tíð jarð­ar­innar okkar. Ég hefði líka viljað sjá ríki heims ná að tryggja að fullu 100 millj­arða lof­orðið til þró­un­ar­ríkja, en það vantar víst ekki mikið upp á,“ segir í færslu Guð­mundar.

Pólitískur vilji ekki til staðar

Megin áfang­arnir sem náð­ust á ráð­stefn­unni fel­ast í að hægja á lofts­lags­breyt­ingum, það er með því að draga úr notkun kola, að horfa aftur til áætl­ana sem snúa að minnkun útblást­urs og aukin fjár­hags­leg aðstoð til þró­un­ar­ríkja.

Leið­togar þró­un­ar­ríkja eru einna helst óánægðir með nið­ur­stöðu ráð­stefn­unnar og hafa kallað eftir auk­inni fjár­hags­að­stoð sem bygg­ist á þeirri kröfu að efna­meiri ríki veiti fátæk­ari ríkjum fjár­hags­að­stoð til að bregð­ast við lofts­lags­breyt­ingum sem krefj­ast auk­inna fjár­út­láta sem ríkin geta ekki sjálf staðið fyrir. Óánægjan snýst einna helst að því að í sam­komu­lag­inu sem sam­þykkt var í gær var horfið frá því orða­lagi að tvö­falda fjár­magn til þró­un­ar­ríkja til að berj­ast við lofts­lags­breyt­ingar. Í stað­inn á að „auka fjár­fram­lögin“.

Antonio Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, fagn­aði sam­komu­lag­inu en segir heims­byggð­ina enn vera á barmi lofts­lags­ham­fara. Hann gagn­rýndi einnig að á ráð­stefn­unni reynd­ist ekki vera póli­tískur vilji til að stíga þau skref sem nauð­syn­leg eru í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar.

Greta Thunberg er meðal þeirra sem gagn­rýna nið­ur­stöðu ráð­stefn­unnar og birti hún stutta sam­an­tekt á Facebook í gær: „Bla, bla, bla.“ Thunberg hyggst þó halda bar­átt­unni ótrauð áfram. „Hið raun­veru­lega starf heldur áfram utan þess­ara fund­ar­sala. Og við munum aldrei nokkurn tím­ann gef­ast upp,“ sagði Thunberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP26

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár