Stjórnvöld „skili auðu í að bæta afkomu heimila í aðdraganda kjarasamninga“

Í umsögn ASÍ við fjár­laga­frum­varpið segir að þar sé ekki að finna nauð­syn­legar umbætur í vel­ferðar eða hús­næð­is­málum og að þær leiðir sem ætl­aðar eru til tekju­öfl­unar rík­is­sjóðs auki byrðar launa­fólks. ASÍ horfir til komu­gjalds og hækkun auð­linda­gjalda.

Fáni Alþýðusambands Íslands í kröfugöngu á verkalýðsdaginn. Sambandið hefur ýmislegt út á fjárlagafrumvarp næsta árs að setja.
Fáni Alþýðu­sam­bands Íslands í kröfu­göngu á verka­lýðs­dag­inn. Sam­bandið hefur ýmis­legt út á fjár­laga­frum­varp næsta árs að setja. Mynd: Bára Huld Beck

Stefna rík­is­stjórn­ar­innar í rík­is­fjár­málum sem birt­ist í fjár­laga­frum­varp­inu er ekki til þess fallin að stuðla að sátt á vinnu­mark­aði að mati Alþýðu­sam­bands Íslands. Í umsögn sam­bands­ins við fjár­laga­frum­varp næsta árs segir að í frum­varp­inu megi finna sömu stefnu­mörkun og þá sem birt­ist í fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2023-2027 en sam­bandið gagn­rýndi umrædda stefnu­mörkun í eldri umsögn við fjár­mála­á­ætlun.

„Í umsögn­inni benti ASÍ á að brýnt væri að opin­ber fjár­mál myndu ekki ýta undir þenslu sam­hliða auk­inni verð­bólgu og vax­andi efna­hags­um­svifum. Þar var­aði sam­bandið við því að farin yrði leið nið­ur­skurðar og auk­inna álaga á heim­ili. Sú leið myndi ekki leggja grunn að stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði,“ segir í umsögn ASÍ við fjár­laga­frum­varpið um eldri umsögn­ina.

Samtökin benda á að tekju­öflun rík­is­ins felist einkum í hækkun krónu­tölu­gjalda og nef­skatta til við­bótar við aukna skatt­lagn­ingu á öku­tæki og notkun bif­reiða. Enn fremur reyni stjórn­völd að tempra útgjöld með því að fresta fjár­fest­ingum, auka aðhald og lækka fram­lög til mik­il­vægra mála­flokka.

„Umdeildar skattalækkanir“ hluti vandans

„Með fjár­laga­frum­varpi verður ekki annað séð en að stjórn­völd skili auðu í að bæta afkomu heim­ila í aðdrag­anda kjara­samn­inga. Þar er ekki að finna nauð­syn­legar umbætur í vel­ferðar- eða hús­næð­is­málum og þær leiðir sem valdar eru til tekju­öfl­unar verða til þess að auka byrðar á launa­fólk. Slík stefna mun ekki stuðla að sátt á vinnu­mark­aði,“ segir í umsögn sam­bands­ins.

Sam­bandið bendir á að þörfin á auk­inni gjald­heimtu skýrist að hluta á „umdeildum skatta­lækk­unum í heims­far­aldri m.a. lækkun á banka­skatti og hækkun á frí­tekju­marki fjár­magnstekna.“

Þarna vísar ASÍ meðal ann­ars í breyt­ingar á lögum um tekju­skatt sem sam­þykktar voru í des­em­ber árið 2020 og höfðu í för með sér lækkun á fjár­magnstekju­skatti. Frí­tekju­mark fjár­magnstekju­skatts var þá tvö­faldað, fór úr 150 þús­und krónum í 300 þús­und krónur. Innan frí­tekju­marks­ins má einnig færa arð­greiðslur og sölu­hagnað skráðra hluta­bréfa í kjöl­far laga­breyt­ing­ar­innar en áður féllu ein­ungis vaxta­tekjur af inn­lánum innan frí­tekju­marks­ins.

Að því er fram kemur í umsögn ASÍ hefur þessi breyt­ing helst nýst tíu pró­sentum tekju­hæstu fjár­magns­eig­enda og kostn­að­ur­inn, þ.e. tekju­missir rík­is­sjóðs, vegna útfærsl­unnar numið 1,6 til tveimur millj­örðum króna.

Takmörkun tekjutilflutnings geti skilað milljörðum

ASÍ hefur gert til­lögur að úrbótum á íslensku skatt­kerfi sem „auka myndu skil­virkni skatt­kerf­is­ins og efla tekju­stofna“ í skýrslu sem nefn­ist Skattar og ójöfn­uður. Sam­bandið vísar í þessa skýrslu í umsögn sinni og bendir á leiðir sem eflt gætu tekju­öflun rík­is­ins en jafn­framt tekju­jöfnun.

„Efla má tekju­jöfnun með ólíkum leiðum, t.d. skyn­sam­lega útfærðum stór­eigna­skatti eða breyt­ingum á skatt­lagn­ingu fjár­magnstekna,“ segir í umsögn­inni. Einnig er bent á veik­leika í skatt­kerf­inu sem stafar af hvötum til tekju­flutn­ings sem felst í því að launa­tekjur eru rang­lega skráðar sem fjár­magnstekjur. Að mati sam­bands­ins mætti auka árlegar skatt­tekjur um á bil­inu þrjá til átta millj­arða króna með því að setja reglur sem tak­marka tekju­til­flutn­ing, auk þess sem slíkar reglur gætu styrkt tekju­öflun sveit­ar­fé­laga.

„Hófleg“ komugjöld og skýr rammi um auðlindagjöld

Þá segir sam­bandið að hægt sé að bæta tekju­öflun rík­is­ins með auknum auð­linda­gjöldum og komu­gjaldi sem leggj­ast myndi á komur ferða­manna til lands­ins. „Að lokum var lagt til í skýrsl­unni að mót­aður yrði skýr rammi utan um skatt­lagn­ingu nýt­ingar auð­linda (t.d. fisk­veiði, fisk­eldi, fram­leiðsla raf­orku) Þar var bent á að auð­lind­arenta í fisk­veiði væri metin á 30-70 millj­arða á ári á tíma­bil­inu 2008-2019. Árið 2020 var renta metin á 51 millj­arð en í frum­varpi er áætlað að veiði­gjöld verði 9,8 millj­arðar árið 2023, þar af er 1,5 millj­arður vegna verð­mæta­gjalds í fisk­eldi.“

Að mati ASÍ er skatt­lagn­ing sem ætlað er að mæta ytri áhrifum mik­il­væg og dæmi um slíka skatt­lagn­ingu gæti verið komu­gjöld. Innheimt komu­gjöld gætu þannig greitt fyrir kostnað hins opin­ber sem hlýst af komu ferða­manna, til að mynda vegna slits á vegum, kostnað vegna heil­brigð­is­þjón­ustu og lög­gæslu. Talað hafi verið um komu­gjald upp á þrjú þús­und krónur en slíkt gjald hefði aflað rík­inu 5,3 millj­arða króna fyrir þann fjölda ferða­manna sem hingað hefur komið það sem af er ári.

Styrkja þurfi vaxtabótakerfið og bæta stöðu leigjenda

Að mati ASÍ ætti vaxta­bóta­kerfið að dempa áhrif auk­inna vaxta­gjalda heim­il­anna, „en gerir það ekki.“ Það sé vegna þess að fjár­hæðir vaxta­bóta­kerf­is­ins hafi ekki haldið í við þróun launa og eigna­verðs. Til að mynda hafi vaxta­bætur numið um þremur pró­sentum af vaxta­gjöldum heim­ila árið 2020 sam­an­borið við 20 pró­sent á árunum 2008 til 2010.

Að sama skapi þurfi að bregð­ast við stöð­unni á leigu­mark­aði með efl­ingu hús­næð­is­bóta­kerf­is­ins, aukn­ingu fram­laga til óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga, með því að efla vernd og hús­næð­is­ör­yggi leigj­enda og koma á svo­kall­aðri leigu­bremsu.

Bætur dragist aftur úr lágmarkslaunum

Þá segir sam­bandið í umsögn sinni að boðuð hækkun á bótum almanna­trygg­inga muni ekki brúa þá gliðnun sem átt hafi sér stað milli líf­eyr­is­greiðslna og þró­unar lág­marks­launa en gert er ráð fyrir að bæt­urnar hækki um sex pró­sent. Bæturnar voru hækk­aðar um 3,8 pró­sent í síð­astu fjár­lögum og hækk­aðar um þrjú pró­sent til við­bótar með verð­lags­upp­færslu í sumar.

„Alþýðu­sam­bandið hefur áður bent á að sam­kvæmt lögum um almanna­trygg­ingar ber að hækka bæt­urnar í takt við launa­þróun en þó þannig að þær haldi í við verð­lag. Þetta hefur hins vegar ekki verið reyndin.“

Sam­bandið gagn­rýnir einnig að bætur atvinnu­leys­is­trygg­inga hafi ekki verið hækk­aðar til jafns við þróun bóta almanna­trygg­inga. „ASÍ kallar eftir því að þess­ari þróun verði snúið við og bendir á að grunn­bætur atvinnu­leys­is­trygg­inga eru í dag um 85% af lægsta taxta á vinnu­mark­aði en voru til jafns við lægsta taxta árið 2019,“ segir í umsögn Alþýðu­sam­bands Íslands við frum­varp til fjár­laga fyrir árið 2023 sem skrifuð er af Róberti Farest­veit hag­fræð­ingi og sviðs­stjóra stefnu­mót­unar og grein­ingar ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár