Standa enn við að ekki verði ráðist í frekari sölu á hlutum í Íslandsbanka

Fjár­mála­ráð­herra sagði mik­il­vægt að halda áfram að selja hlut rík­is­ins í Íslands­banka við kynn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins. Í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­flokk­anna frá því í vor segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum bank­ans að sinni. Hún gildir enn.

Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, formenn ríkissjórnarflokkanna, sendu frá sér yfirlýsingu í apríl þar sem segir að ekki verði ráðist í frekari sölu á hlutum ríkissin í Íslandsbanka að sinni. Sú yfirlýsing stendur enn.
Bjarni Bene­dikts­son, Katrín Jak­obs­dóttir og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­menn rík­is­sjórn­ar­flokk­anna, sendu frá sér yfir­lýs­ingu í apríl þar sem segir að ekki verði ráð­ist í frek­ari sölu á hlutum rík­is­sin í Íslands­banka að sinni. Sú yfir­lýs­ing stendur enn. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka. Yfir­lýs­ing for­manna stjórn­ar­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinni, stendur því enn.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um áfram­hald­andi sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka.

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­em­ber er gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­sent hlutur rík­is­ins í Íslands­banka verði seldur fyrir 75,8 millj­arða króna. Það er gert þrátt fyrir yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna og að salan hafi verið sett á ís í vor á meðan að Rík­is­end­ur­skoðun og fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands rann­sök­uðu hluta síð­asta skrefs sem stigið var í sölu­ferl­inu.

Hvorki Rík­is­end­ur­skoðun né fjár­mála­eft­ir­litið hefur birt neins konar nið­ur­stöðu úr rann­sóknum sín­um en rík­is­end­ur­skoð­andi sagði í sam­tali við Kjarnann í byrjun sept­em­ber að að skrif skýrsl­unnar væru á loka­metr­unum. Sam­­­­­kvæmt könnun sem Gallup gerði í vor töldu 88,4 pró­­­­­sent þjóð­­­­­ar­innar að óeðli­­­­­legir við­­­­­skipta­hættir hafi átt sér stað við söl­una á Íslands­banka og 83 pró­­­­­sent þjóð­­­­­ar­innar var óánægð með fram­­­­­kvæmd­ina.

„Að sinni“

Samkvæmt yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna sem send var 19. apríl kom fram að ef þörf kæmi fram fyrir frek­ari rann­sóknir þegar nið­ur­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar og Seðla­bank­ans liggi fyrir muni rík­is­stjórnin beita sé fyrir slíku á vett­vangi Alþingis.

[links]Í yfir­lýs­ing­unni segir: „Ekki verður ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinni.“

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu ætlar rík­­­is­­­stjórnin að selja eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­­sent eign­­­ar­hlut sinn í Íslands­­­­­banka að fullu á næsta ári fyrir 75,8 millj­arða króna. Þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fjár­laga­frum­vapið 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn sagði hann mik­il­vægt að halda áfram að selja hlut rík­is­ins í Íslands­banka til þess að geta fjár­fest í innviðum með þeim pen­ingum í stað þess að taka lán fyrir slíku.

Fyrirvari um frekari sölu í fjárlagafrumvarpinu

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem bent er á ósam­ræmi í yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna og því sem fram kemur í fjár­laga­frum­varp­inu er bent á að í frum­varp­inu er settur fyr­ir­vari við söl­una.

Fyr­ir­var­inn sem vísað er í er sá að verði bank­inn ekki seldur þurfi að fjár­magna með öðrum hætti. Áætlað er að sala eigna muni skila rík­is­sjóði 75,8 millj­örðum króna í tekjur og gangi salan eftir muni skuldir rík­is­sjóðs ná að vera 33 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í lok næsta árs. Verði ekki af sölu verður skulda­hlut­fallið umtals­vert hærra og þá þarf að fjár­magna hluta af halla­rekstri árs­ins með öðrum hætti, og þá vænt­an­lega lán­töku.

Í frum­varp­inu segir að salan á Íslands­banka yrði ekki við­var­andi þáttur í fjár­mögnun rík­is­sjóðs og því muni vera nauð­syn­legt að halda áfram að bæta und­ir­liggj­andi afkomu rík­is­sjóðs á næstu árum til þess að ná megi mark­miðum fjár­mála­stefnu um að stöðva vöxt skulda sem hlut­fall af VLF eigi síðar en árið 2026. „Það er for­sendan fyrir því að hlut­fallið geti farið að lækka aftur í sam­ræmi við fjár­mála­reglur laga um opin­ber fjár­mál. Þrátt fyrir nei­kvætt fram­lag frum­jafn­aðar á árinu 2023 þá minnkar það frá árinu áður og hefur í raun lítil áhrif á skulda­þróun á árinu. Athygli vekur hvað fram­lag vaxta­byrði er stórt. Á meðan svo er þurfa aðrir liðir að bæta það upp ef skuldir eigi að telj­ast sjálf­bærar til lengri tíma. Af þessu má ráða, eins og nefnt var fyrr í þessum kafla, að það er til mik­ils að vinna að ná niður vaxta­byrði rík­is­sjóðs.“

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins er jafn­framt bent á þá fyr­ir­vara að í frum­varp­inu segir „ef haldið verður áfram sölu hluta í Íslands­banka“ og að talað sé um mögu­lega frek­ari sölu eign­ar­hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárlagafrumvarp

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár