Skýrsla Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka „á lokametrunum“

Rík­is­end­ur­skoðun er að klára að skrifa skýrslu sína um sölu á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði með afslætti. Þegar því er lokið á eftir að rýna hana og senda í umsagn­ar­ferli. Upp­haf­lega átti að skila skýrsl­unni í júní.

Höfuðstöðvar Íslandsbanka
Höf­uð­stöðvar Íslands­banka Mynd: Íslandsbanki

Skrif skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um stjórn­sýslu­út­tekt sem emb­ættið hefur fram­kvæmt á sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum er nú á loka­metr­unum. Þetta stað­festir Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi í sam­tali við Kjarnann.

[links]Hann segir að þegar búið sé að skrifa skýrsl­una fari hún í rýni og umsagn­ar­ferli. „Hún verður ekki send for­seta Alþingis fyrr en að því loknu. Ég vil ekki nefna ein­hverja sér­staka dag­setn­ingu í mán­uð­inum í því sam­bandi; eins og sum­arið hefur sýnt er þetta ýmsum breytum háð.“

Þing­störf hefj­ast að nýju 13. sept­em­ber næst­kom­andi, eða eftir viku.

Því er ljóst að ekki mun þurfa að kalla þing sér­stak­lega saman úr sum­ar­fríi til að ræða skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar eins og stefnt hafði verið að. Skýrslan verður ekki afhent for­seta Alþingis áður en þing verður sett.

Nið­ur­staða átti að liggja fyrir í júní

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en hann bað for­m­­­lega um gerð hennar 7, apríl síð­­­ast­lið­inn og Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun sam­­­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­far­ið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­ferlið var harð­lega gagn­rýnt víða í sam­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­­ast um hvort fram­­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­­­legg stjórn­­­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­­laga­­­­nefnd og efna­hags- og við­­­­skipta­­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­­ar.

[adspot]Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­­­­inni.

Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­­­kvæmd úttekt­­­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­­­ur­­­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­­­greindra laga er rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­andi sjálf­­­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­­­kvæmt lög­­­­un­­­­um. Stefnt er að því að nið­­­­ur­­­­staða úttekt­­­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­­­í­mán­uði 2022.“

Júní varð júlí sem varð ágúst sem varð september

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda í stað Skúla Egg­erts Þórð­­­ar­­­son­­­ar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­­­neyt­is­­­stjóri í nýju við­­­skipta- og menn­ing­­­ar­ráðu­­­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda á þingi fyrir maí­­­lok.

Því var sú staða uppi að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun var falið að ráð­­­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­­­fé­lags­­­máli síð­­­­­ari ára, þar sem 88,4 pró­­­sent þjóð­­­ar­innar telja sam­­­kvæmt könnun Gallup að óeðli­­­legir við­­­skipta­hættir hafi átt sér stað og 83 pró­­­sent þjóð­­­ar­innar er óánægt með fram­­­kvæmd­ina, án þess að búið væri að skipa nýjan rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda.

Guð­­­mundur Björg­vin var starf­andi rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­­­ist eftir emb­ætt­in­u.

Það frestað­ist að ganga frá kosn­­­ingu rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarn­inn eftir Guð­­­mundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­­­­­banka­­­söl­una til Alþingis í síð­­­­­ustu viku jún­­í­mán­að­­­ar. Dag­inn eft­ir, þann 9. júní, var Guð­­­mundur Björg­vin kos­inn nýr rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­and­i.

Þegar þing­fundum var frestað 16. júní síð­­ast­lið­inn var það gert til að þing­­menn gætu verið í sum­­­ar­fríi til 13. sept­­em­ber, eða í þrjá mán­uði. For­­seti Alþing­is, Birgir Ármanns­­son, bað þing­­menn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til fram­halds­­funda þegar þing­inu hefur borist skýrsla rík­­is­end­­ur­­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­­is­ins í Íslands­­­banka.

Skýrslu­skilin frest­uð­ust þó fljótt. Þegar fjöl­miðlar spurð­ust fyrir um stöðu mála seinni hluta júní­mán­aðar feng­ust þau svör að búist væri við því að skýrslan yrði til­búin fyrir lok júlí­mán­að­ar, fyrir versl­un­ar­manna­helg­i.

Þegar leið að versl­un­ar­manna­helgi spurð­ist Kjarn­inn fyrir um afdrif skýrsl­unnar og fékk þá þau svör að hún yrði til­búin fyrri hluta ágúst­mán­að­ar.

Seint í ágúst sagði Birgir Ármanns­son, for­seti Alþing­is, svo við RÚV að hann bygg­ist við skýrsl­una um kom­andi mán­að­ar­mót. Skömmu síðar var greint frá því að skýrslan myndi birt­ast upp úr mán­að­ar­mót­unum ágúst/sept­em­ber. Nú er staðan sú að henni verður skilað til for­seta Alþingis ein­hvern tím­ann í sept­em­ber.

Kjósendur Sjálfstæðisflokks vildu úttekt Ríkisendurskoðunar

Sú ákvörðun Bjarna Bene­dikts­­sonar að fela Rík­­is­end­­ur­­skoðun að gera úttekt á banka­­söl­unni var harð­­lega gagn­rýnd af sumum stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­þing­­mönn­um, sem vildu láta skipa rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis með mun víð­tæk­­ari heim­ildir til að fara ofan í saumana á söl­unn­i. Spil­aði þar meðal ann­ars inn í að faðir Bjarna, Bene­dikt Sveins­son, var á meðal þeirra 207 fjár­festa sem fengu að kaupa í Íslands­banka.

Í könnun sem Gallup birti seint í apríl kom fram að 73,6 pró­­­sent lands­­­manna taldi að það ætti að skipa rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd en 26,4 pró­­­sent taldi nægj­an­­­legt að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun gerði úttekt á söl­unni. Kjós­­­endur Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­­­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­unar nægði til. Tæp­­­lega þriðj­ungur kjós­­­enda hinna stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­­­endur stjórn­­­­­ar­and­­­stöð­u­­­flokka voru nær allir á því að rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd sé nauð­­­syn­­­leg.

Hlut­ur­inn hefur hækkað um tæpa sex millj­arða

Sá hópur fjár­festa sem var val­inn til að taka þátt í lok­aða útboð­inu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka borg­aði 117 krónur fyrir hvern hlut. Heild­ar­upp­hæðin var 52,65 millj­arðar króna. Það var rúm­­lega fjögur pró­­sent undir skráðu gengi bank­ans á þeim tíma og afslátt­­ur­inn rök­studdur með því að það væri alvana­­legt alþjóð­­lega þegar stór hlutur í skráðu félagi væri seldur með til­­­boðs­­fyr­ir­komu­lagi að gefa afslátt.

[adspot]Við lokun mark­aða í gær var gengi bréfa í Íslands­banka 129,8 krón­ur, eða 10,9 pró­sent yfir því verði sem hóp­ur­inn fékk að kaupa á í mars. Virði þess hlutar sem var seldur er nú því 58,4 millj­arðar króna, eða um 5,8 millj­örðum krónum meiri en það var í mar­s.

Ljóst er að hluti þeirra sem tóku þátt í útboð­inu hafa þegar selt hlut­ina sína með hagn­aði. Nokkrum vikum eftir útboðið lá fyrir að að minnsta kosti 34 fjár­festar hefði selt og að nöfn 60 fjár­festa birt­ust ekki á hlut­hafa­skrá af ýmsum ástæð­u­m.

Hlut­höfum hefur fækkað um 40 pró­sent

Ríkið hóf að selja hluti í Íslands­banka í fyrra, þegar 35 pró­sent hlutur var seld­ur, og bank­inn var skráður á markað í júní 2021. Þá voru hlut­hafar í bank­anum 24 þús­und tals­ins. Í almennu útboði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar var þátt­taka almenn­ings mikil enda þótti útboðs­geng­ið, 79 krónur á hlut, vera afar lágt miðað við efna­hags­reikn­ing bank­ans og stöðu mála á hluta­bréfa­mark­aði á þeim tíma. Á fyrsta degi við­skipta hækk­aði verðið enda um 20 pró­sent og í dag er það 68 pró­sent hærra en það var í útboð­inu.

Þegar Íslands­­­banki birti upp­­­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í lok síð­asta mán­aðar kom fram að hlut­hafar í bank­­anum séu nú 14.300 tals­ins. Þeim hefur því fækkað um 9.700 frá því í júní í fyrra, eða um 40 pró­­sent. ­Kaup­endur af þorra þeirra bréfa sem seld hafa verið eru íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­ir, í eigu íslensks almenn­ings, sem eiga að minnsta kosti sam­an­lagt um 28 pró­­sent hlut í bank­an­­um.

Bjarni rólegur

Bjarni Bene­dikts­son ræddi stórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar í við­tali við Dag­mál á mbl.is í síð­asta mán­uði. Þar sagð­ist hann bíða rólegur eftir skýrsl­unni. „Það skiptir mig í sjálfu sér engu máli hvort hún komi um miðjan mán­uð­inn, í lok mán­aðar eða í byrjun sept­­em­ber. Umræðan fer bara fram þegar það ger­ist.“

Hann hafi hugsað mikið um fram­­kvæmd­ina á banka­­söl­unni frá því að þingið lauk störfum og ekki séð margt í henni sem ráðu­­neyti hans bar ábyrgð á sem þau hefðu viljað gera öðru­­vísi. „„Við höfum bent á nokkra fram­­kvæmd­­ar­­lega þætti sem eflaust koma fram í skýrsl­unni. En við verðum að sjá hver megin nið­­ur­­staðan verður þar.“

Bjarni sagði í við­tal­inu við Dag­­mál að hann yrði áfram sem áður tals­­maður þess að ríkið dragi úr eign­­ar­að­ild sinni í Íslands­­­banka, þegar mark­aðs­að­­stæður væru góðar og umræðum og upp­­­gjöri við skýrslu Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar væri lok­ið, en ríkið á enn 42,5 pró­sent hlut í bank­an­um. „En mínar vænt­ingar standa til þess að við getum síðan í fram­hald­inu haldið áfram að selja ríkið úr Íslands­­­banka þar sem við erum orðin minn­i­hluta­eig­andi. Og mér finnst nokkuð ljóst að við munum fara leið mark­að­­ar­ins. Það var kannski helst það sem var gagn­rýnt síð­­­ast. Að það hefði ekki verið opið fyrir alla að taka þátt.“

Helst myndi hann ekki ekki bara vilja losa ríkið úr eign­­ar­hluta í Íslands­­­banka heldur líka selja hlut í Lands­­bank­­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut. „Þó ekki væri nema að tryggja höf­uð­­stöðvar kerf­is­lega mik­il­vægs banka á Ísland­i.“

Ríkið á sem stendur 98,2 pró­­sent hlut í Lands­­bank­an­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár