Tveir þriðju öryrkja segja húsnæðiskostnað þunga eða nokkra byrði

38 pró­sent öryrkja hafa miklar eða frekar miklar áhyggjur af hús­næð­is­kostn­aði og nærri tveir af hverjum þremur segja húsa­leigu eða afborg­anir af hús­næð­is­lánum vera þunga eða nokkra byrði.

Tólf prósent öryrkja greiða meira en 75 prósent útborgaðra launa í rekstur húsnæðis.
Tólf pró­sent öryrkja greiða meira en 75 pró­sent útborg­aðra launa í rekstur hús­næðis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

17 pró­sent öryrkja hafa mjög miklar áhyggjur af kostn­aði við rekstur hús­næðis og 21 pró­sent hafa frekar miklar áhyggjur. 58 pró­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði en 84 pró­sent þeirra sem búa í leigu­hús­næði eða við ann­ars konar búsetu­skil­yrði segja húsa­leigu eða afborg­anir af hús­næð­is­lánum vera þunga eða nokkra byrði.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nið­ur­stöðum könn­unar sem ÖBÍ rétt­inda­sam­tök létu gera á stöðu fatl­aðs fólks á hús­næð­is­mark­aði.

Tólf pró­sent öryrkja greiða meira en 75 pró­sent útborg­aðra launa í rekstur hús­næðis. 25 pró­sent greiða á milli 51 pró­sent og 75 pró­sent. Hlutfall húsa­leigu eða afborg­ana af hús­næð­is­lánum hefur auk­ist mikið hjá 20 pró­sent og nokkuð hjá 45 pró­sent.

Öryrkja­banda­lag Íslands kynnti nið­ur­stöður könn­un­ar­innar, sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands vann fyrir banda­lagið, í gær en áður hafði ÖBÍ greint frá því að hluti öryrkja greiðir yfir 75 pró­sent ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í hús­næð­is­kostnað.

[links]Í umsögn ÖBÍ um frum­varp þing­manna Flokks fólks­ins um breyt­ingar á lögum um vexti og verð­trygg­ingu og húsa­leigum segir að ætla megi að tekju­lágt fólk velji frekar að taka verð­tryggð hús­næð­is­lán vegna lægri afborg­ana í því vaxtaum­hverfi sem ríkt hafi á hús­næð­is­mark­aði, sér­stak­lega síð­ast­liðið ár. „Verð­bólgan er mjög há nú um stundir og alls óvíst hvort hún komi til með að lækka, hækka eða standa í stað næstu miss­eri. Greiðslu­byrði lán­taka hefur þyngst veru­lega og þá sér­stak­lega hjá þeim hóp sem tók óverð­tryggð lán með breyti­legum vöxtum á þeim tíma sem stjórn­völd töl­uðu á þann hátt að nú væri lávaxt­ar­skeið haf­ið. Þær for­sendur sem þessir lán­takar settu sér eru algjör­lega brostnar og eru mörg heim­ili með alltof háa greiðslu­byrð­i.“

Staða öryrkja á leigumarkaði verri en öryrkja í eigin húsnæði

Könnunin leiðir í ljós að staða fólks sem býr í leigu­hús­næði er almennt verri. Það greiðir hærra hlut­fall tekna í rekstur, hefur meiri áhyggjur af kostn­að­inum og er lík­legra til þess að lenda í van­skilum.

Í könn­un­inni kemur fram að fatlað fólk er mun lík­legra til að vera á leigu­mark­aði og borga stærri hluta tekna sinna í hús­næð­is­kostnað en aðrir á Íslandi.

58 pró­sent öryrkja búa í eigin hús­næði sam­an­borið við 74 pró­sent allra full­orð­inna. 29 pró­sent öryrkja eru á leigu­mark­aði, sam­an­borið við 13 pró­sent allra full­orð­inna hér á landi.

Þeir örorku­líf­eyr­is­takar sem eru á leigu­mark­aði sögðu almennt erfitt að fá leigt hús­næði á almennum mark­aði og greiða stóran hluta tekna sinna í sinn hlut af rekstri hús­næð­is­ins.

49 pró­sent svar­enda sögðu það hafa verið mjög erfitt að fá leigt hús­næði á almennum leigu­mark­aði en aðeins sjö pró­sent svar­enda sögðu það hafa verið mjög auð­velt.

Helm­ingur þeirra sem það hafði leitað að hús­næði til leigu sagði að mjög erfitt hafi verið að fá leigt hús­næði á almennum leigu­mark­aði og 17 pró­sent sögðu það hafa verið frekar erfitt. Alls höfðu 15 pró­sent svar­enda ein­hvern tíma búið í félags­legu hús­næði á vegum sveit­ar­fé­laga. Af þeim sem bjuggu í eða höfðu ein­hvern tíma búið í félags­legu hús­næði á vegum sveit­ar­fé­laga hafði 41 pró­sent verið á biðlista í þrjú ár eða lengur áður en hús­næðið fékkst.

28 prósent hafa lent í vanskilum og 10 prósent tekið smálán

Líkt og fyrr segir hafa 38 pró­sent öryrkja á leigu­mark­aði mjög eða frekar miklar áhyggjur af kostn­að­inum við rekstur hús­næðis, sem er tvö­falt meira en full­orðið fólk almennt.

Þau sem voru með 75 pró­sent örorku­mat voru lík­legri til að segja rekstur hús­næðis valda sér áhyggjum en þau sem voru með örorku­styrk eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri. Þá voru þau sem bjuggu í eigin hús­næði mun ólík­legri til að segja kostnað við rekstur hús­næðis valda sér áhyggjum en þau sem bjuggu í leigu­hús­næði eða við ann­ars konar búsetu­skil­yrði.

28 pró­sent öryrkja sem hafa greitt leigu eða hús­næð­is­lán síð­ustu tíu ár hafa lent í van­skilum með leigu eða afborgun hús­næð­is­lána. Einum af hverjum tíu hafði ein­hvern tíma verið sagt upp leigu­hús­næði eða misst íbúð­ar­hús­næði vegna erf­ið­leika við að greiða leigu eða afborg­anir.

Þá höfðu tíu pró­sent öryrkja tekið smá­lán, það er lán sem tekin eru í gegnum smá­lána­fyr­ir­tæki sem lána ákveðnar upp­hæðir með skjótum hætti gegn háum vöxtum, á síð­ustu 12 mán­uðum.

Hlutfall húsa­leigu eða afborg­ana af hús­næð­is­lánum hefur auk­ist nokkuð eða mikið hjá 65 pró­sent öryrkja síð­ustu fimm ár. 25 pró­sent svar­enda sögðu útgjöldin hafa nokkurn veg­inn staðið í stað, en tíu pró­sent segja útgjöldin hafa lækkað nokkuð eða mikið.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar leiða í ljós að byrði vegna húsa­leigu eða afborg­ana af hús­næð­is­lánum er þung. 64 pró­sent öryrkja segja byrð­ina þunga eða nokkra. 20 pró­sent segja byrgði vegna húsa­leigu eða afborg­ana hús­næð­is­lána litla en 16 pró­sent segja byrð­ina enga.

Könnunin var lögð fyrir almennt úrtak fólks á aldr­inum 18 til 67 ára. Í upp­hafi könn­un­ar­innar var fólk spurt hvort það væri með 75% örorku­mat hjá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins, örorku­styrk, end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri eða ekk­ert af þessu. Aðrar spurn­ingar könn­un­ar­innar voru í fram­haldi lagðar fyrir fólk sem var með örorku­mat eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár