Erfitt að gera stjórnarsáttmálann – Hélt á einum tímapunkti að viðræðum yrði hætt

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sér ekk­ert sem ráðu­neyti hans hefði getað gert öðru­vísi við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Hann vill halda áfram með söl­una og selja hlut í Lands­bank­anum þegar upp­gjöri við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er lokið.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það hafi verið rétt ákvörðun að mynda for­dæma­lausa rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki árið 2017. Honum hafi líka fund­ist það rétt að láta reyna á end­ur­nýjað stjórn­ar­sam­starf eftir síð­ustu kosn­ingar. „Það var ekk­ert sjálf­sagt. Það var á köflum mjög erfitt að gera stjórn­ar­sátt­mál­ann. Og á einum tíma­punkti hélt ég að við myndum standa upp frá þessu og bara hætta þessu.“

Af því varð þó ekki og Bjarni segir að það hafi byggt á því að leið­togar flokk­anna geti talað saman og fundið leiðir til að leysa úr málum. „Við munum halda áfram að gera það.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali við Bjarna í Dagmálum á mbl.is.

Þar seg­ist Bjarni vera meira hrif­inn af tveggja flokka stjórnum en fjöl­flokka­stjórnum. Eðli­legra væri að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn starf­aði með flokkum sem stæðu honum nær mál­efna­lega. Sú staða sem upp sé komin í íslenskum stjórn­málum, þar sem tveggja flokka stjórnir eru ómögu­legar, átta flokkar eru á þingi og einn til við­bótar hafi ekki verið langt frá því að ná inn, geri slíkt þó ómögu­legt.

[adspot]Að mati Bjarna er þetta að stóru leyti sjálf­sköpuð staða hjá stjórn­mála­flokk­unum sem hafi orðið til vegna þess að fram­lög úr rík­is­sjóði til þeirra hafi verið stór­aukin og reglur þannig gerðar að flokkar sem ná yfir ákveð­inn þrösk­uld, en ekki inn á þing, fái samt sem áður á annað hund­rað millj­ónir króna á kjör­tíma­bili til að halda sér lif­andi. „Við erum að standa rosa­lega vel með stjórn­mála­hreyf­ingum í land­inu og kannski er það ein ástæða þess að þeim hefur fjölgað. Ég held að sam­fé­lags­miðla­um­ræðan hafi líka haft áhrif á það hvernig sam­talið er milli stjórn­mála og almenn­ings í land­inu.“

Í við­tal­inu segir Bjarni að það sé hægt að ímynda sér að erf­iðar aðstæður komi upp í stjórn­ar­sam­starf­inu ef yfir­vof­andi kjara­samn­inga­við­ræður í haust gangi illa og áherslur stjórn­ar­flokk­anna um við­brögð við þeim fari ekki saman. „„En í augna­blik­inu er það ekki að ger­ast og ég ætla að leyfa mér að vera bjart­sýn­is­maður. Ég hef trú á stjórn­inni og getu hennar til að leysa flókin vanda­mál.“

Sér ekki hvað ráðuneytið hafi getað gert öðruvísi

Andrés Magn­ús­son, þátta­stjórn­andi Dagmála og full­trúi rit­stjóra á Morg­un­blað­inu, spurði Bjarna um stjórn­sýslu­út­tekt sem Rík­is­end­ur­skoðun vinnur um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og hvort haustið yrði „ekki bara und­ir­lagt af þeirri vit­leysu“.

Bjarni sagð­ist bíða rólegur eftir skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. „Það skiptir mig í sjálfu sér engu máli hvort hún komi um miðjan mán­uð­inn, í lok mán­aðar eða í byrjun sept­em­ber. Umræðan fer bara fram þegar það ger­ist.“

[links]Hann hafi hugsað mikið um fram­kvæmd­ina á banka­söl­unni frá því að þingið lauk störfum og ekki séð margt í henni sem ráðu­neyti hans bar ábyrgð á sem þau hefðu viljað gera öðru­vísi. „„Við höfum bent á nokkra fram­kvæmd­ar­lega þætti sem eflaust koma fram í skýrsl­unni. En við verðum að sjá hver megin nið­ur­staðan verður þar.“

Rík­is­stjórnin brást við gagn­rýni á söl­una með því að boða að Banka­sýsla rík­is­ins, sú stofnun sem heldur á hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, yrði lögð niður.

Bjarni sagð­ist vera búinn að vera með það mál til skoð­unar og að hann sé að und­ir­búa að fara með það inn í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, þar sem hann situr ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Lilju Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Það gæti gerst eftir ein­hverjar vikur. „Þar er maður að hugsa um það að á sínum tíma var hluta­bréfum í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sér­stak­lega komið fyrir í Banka­sýsl­unni. En ríkið á auð­vitað fjöld­ann allan af öðrum hluta­bréfum. Það er ekk­ert sér­stakt sem kallar á það til lengra tíma litið að ákveðin teg­und hluta­bréfa rík­is­ins sé geymd í þess­ari teg­und stofn­unar á meðan að önnur eru til dæmis inni í ráðu­neyt­inu. Mér finnst kom­inn tími til að fara fag­lega yfir það hvernig ríkið heldur á þessum hluta­bréfum og hagar sér sem eig­andi. Meðal ann­ars varð­andi skip­anir í stjórnir.“

Ríkið sem eig­andi hluta­bréf­anna mætti gá betur eftir þessum eign­ar­hlutum og setja meiri við­mið og kröfur. Þar eigi hann við að stjórn­mála­flokkar og þingið geti ekki skipað hvern sem er í stjórnir, heldur að það verði að mæta ákveðnum hæfn­is­kröfum.

Vill áfram selja hluti í ríkisbönkum

Í sömu yfir­lýs­ingu og boð­aði nið­ur­lagn­ingu Banka­sýslu rík­is­ins, sem send var út 19. apríl af for­mönnum stjórn­ar­flokk­anna, þeim Bjarna, Katrínu Jak­obs­dóttur og Sigurði Inga Jóhanns­syni, kom einnig fram að ekki yrði ráð­ist í frek­ari sölu á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka „að sinni“. Þar sagði enn­fremur: „Þegar ný lög­gjöf liggur fyrir mun ákvörðun um mögu­lega sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verða tekin fyrir á Alþingi. Rík­is­stjórnin leggur hér eftir sem hingað til áherslu á óbreytt eign­ar­hald rík­is­ins á hlut sínum í Lands­bank­anum.“

Rík­is­sjóður á sem stendur 42,5 pró­sent hlut í Íslands­banka.

Bjarni sagði í við­tal­inu við Dagmál að hann yrði áfram sem áður tals­maður þess að ríkið dragi úr eign­ar­að­ild sinni í Íslands­banka, þegar mark­aðs­að­stæður væru góðar og umræðum og upp­gjöri við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar væri lokið. „En mínar vænt­ingar standa til þess að við getum síðan í fram­hald­inu haldið áfram að selja ríkið úr Íslands­banka þar sem við erum orðin minni­hluta­eig­andi. Og mér finnst nokkuð ljóst að við munum fara leið mark­að­ar­ins. Það var kannski helst það sem var gagn­rýnt síð­ast. Að það hefði ekki verið opið fyrir alla að taka þátt.“

Helst myndi hann ekki ekki bara vilja losa ríkið úr eign­ar­hluta í Íslands­banka heldur líka selja hlut í Lands­bank­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut. „Þó ekki væri nema að tryggja höf­uð­stöðvar kerf­is­lega mik­il­vægs banka á Íslandi.“

Ríkið á sem stendur 98,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár