Rörsýn á rafmagnsbíla á ráðstefnunni í Glasgow

Í aðal­sýn­ing­ar­salnum á Cop26 í Glasgow er hægt að sjá kappakst­urs­bíl sem gengur fyrir raf­magni. Lítil áhersla er hins vegar bæði þar og í dag­skrá ráð­stefn­unnar á virka ferða­máta og almenn­ings­sam­göngur, ýmsum til furðu.

Rafbílar eru fyrirferðamiklir í umræðunni í kringum Cop26-ráðstefnuna í Glasgow.
Rafbílar eru fyr­ir­ferða­miklir í umræð­unni í kringum Cop26-ráð­stefn­una í Glasgow. Mynd: Pexels

Umræða um raf­bíla og orku­skipti í vega­sam­göngum er fyr­ir­ferða­mikil í kringum Cop26-ráð­stefn­una sem fram fer í Glasgow þessa dag­ana. Eðlilega, enda er losun frá vega­sam­göngum stór og raunar enn vax­andi þáttur í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu.

Á móti kemur að lítið fer á ráð­stefn­unni fyrir umræðu um aðrar leiðir til þess að draga úr losun frá vega­sam­göngum, sem í reynd eru bæði hag­kvæm­ari, fljót­legri og umhverf­is­vænni en það ein­ungis að skipta úr bílum sem brenna jarð­efna­elds­neyti yfir í bíla sem keyra á raf­magni.[links]

Þetta hefur verið gagn­rýnt af sér­fræð­ingum í skipu­lags- og sam­göngu­málum og tals­mönnum fyrir því að hjól­reiðar og aðrir virkir ferða­mátar, auk almenn­ings­sam­gangna, fái auk­inn sess í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum.

Breski blaða­mað­ur­inn Carlton Reid, sem skrifar um sam­göngu­mál fyrir Forbes og fleiri miðla, segir í dálki sínum á vef Forbes að á þeim degi sem bresku fund­ar­hald­ar­arnir til­einki sam­göngum á Cop26, mið­viku­deg­inum 10. nóv­em­ber, sé ekk­ert minnst á hjól­reiðar, göngu né lest­ar­sam­göngur í dag­skránni.

Sjálfur er hann staddur í Glasgow og hefur þar furðað sig á því að virkir ferða­mátar fá nær ekk­ert pláss á ráð­stefn­unni – á meðan að í aðal­sýn­ing­ar­salnum á ráð­stefn­unni sé meira að segja raf­magns­drif­inn kappakst­urs­bíll.

Í grein sinni vísar Reid meðal ann­ars til nýlegrar rann­sóknar frá rann­sak­endum við Oxford-háskóla, sem kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að það ætti að verða horn­steinn sjálf­bærrar stefnu­mót­unar að fjár­festa í og stuðla að virkum ferða­mátum innan borga heims.

Áratugir í besta falli þar til brunabílarnir hverfa

Henk Swarttouw, for­maður regn­hlíf­ar­sam­taka evr­ópskra sam­taka hjól­reiða­manna, minnti á það í bréfi til Financial Times á dög­unum að sam­kvæmt björt­ustu sviðs­myndum muni það taka að minnsta kosti 20 ár að koma bílum sem brenna jarð­efna­elds­neyti úr umferð – og að orku­skiptin muni jafn­vel taka enn lengri tíma hvað flutn­inga­bíla varðar. Bílasala á heims­vísu sé enn vax­andi og ein­ungis um fimm pró­sent þeirra bíla sem selj­ast séu hreinir raf­bílar.

Swarttouw bendir á að það sé til fljót­leg og til­tölu­lega ein­föld leið til þess að keyra af stað sam­drátt í losun frá vega­sam­göngum – að útbúa aðstæður sem henta vel til þess að fólk velji sér að hjóla eða ganga. Hann segir einnig að í Evrópu sé helm­ingur allra ferða sem farnar eru á bílum innan við fimm kíló­metrar og þriðj­ungur innan við þrír kíló­metrar.

[adspot]

„Flest fólk ætti að geta farið þessar vega­lengdir á hjóli eða, fyrir allra stystu ferð­irnar, ein­fald­lega gang­andi. Og núna nýlega hefur hröð inn­koma raf­hjóls­ins gert hjól­reiðar að aðlað­andi kosti fyrir ferðir sem eru jafn­vel eilítið lengri,“ skrifar Henk Swarttouw og bendir síðan á að það sem helst standi því fyrir þrifum að fleiri kjósi að hjóla og ganga styttri ferðir innan borga séu öruggir inn­viðir.

Skora á ríki heims um að heita því að fjölga hjólandi

Í sam­eig­in­legri áskorun 64 evr­ópskra sam­taka hjól­reiða­manna, þeirra á meðal Lands­sam­taka hjól­reiða­manna hér á landi, til þeirra ríkja sem sitja ráð­stefn­una í Glasgow þessa dag­ana, segir að heim­ur­inn þurfi mun meiri hjól­reiðar til að vega gegn lofts­lags­breyt­ingum. Skorað er á rík­is­stjórnir og þjóð­ar­leið­toga að heita því að fjölga veru­lega fjölda þeirra þeirra sem hjóla í heima­löndum sínum.

„Rík­is­stjórnir geta gert þetta með því að byggja meira af hágæða hjól­reiða­innviðum, sam­þætta hjól­reiðar við almenn­ings­sam­göngur, bæta öryggi á vegum og koma til leiðar stefnum sem hvetja fólk og fyr­ir­tæki til þess að skipta út bíl­ferðum fyrir hjól­reiðar og aðra ferða­máta eins og göngu og almenn­ings­sam­göngur,“ segir auk ann­ars í áskor­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP26

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár