Getur Ísland keyrt sig út úr loftslagsvandanum?

Orku­skipti í sam­göngum er eitt helsta fram­lag íslenskra stjórn­valda í bar­átt­unni við lofts­lags­ham­farir. Rafbílar eru hins vegar ekki sú töfra­lausn sem oft er haldið fram. Vanda­málið er ekki bens­índrifnir bílar heldur bíla­drifin menn­ing.

Einkabílaeign á Ísland er hlutfallslega sú hæsta í Evrópu.
Einka­bíla­eign á Ísland er hlut­falls­lega sú hæsta í Evrópu. Mynd: Pexels

Vega­sam­göngur er stærsti los­un­ar­þáttur á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda. Til að ná mark­miði Par­ís­ar­sátt­mál­ans um að halda hlýnun jarðar undir 1,5°C þarf heimslosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda að drag­ast saman um að minnsta kosti 55% fyrir árið 2030. Raf­bíla­væð­ing, eða orku­skipti í sam­göngum, er eitt helsta fram­lag Íslands í þeirri veg­ferð. Fyrir liggur að þessi ára­tugur er síð­asta tæki­færi mann­kyns­ins til að koma í veg fyrir óaft­ur­kræfar lofts­lags­breyt­ingar. Fjöldi rann­sókna hafa hins vegar sýnt fram á vand­kvæði raf­bíla­væð­ingar og að rót­tæk­ari kerf­is­breyt­inga er þörf ef koma á í veg fyrir verstu afleið­ingar lofts­lags­ham­fara. Slíkar breyt­ingar virð­ast ekki vera á dag­skrá íslenskra stjórn­valda.

Næstbest í rafbílavæðingu og næstbest í neyslu

Íslensk stjórn­völd hafa allt frá árinu 2012 veitt skattaí­viln­anir fyrir svokölluð vist­væn öku­tæki sem er ein helsta ástæða þess að Ísland er í dag í öðru sæti í heim­inum yfir nýskrán­ingu vist­vænna bíla, næst á eftir Noregi. En Ísland er ekki bara næst­best í heimi í nýskrán­ingu vist­vænna bíla heldur sitjum við einnig í öðru sæti yfir stærsta neyslu­drifna kolefn­is­fót­spor í heimi og þar bera sam­göngur ábyrgð á stærsta hlut­anum.

Einka­bíla­eign á Ísland er hlut­falls­lega sú hæsta í Evrópu. Árið 2018 voru 767 fólks­bílar á hverja 1000 íbúa á Íslandi. Til sam­an­burðar var hæsta hlut­fall bíla­eigna í Evr­ópu­sam­band­inu í Lúx­em­borg, þar sem hlut­fallið var 676 bílar á hverja 1000 íbúa. Þrátt fyrir hraðan vöxt í nýskrán­ingu raf­bíla hér á landi hefur lítil breyt­ing orðið á losun frá þessum geira. Nýskrán­ing öku­tækja hefur að með­al­tali verið um 15.000 á hverju ári síð­ustu tíu ár. Það mun því taka Ísland hátt í 20 ár að skipta út núver­andi bíla­flota. Hættan er að mikil bíla­eign Íslend­inga vinni gegn ávinn­ingnum sem ann­ars gæti hlot­ist með orku­skiptum.

Vandamálið með rafbíla

Í grund­vall­ar­at­riðum eru raf­knúin öku­tæki ekki svo ólík öku­tækjum sem ganga fyrir bens­íni. Bílar, sama hvaða orku þeir ganga fyrir, hafa slæm áhrif á umhverfi, land, lofts­lag og heilsu fólks. Bílar treysta á kolefn­is­freka inn­viði svo sem vegi, bíla­stæði og mann­virki, svo ekki sé talað um fram­leiðsl­una á bíl­unum sjálfum. Þrátt fyrir að engin bein losun stafi af raf­bílum, þá ýta þeir undir losun og umhverf­is­á­hrif ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu. Rafbílar eru vissu­lega mik­il­vægir en hættan er sú að stjórn­völd líti fram­hjá ávinn­ingnum sem á sér stað við breyt­ingar á ferða­venjum og neyslu­hegðun. Fjöldi rann­sókna hefur sýnt að til að draga jafn stór­lega úr losun og nauð­syn­legt er þurfa kerf­is­breyt­ingar í sam­fé­lag­inu að eiga sér stað. Draga þarf úr bíla­eign- og notkun, þétta byggð, minnka ferða­þörf, breyta við­horfi til einka­bíls­ins og ríkj­andi „bíla­menn­ingu“, og almenn­ings­sam­göngur og virkir ferða­mátar (svo sem hjól­reiðar eða ganga) þurfa að verða megin ferða­mát­inn. Þessar breyt­ingar þurfa að eiga sér stað sam­hliða nauð­syn­legum orku­skiptum í sam­göngum. Tak­mörkuð áhersla virð­ist vera lögð á þessa þætti í aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum.

Aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum: Metnaðarfull í orði en ekki á borði

Aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum frá árinu 2020 er helsta stjórn­tæki stjórn­valda til að stand­ast mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans og er ætlað að leggja grunn­inn að mark­miði um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040. Hér að neðan er aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum rýnd með til­liti til vega­sam­gangna.

[adspot]

Aðgerða­á­ætl­unin boðar 48 aðgerðir sem ætlað er að draga úr losun, þar af snúa tíu aðgerðir að vega­sam­göngum. Að auki eru fjórar aðgerðir sem falla ekki beint undir vega­sam­göngur sem þó er áætlað að muni draga úr losun frá þessum geira. Þannig snýr tæp­lega þriðj­ungur af aðgerð­unum að vega­sam­göngum.

Rafbílar – nýtt stöðutákn?

Í umsögnum við aðgerða­á­ætl­un­ina var ákall eftir áherslu á breyttar ferða­venjur og að þeim yrði lyft til jafns við orku­skipti í vega­sam­göngum. Í aðgerða­á­ætl­un­inni segir: „Í upp­færðri útgáfu hefur verið tekið til­lit til þess­ara þátta.“ Þessi stað­hæf­ing er vill­andi þar sem enn snúa flestar aðgerðir að orku­skiptum í sam­göngum og áætlað er að sam­dráttur í losun verði meiri frá orku­skiptum heldur en breyttum ferða­venjum.

Gert er ráð fyrir því að fjöldi ferða með einka­bílnum vegna efldra almenn­ings­sam­gangna og hjól­reiða muni fara úr 76% í um 69% til árs­ins 2030. Þannig er gert ráð fyrir því að ferðir á einka­bíl drag­ist saman um 10% á 10 árum – þessum sömu 10 árum og við höfum til að draga úr losun um 55% og koma í veg fyrir óaft­ur­kræfar lofts­lags­breyt­ingar. Stefnan virð­ist ekki vera að draga úr akstri heldur ein­fald­lega breyta elds­neyti bíls­ins. Rann­sóknir hafa hins vegar sýnt fram á að breyttar ferða­venjur einar og sér hafa meiri og skjót­ari áhrif á sam­drátt í losun heldur en raf­bíla­væð­ing ein og sér. Þegar aðgerðir stjórn­valda mið­ast við að fólk ferð­ist um á einka­bíl, hvort sem það er bensín eða raf­bíll, þá vinnur það gegn öðrum ferða­venjum.

Þrjár aðgerðir í aðgerða­á­ætl­un­inni miða að því að breyta ferða­venjum. Aðgerð­irnar snúa að upp­bygg­ingu inn­viða fyrir virka ferða­máta, tíma­bundnar íviln­anir fyrir virka ferða­máta sem og efl­ingu almenn­ings­sam­gangna. Upp­bygg­ing almenn­ings­sam­gangna og hjóla­stíga eru nauð­syn­legt fram­lag en ríkj­andi bíla­menn­ing á Íslandi er þó ákveðin hindrun. Heinonen og félagar (2021) skoð­uðu hvað veldur mik­illi bíla­eign á höf­uð­borg­ar­svæði Íslands og komust að því að bíla­miðað skipu­lag borg­ar­svæð­is­ins, ásamt nei­kvæðu við­horfi gagn­vart almenn­ings­sam­göngum og rót­gró­inni bíla­menn­ingu spila þar stærsta hlut­verki.

[links]

Rann­sóknin leiddi í ljós að bíll­inn end­ur­speglar ákveðna sam­fé­lags­stöðu og almenn­ings­á­litið sé að bíl­laus lífs­stíll beri merki um fátækt eða lægri sam­fé­lags­stöðu. Mik­il­vægt er að hafa í huga að breyt­ingar á neyslu­hegðun hafa yfir­leitt ekki átt sér stað með því að hvetja fólk til að breyta hegðun heldur með því að breyta sam­fé­lags­legum gildum og mögu­leik­unum í boði fyrir neyt­endur. Líkt og með aðrar ver­ald­legar eigur end­ur­spegla raf­bílar ákveðna sam­fé­lags­stöðu og geta því orðið eins­konar stöðu­tákn á Íslandi.

Bann við brunabílum árið 2030 – of seint í rassinn gripið

Í aðgerða­á­ætlun kemur fram að bann við nýskrán­ingu bensín- og dísil­bíla og fleiri aðgerðir sendi skýr skila­boð um mik­il­vægi aðgerða gegn lofts­lags­vánni. Það má deila um það hversu mikið stjórn­völd ættu að hreykja sér af þess­ari aðgerð. Bens­ín­bíll getur enst í allt að tutt­ugu ár og mun því bens­ín­bíll keyptur árið 2029 að öllum lík­indum vera á göt­unum árið 2045, að menga og losa koltví­sýr­ing. Með þess­ari aðgerð er því verið að „læsa inni“ koltví­sýr­ing (e. carbon lock-in) í að minnsta kosti tvo ára­tugi til við­bótar. Bann við bruna­bílum sendir óneit­an­lega mark­aðs­skila­boð til fram­leið­enda en við höfum hins vegar aðeins til árs­ins 2030 til að bregð­ast við og koma í veg fyrir verstu afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga. Að bíða fram til árs­ins 2030 með að banna inn­flutn­ing á bílum sem brenna jarð­efna­elds­neyti er algjör­lega á skjön við alvar­leika lofts­lags­ham­fara og fyrir vikið verður mark­mið Íslands um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040 í raun óraun­hæft.

„Tengiltvinnbílar ýta undir enn einn losunarskandalinn“

Önnur aðgerð sem vert er að vekja athygli á er íviln­anir fyrir vist­væn öku­tæki. Tengilt­vinn­bílar eru enn skil­greindir sem vist­væn öku­tæki sam­kvæmt stjórn­völdum og njóta því skatta­legra íviln­ana. Drægni tengilt­vinn­bíla á raf­magni er yfir­leitt á milli 30-60 kíló­metra. Eftir það byrja tengilt­vinn­bílar að nota bruna­vél­ina, þ.e. bensín eða dísil. Rann­sóknir hafa leitt í ljós að þegar tengilt­vinn­bílar byrja að nota bruna­vél­ina losa þeir marg­falt meira en skráð gildi fram­leið­anda gefur til kynna, og jafn­vel meira en venju­legir bruna­bílar. Úttekt Samorku á akst­ur­hegðun raf­bíla­not­enda sýndi fram á að not­endur tengilt­vinn­bíla á Íslandi keyra að með­al­tali meira og lengra en not­endur hreinna raf­bíla. Þetta gefur til kynna að öku­menn tengilt­vinn­bíla noti bruna­vél­ina umtals­verðan hluta af ferða­lag­inu. Þessi stað­reynd bendir til svo­kall­að­ara end­ur­kasts­á­hrifa (e. rebound effects) tengilt­vinn­bíla.

End­ur­kasts­á­hrif vísa til þess að sá sparn­aður sem hlýst vegna nýrrar tækni eða meiri orku­nýtni getur leitt til þess að neysla eykst og þannig minnkar orku­sparn­að­ur­inn sem hefði ann­ars náðst. Sem dæmi má nefna ein­stak­ling sem kaupir spar­neytn­ari bíl til að eyða minna elds­neyti en endar á því að keyra meira vegna þess að bíll­inn er svo spar­neyt­inn. Í raun ættu stefnu­mótendur alltaf að taka til­lit til end­ur­kasts­á­hrifa þegar um nýja, „skil­virk­ari“ tækni er að ræða.

Tengilt­vinn­bílar eru vin­sæll kostur á Íslandi en það sem af er ári er hlut­deild nýskráða tengilt­vinn­bíla 27% á meðan hlut­deild hreinna raf­magns­bíla er 21%. Samtökin Tran­sport and Environ­ment hafa hvatt stjórn­völd til að hætta að nið­ur­greiða tengilt­vinn­bíla þar sem þeir eru ein­fald­lega að „ýta undir enn einn los­un­ar­skandal­inn“. Stjórn­völd á Íslandi eru hins vegar enn að nið­ur­greiða tengilt­vinn­bíla fyrir háar upp­hæðir ár hvert. Skattaí­viln­unum átti að ljúka árið 2020 en þær voru að lokum fram­lengdar og leiða má líkur að því að Bíl­greina­sam­band Íslands, hags­muna­sam­tök selj­enda öku­tækja, hafa haft mikið um málið að segja. Í umsögn Bíl­greina­sam­bands­ins við ákvörðun um að hætta skattaí­viln­unum á tengilt­vinn­bíla er því haldið fram að tengilt­vinn­bílar séu enn ekki sam­keppn­is­hæfir í verði og að mik­il­vægt sé að tryggja að ekki komi bakslag í þann „góða gang sem er í sölu tengilt­vinn­bíla í dag“.

Loftslagsréttlæti

Síðast en ekki síst tekur aðgerða­á­ætl­unin fram að „mik­il­vægt er að taka á losun óháð því hvar hún bók­fær­ist ... neysla okkar á Íslandi hefur sem dæmi kolefn­is­spor þótt meng­unin verði til hinum megin á hnett­inum og falli ekki undir los­un­ar­bók­hald Íslands. Allar aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum verða um leið að stuðla að félags­legu rétt­læti og jafn­rétti. Aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum miðar að þessu.“ Hér eru tveir þættir sem mik­il­vægt er að benda á. Í fyrsta lagi má spyrja hvaða áhrif núver­andi sam­göngu­kerfi hefur á ólíka sam­fé­lags­hópa. En félags­legt rétt­læti og jafn­rétti krefst þess að einnig sé tekið til­lit til þeirra sem geta ekki eða hafa ekki áhuga á að eiga eða keyra bíl.

[adspot]

Í öðru lagi nær félags­legt rétt­læti og jafn­rétti út fyrir landa­mæri Íslands. Lífs­fer­ill raf­bíla byrjar með námu­grefti fyrir ákveðnum efnum, svo sem litíum, kóbalt og mangan, sem nú þegar eru af skornum skammti í heim­inum. Námu­gröftur, verkun og fram­leiðsla á þeim efnum sem nauð­syn­leg eru fyrir raf­bíla á sér stað í fjar­lægum löndum með til­heyr­andi áhrifum á umhverfi, mann­rétt­indi og sam­fé­lögin sem þar búa. Námu­gröftur er ein­hver mest meng­andi iðn­aður í heimi og eft­ir­spurnin eftir raf­bílum mun ein­ungis ýta undir vöxt iðn­að­ar­ins. Vert er einnig að benda á að enn sem komið er er ekk­ert form­legt end­ur­vinnslu­ferli fyrir raf­hlöður á Íslandi og eru þær því fluttar úr landi til frek­ari end­ur­nýt­ingar, ef það er þá hægt. Þannig snertir kolefn­is­fót­spor raf­bíla í raun aldrei Ísland. Vís­inda­menn hafa ítrekað bent á að stjórn­völd þurfi að taka mið af óbeinni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í lofts­lags­að­gerðum sínum. Tillit til neyslu­drif­ins kolefn­is­fót­spor Íslands virð­ist ekki ná til vega­sam­gangna þar sem engin aðgerð í aðgerða­á­ætl­un­inni miðar að því að draga úr neyslu og þar með fram­leiðslu á bílum.

Neysludrifin lausn er ekki vænleg til árangurs

Áherslan á lofts­lags­mál og fjár­magn til mála­flokks­ins hefur auk­ist til muna á núver­andi kjör­tíma­bili. Mála­flokk­ur­inn hefur ekki verið for­gangs­at­riði stjórn­valda hingað til og það er að koma í bakið á okkur núna. Þrátt fyrir auk­inn metnað miðar aðgerða­á­ætl­unin ekki að því að tak­marka einka­bíla­eign eða notkun, tak­mörkuð áhersla er lögð á minnka ferða­þörf eða að breyta við­horfum og bíla­menn­ing­unni sem ríkir á Íslandi. Þetta eru hins vegar þær grund­vall­ar­breyt­ingar sem þurfa að eiga sér stað ætli Ísland sér að draga jafn stór­lega úr losun og nauð­syn­legt er.

Vega­sam­göngur eru stærsti los­un­ar­þáttur á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda og því brýnt að losna við bíla sem losa koltví­sýr­ing af göt­unum eins fljótt og auðið er. Rafbílar spila óneit­an­lega mik­il­vægu hlut­verki í þeirri veg­ferð en til að bregð­ast við lofts­lags­breyt­ingum af þeim krafti sem nauð­syn­legt er þarf hins vegar að ráð­ast á rót vand­ans. Stefna stjórn­valda virð­ist vera sú að hvetja til frek­ari bíla­kaupa, svo lengi sem bíl­arnir ganga fyrir annarri orku en dísil og olíu. Vanda­málið er ekki bens­índrifnir bílar heldur bíla­drifin menn­ing.

Greinin byggir á MS rit­gerð höf­undar í umhverf­is­stjórn­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár