Síðasta farsæla vonin til að ná markmiðum í loftslagsmálum

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP26, var sett í Glasgow í morgun. „COP26 er okkar síð­asta, far­sælasta von til að vera innan 1,5 gráðu markanna,“ segir Alok Sharma, for­seti lofts­lags­ráð­stefn­unnar.

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna var sett í Glasgow í morgun.
Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna var sett í Glasgow í morgun. Mynd: EPA

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP26, var sett í rign­ing­unni í Glasgow í morgun, ári á eftir áætlun vegna heims­far­ald­urs. Lítið annað en setn­ing og mót­tökur eru á dag­skránni í dag en á morgun hefj­ast samn­inga­við­ræður tæp­lega 200 leið­toga heims­ins. Þá er búist við að yfir 25 þús­und manns sæki ráð­stefn­una á meðan henni stendur næstu tvær vik­urnar.

Alok Sharma, breskur ráð­herra og for­seti lofts­lags­ráð­stefn­unnar, heitir því að Glasgow muni koma til skila því sem lofað var í París. „COP26 er okkar síð­asta, far­sælasta von til að vera innan 1,5 gráðu markanna,“ sagði Sharma í setn­ing­ar­ræðu sinni í Glasgow.

COP er stytt­ing á enska heit­inu „Con­fer­ence of the Parties“ eða ráð­stefna aðild­ar­ríkja og er þar vísað til alþjóð­legra samn­inga, ann­ars vegar um lofts­lags­mál og hins vegar fjöl­breytni líf­rík­is­ins. Sam­ein­uðu þjóð­irnar skipu­leggja ráð­stefn­urnar en þátt­tak­endur eru hátt­settir full­trúar ríkja, stað­bund­inna sam­taka og frjálsra félaga­sam­taka. Lofts­lags­ráð­stefnan í París var sú 21. í röð­inni og var því kölluð COP21 og sú sem hófst í Glas­gow í morgun númer 26 og kall­ast því til stytt­ingar og ein­föld­unar COP26.

[links]Helsta mark­mið COP26 snýr að mik­il­vægi þess að hlýnun jarðar fari ekki yfir 1,5 gráður, við­mið sem sett var á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París fyrir sex árum. Þátt­töku­ríki ráð­stefn­unnar þurfa hvert og eitt að gera grein fyrir aðgerð­ar­á­ætl­unum sínum til árs­ins 2030 þegar kemur að minnkun kolefn­is­út­blást­urs. Samkvæmt grein­ingu umhverf­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna á aðgerð­unum, form­legum og óform­legum, munu þær hins vegar duga skammt þar sem hlýnun jarðar við lok þess­arar aldar verður 2,7 gráður með þessu áfram­haldi sem mun leiða til „lofts­lags­legs stór­slyss“.

Ísland mun eiga sína full­trúa á ráð­stefn­unni, meðal ann­ars Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Guðmund Inga Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra. Íslensk stjórn­völd skil­uðu skýrslu sinni um lang­tíma­á­ætlun í loft­lags­málum til Lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna (UN­FCCC) á fimmtu­dag. Í skýrsl­unni er að finna sam­an­tekt um þegar yfir­lýst mark­mið Íslands í lofts­lags­málum og þá hluti sem stjórn­völd hafa verið að vinna að und­an­farin ár.

Kast­ljósið bein­ist óneit­an­lega að helstu iðn­ríkjum heims þar sem nærri 80% kolefn­is­út­blást­urs kemur frá 20 stærstu iðn­ríkjum heims­ins. Leið­togar þeirra eru einmitt sam­an­komnir á ráð­stefnu í Róm. Í morgun komust þau að sam­komu­lagi um mik­il­vægi þess að hlýnun jarðar fari ekki yfir 1,5 gráður. Í sam­komu­lag­inu er hins vegar ekk­ert kveðið á um skýr lof­orð um kolefn­is­hlut­leysi árið 2050. Leið­tog­arnir halda nú til Glasgow þar sem form­legar við­ræður hefj­ast á morgun.

Greta Thunberg og fleiri aðgerðasinnar sækja Glasgow heim

Aðgerða­sinnar í lofts­lags­málum hafa einnig lagt leið sína til Glasgow. Um 130 voru sam­an­komnir þegar ráð­stefnan var sett í morgun. „Ég er hér af því að ég vil að stjórn­mála­menn geri meira til að koma í veg fyrir lofts­lags­breyt­ingar og ég vona að COP leiði til kerf­is­breyt­inga,“ segir Allan MacIntyre, lofts­lags­að­gerðasinni.

Sænski lofts­lags­að­gerðasinn­inn Greta Thunberg er einnig mætt til Glasgow en hún segir heims­byggð­ina enn vera á rangri leið í lofts­lags­málum. „Ef við beinum sjónum okkar frá því að finna smugur og afsak­anir til að taka ekki þátt, sem ég tel að sé raunin núna, og ein­beitum okkur að því að takast á við lofts­lags­vána í raun og veru, þá fyrst getum við náð fram stór­tækum breyt­inum,“ segir Thunberg.

„Við getum alltaf komið í veg fyrir að hlut­irnir verði verri. Það er aldrei of seint að gera allt sem við getum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP26

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár