1,9°?

Sam­an­lögð fyr­ir­heit ríkja heims um sam­drátt í losun hafa í fyrsta sinn, sam­kvæmt vís­inda­mönnum frá Ástralíu, meira en helm­ings líkur á því að hemja hlýnun jarðar við 2° fyrir lok aldar. Ef þeim verður öllum fram­fylgt.

Á meðal nýrra fyrirheita sem sett hafa verið fram á ráðstefnunni í Glasgow er markmið Indlands um kolefnishlutleysi árið 2070. Þaðan er myndin.
Á meðal nýrra fyr­ir­heita sem sett hafa verið fram á ráð­stefn­unni í Glasgow er mark­mið Indlands um kolefn­is­hlut­leysi árið 2070. Þaðan er myndin. Mynd: EPA

Þjóð­ar­leið­tog­arnir sem söfn­uð­ust saman á Glasgow á fyrstu dögum Cop26-ráð­stefn­unnar eru nú flestir á bak og burt, en þau fyr­ir­heit sem gefin hafa verið um aðgerðir í lofts­lags­málum standa eftir. Verði þau öll upp­fyllt, gæti það leitt til þess að hlýnun jarðar hald­ist innan við tvær gráður fyrir lok ald­ar­innar.

Það segja hið minnsta lofts­lags­vís­inda­menn við Melbourne-háskóla í Ástralíu, sem hafa rennt nýjasta lof­orða­flaumi leið­tog­anna inn í líkan sitt og fengið út þá nið­ur­stöðu að ef allt gangi full­kom­lega eftir sem sett hafi verið fram nú þegar séu meira en 50 pró­sent líkur á að hlýnun jarðar frá upp­hafi iðn­bylt­ingar og fram að næstu alda­mótum fari ekki yfir 2°.

Ný fyrirheit sveigja kúrfuna

Lang­tíma­mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi, fyrir árið 2070 frá Indlandi og fyrir árið 2060 frá Kína, eru í stöðu­skýrslu vís­inda­mann­anna sögð hafa haft mikil áhrif á þær nið­ur­stöður sem líkanið sýnir fram á. Auk þess hafi ell­efu ríki upp­fært mark­mið sín um sam­drátt í losun (NDCs) frá 18. októ­ber, er vís­inda­menn­irnir keyrðu spálíkanið í síð­asta skipti fyrir ráð­stefn­una í Glasgow.

Lofts­lags­vís­inda­menn­irnir segja að þetta sé „sögu­legt augna­blik,“ enda sé þetta í fyrsta skipti sem fyr­ir­heit 194 ríkja hafi meira en helm­ings­líkur á að halda hlýnun jarðar innan við tvær gráður við loka ald­ar­innar.

[adspot]

Það eru þó enn 37 pró­sent líkur á að það mark­mið náist ekki og með­al­hita­stig muni hafa hækkað um meira en tvær gráður fyrir lok aldar – og það þrátt fyrir að öll fyr­ir­heit yrðu upp­fyllt að fullu og gangi eftir eins og vonir standa til.

Þetta er þó skárri staða en var sett fram í skýrslu frá Sam­ein­uðu þjóð­unum, UNEP Gap Report, sem birt­ist í síð­asta mán­uði. Þar var gert ráð fyrir því að núver­andi fyr­ir­heit ríkja um sam­drátt í losun myndu setja jörð­ina á braut í átt að 2,7° hlýnun við lok ald­ar­innar.

Í skýrslu sinni um þessar nið­ur­stöður segja vís­inda­menn­irnir að enn sé langur vegur í átt að því, sem er mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins, að hlýnun jarðar verði hamin við 1,5°. Til þess hafi ekki nægi­lega háleit mark­mið verið sett fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP26

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár