Hvað koma ríkin sem losa mest með að borðinu?

Kína, Banda­ríkin, ríki Evr­ópu­sam­bands­ins og Indland eru sam­an­lagt ábyrg fyrir rúmum helm­ingi árlegrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Hvaða fyr­ir­heit hafa þau ríki sem mest losa sett fram um að minnka losun til fram­tíðar?

Kínverskur verkamaður fyrir framan vindmyllu. Í Kína og mun víðar um heiminn þarf að lyfta grettistaki í orkuskiptum ef ekki á illa að fara.
Kín­verskur verka­maður fyrir framan vind­myllu. Í Kína og mun víðar um heim­inn þarf að lyfta grettistaki í orku­skiptum ef ekki á illa að fara. Mynd: EPA

Þau níu ríki heims sem losa mest af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum, auk ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins, eru sam­an­lagt ábyrg fyrir rúm­lega tveimur þriðju af allri losun á heims­vísu. Sam­an­lagt stafar rúmur helm­ingur allrar árlegrar los­unar frá brennslu jarð­efna­elds­neytis og iðn­aði frá Banda­ríkj­unum, Kína, ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins og Indlandi.

Afgang­ur­inn af heim­inum horfir því ef til vill eðli­lega til þess­ara ríkja, mestu los­un­ar­vald­anna, þegar það liggur ljóst fyrir að ríki heims þurfa í sam­ein­ingu að draga afar skarpt úr losun til þess að halda hlýnun jarðar innan ein­hverra ásætt­an­legra marka. Samkvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu er mark­miðið að halda hlýnun jarðar vel innan við 2° út þessa öld og að stefnt skuli að því að halda henni innan við 1,5° og nú sitja full­trúar ríkja heims á Cop26-ráð­stefn­unni í Glasgow og horfast í augu við hvernig það gangi að ná mark­mið­unum.

Færa má rök fyrir því að þau mark­mið sem stefnt var að virð­ist óra­fjarri. Í nýlegri úttekt Sam­ein­uðu þjóð­anna á fram­settum mark­miðum ríkja heims fram til árs­ins 2030 segir að fram­sett mark­mið – að því gefnu að öll kom­ist til fram­kvæmda – setji heim­inn ein­ungis á þá braut að hlýnun jarðar nemi 2,7°C árið 2100.

En hvað hafa stærstu los­un­ar­vald­arnir boðað nú þegar? Þetta var dregið saman í yfir­ferð New York Times, sem byggir á gögnum frá Climate Action Tracker, sjálf­stæðum grein­ing­ar­að­ila sem rýnir yfir­lýs­ingar og stefnu­mark­andi ákvarð­anir margra helstu ríkja heims og leggur mat á hvort efndir séu að fylgja orðum er kemur að lofts­lags­málum.

Indland stefnir að kolefnishlutleysi 2070

Frá stjórn­völdum í Indlandi höfðu ekki komið fram nein tíma­sett mark­mið um hvenær landið hygð­ist ná ákveðnum áföngum í loft­lags­málum – fyrr en á ráð­stefn­unni í Glasgow í gær. Narendra Modi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins setti þar í ræðu sinni fram mark­mið um að Indland yrði kolefn­is­hlut­laust árið 2070 og að ríkið myndi árið 2030 fram­leiða yfir helm­ing af raf­magn­inu sem ríkið þarf með öðrum orku­gjöfum en jarð­efna­elds­neyti.

Enn er þó ansi langt í að Indland byrji að draga úr losun sinni, enda er efna­hagur rík­is­ins að þró­ast ört og búast má við því að orku­þörf vaxi þar hratt á næstu árum. Losunin á hvert manns­barn í Indlandi er í dag ein­ungis um fjórð­ungur los­un­ar­innar á mann í Kína og einn sjö­undi hluti los­unar á hvern Banda­ríkja­mann.

Ind­verskir ráða­menn hafa á umliðnum miss­erum biðlað til auð­ugri ríkja um stuðn­ing til fátæk­ari ríkja um aðgerðir í lofts­lags­málum og Modi minnti á það ræðu sinni í gær að þrátt fyrir að Ind­verjar væru 17 pró­sent jarð­ar­búa bæru þeir ein­ungis ábyrgð á um 5 pró­sentum af þeirri losun sem hefði leitt til hlýn­unar jarðar.

Kína færir ekkert nýtt fram og stefnir á kolefnishlutleysi 2060

Kína, sem losar mest allra ríkja um þessar mundir, eða nær 14 gígatonn (millj­arða tonna) koltví­sýr­ings á ári, hefur lýst því yfir að toppnum í losun rík­is­ins verði náð ein­hvern­tím­ann fyrir árið 2030 og að stefnt sé að kolefn­is­hlut­leysi árið 2060.

[adspot]

Í aðdrag­anda COP26 í Glasgow höfðu kín­versk stjórn­völd verið hvött til þess að setja fram metn­að­ar­fyllri skamm­tíma­mark­mið, en í stefnu sem gefin var út í síð­ustu viku komu ekki fram nein fyr­ir­heit umfram þau sem Xi Jinping for­seti lands­ins hafði áður lýst yfir.

Xi Jinping sækir ekki ráð­stefn­una í Glasgow heim. Þess í stað sendi hann frá sér skrif­legt ávarp, þar sem meðal ann­ars hann kallar eftir því að rík­ari lönd heims hjálpi þeim fátæk­ari að gera betur í að takast á við lofts­lags­vánna.

Markmið ekki í hendi í Bandaríkjunum – fastsettari í ESB

Bæði Banda­ríkin og Evr­ópu­sam­bandið hafa lýst því yfir að þau ætli sér að draga nokkuð mark­vert úr losun fyrir árið 2030. Banda­ríkin, sem í dag losa um 6 gígatonn koltví­sýr­ings árlega, ætla sér að vera búin að draga úr losun um 50-52 pró­sent árið 2030 miðað við árið 2005.

Ríki ESB, sem sam­an­lagt losa rúm­lega 3 gígatonn koltví­sýr­ings árlega, hafa svo lýst því yfir að sam­eig­in­lega verði dregið úr losun um að minnsta kosti 55 pró­sent fyrir árið 2030 miðað við árið 1990. Ísland er sem kunn­ugt er, auk Noregs, í sam­floti með Evr­ópu­sam­band­inu um þetta sam­eig­in­lega mark­mið.

Samkvæmt grein­ingum á Climate Action Tracker hafa þó hvorki Banda­ríkin né Evr­ópu­sam­bandið komið lög­gjöf í gegn sem styður fylli­lega við þessi mark­mið.

Biden-stjórnin í Banda­ríkj­unum er enn að reyna að koma lofts­lags­lög­gjöf sinni í gegnum þingið og mætti for­seti lands­ins því nokkuð tóm­hentur á ráð­stefn­una í Glasgow, en þó með fögur fyr­ir­heit um að Banda­ríkin muni leiða með góðu for­dæmi og hafa Banda­ríkin tekið sér sæti við borðið í svoköll­uðu Metn­að­ar­fullu banda­lagi ríkja á ráð­stefn­unni, ríkja sem leggja áherslu á að heim­inum verði komið á þá braut að geta upp­fyllt mark­mið um að jörðin hlýni ekki um meira en 1,5° út öld­ina.

Í lög­gjöf­inni sem Biden stefnir að því koma í gegn um þingið er gert ráð fyrir því að 555 millj­arðar banda­ríkja­dala renni á næsta ára­tug til aðgerða sem fallið geta undir hatt lofts­lags­að­gerða; meðal ann­ars fjár­fest­inga í grænum lausnum og íviln­ana.

Á vett­vangi Evr­ópu­sam­bands­ins var rúmur þriðj­ungur 750 millj­arða evra kór­ónu­veiru­far­ald­ur­s­pakk­ans, sem sam­þykktur var fyrr á árinu, eyrna­merktur lofts­lags­að­gerðum af ýmsu tagi. Í grein­ingu Climate Action Tracker segir að þrátt fyrir sam­þykktir Evr­ópu­sam­bands­ins í lofts­lags­málum og mark­mið sem nálgist það að verða ásætt­an­leg, sé mis­jafnt hversu vel ein­staka ríki sam­bands­ins fylgi áætl­unum eftir heima fyrir.

Sér­stak­lega er fundið að því í mati Climate Action Tracker að aðild­ar­ríki ESB hafi mörg hver ekki sett sér áætl­anir um að fasa út kola­notkun fyrir árið 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP26

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár