Áherslur Íslands á COP26 munu skýrast samhliða myndun ríkisstjórnar

Stefnu­mót­andi áherslur íslenskra ráða­manna á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Glasgow munu skýr­ast betur sam­hliða myndun rík­is­stjórnar. Gert er ráð fyrir að for­sæt­is­ráð­herra og auð­linda- og umhverf­is­ráð­herra sæki ráð­stefn­una í nóv­em­ber.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Gert er ráð fyrir að tveir íslenskir ráð­herrar, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sæki lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna (COP26) sem fram fer í Glasgow í byrjun nóv­em­ber. Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eftir Alþing­is­kosn­ingar eru enn í gangi og munu stefnu­mót­andi áherslur íslenskra ráða­manna á ráð­stefn­unni skýr­ast betur sam­hliða myndun rík­is­stjórnar.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari for­sæt­is­ráðu­neytis og umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytis við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[adspot]

Hvað er þetta COP?

COP er stytt­ing á enska heit­inu „Conference of the Parties“ eða ráð­stefna aðild­ar­ríkja og er þar vísað til alþjóð­legra samn­inga, ann­ars vegar um lofts­lags­mál og hins vegar fjöl­breytni líf­rík­is­ins. Sam­ein­uðu þjóð­irnar skipu­leggja ráð­stefn­urnar en þátt­tak­endur eru hátt­settir full­trúar ríkja, stað­bund­inna sam­taka og frjálsra félaga­sam­taka. Lofts­lags­ráð­stefnan í París var sú 21. Í röð­inni og var því kölluð COP21 og sú sem bráð­lega hefst í Glasgow er sú 26. Og kall­ast því til stytt­ingar og ein­föld­unar COP26.

Ábyrgð Íslands gagn­vart lofts­lags­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna liggur hjá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyti.

Katrín flytur ávarp á leiðtogaráðstefnu COP26

Gert er ráð fyrir að for­sæt­is­ráð­herra sæki leið­toga­ráð­stefnu lofts­lags­samn­ings­ins sem haldin verður í upp­hafi COP26. Þar mun Katrín flytja ávarp og taka þátt í við­burðum. Tveir full­trúar úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu verða í fylgd­ar­liði hennar.

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra sækir seinni viku ráð­stefn­unnar. Með honum í för verður einn full­trúi úr ráðu­neyt­inu. Guð­mundur Ingi mun taka þátt í hlið­ar­við­burðum og tví­hliða­fundum, m.a. um mik­il­vægi þess að end­ur­heimta vot­lendi, um súrnun sjávar og um sér­stakan samn­ing sem unnið er að um lofts­lags­mál, við­skipti og sjálf­bærni.

Starfsmenn ráðuneyta og sérfræðingar stofnana í sendinefnd

Þess utan munu þrír full­trúar umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins og tveir full­trúar frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sækja fund­inn allan tím­ann. Í sendi­nefnd­inni verða einnig sér­fræð­ingar frá und­ir­stofn­unum umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins, sem vinna að lofts­lags­málum með ýmsum hætti. Þetta eru sér­fræð­ingar frá Umhverf­is­stofnun, Veð­ur­stof­unni og Land­græðsl­unni. Jafn­framt verða full­trúar frá Lofts­lags­ráði og Orku­stofnun á fund­inum.

Þá styrkir umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið full­trúa ung­menna til þátt­töku á fund­inum. Er þetta í fyrsta sinn sem full­trúi ung­menna er í hinni opin­beru sendi­nefnd.

Opið er fyrir skrán­ingu á COP26 til loka næstu viku. Fjöldi full­trúa íslenskra stjórn­valda á fund­inum mun því mögu­lega taka ein­hverjum breyt­ingum, segir í svari ráðu­neyt­anna við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Taka niðurstöður vísindaskýrslu IPCC alvarlega

Þótt áherslur íslenskra ráða­manna á fund­inum eigi eftir að skýr­ast betur sam­hliða myndun rík­is­stjórnar segir í svari ráðu­neyt­anna að íslensk stjórn­völd taki alvar­lega nið­ur­stöður nýj­ustu vís­inda­skýrslu IPCC, sér­fræð­inga­hóps milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar. Einnig hafi Ísland á vett­vangi loft­lags­mála talað fyrir mik­il­vægi þess að auka hlut­deild end­ur­nýj­an­legrar orku og orku­skiptum, jafn­rétt­is­málum, mik­il­vægi sann­gjarnra umskipta og verndun sjávar. Eins hafa aðstoð við þró­un­ar­löndin á sviði lofts­lags- og orku­mála fengið aukið vægi hjá íslenskum stjórn­völdum og skólar Sam­ein­uðu þjóð­anna á sviði jarð­hita, sjáv­ar­út­vegs, land­græðslu og jafn­rétt­is­mála leikið stórt hlut­verk í gegnum tíð­ina.

Ísland hefur jafn­framt lýst því yfir að fjár­magn til lofts­lagstengdrar þró­un­ar­að­stoðar verði aukið og segja ráðu­neytin í svari sínu að fjár­magn til alþjóð­legrar lofts­lagstengdra verk­efna hafi auk­ist um 70 pró­sent milli áranna 2019-2021.

Í júní skip­aði umhverfis- og auð­linda­ráð­herra starfs­hóp sem var falið það hlut­verk að und­ir­búa þátt­töku Íslands í aðilda­ríkja­fundi lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna (COP26). Í hópnum eiga sæti full­trúar frá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyti, sem leiðir vinn­una, og frá for­sætis- og utan­rík­is­ráðu­neyti.

Samkvæmt Par­ís­ar­samn­ingnum skulu ríki senda inn hert mark­mið fyrir COP26 og hefur Ísland tekið undir hvatn­ingu til ríkja um að þau standi við það og sendi inn hert lands­mark­mið (NDC) fyrir fund­inn. Það gerðu íslensk stjórn­völd fyrr á þessu ári.

Stefnt að kolefnishlutleysi eigi síðar en 2040

Í Par­ís­ar­samn­ingum er einnig hvatn­ing til ríkj­anna að senda til samn­ings­ins lang­tíma­stefnu um kolefn­is­hlut­leysi fyrir COP26. Ísland mun senda inn slíkt skjal fyrir fund­inn, þar sem m.a. verður fjallað um mark­mið um að kolefn­is­hlut­leysi skuli náð á Íslandi eigi síðar en 2040, en mark­miðið var lög­fest á síð­asta lög­gjaf­ar­þingi.

Þau mál sem reiknað er með að verði efst á baugi í samn­inga­við­ræð­unum á COP26 varða hina svoköll­uðu reglu­bók Par­ís­ar­samn­ings­ins, þ.e. nán­ari útfærslu á fram­kvæmd samn­ings­ins. Sam­komu­lag náð­ist um flesta þætti reglu­bók­ar­innar á COP24 árið 2018, en ákveðin mik­il­væg atriði stóðu út af, sem enn á eftir að ná sam­komu­lagi um.

Þar ber hæst dag­skrár­liði varð­andi 6. grein samn­ings­ins um sam­starf og mark­aðs­kerfi með kolefn­is­ein­ingar (Markets) og hins vegar um upp­lýs­inga- og skýrslu­gjöf (Transparency).

Auk þess er mikil áhersla á að tryggja fjár­mögnun lofts­lagstengdra verk­efna, ekki hvað síst í þró­un­ar­lönd­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP26

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár