Enn stefnt að því að skila úttektinni til þingsins í þessum mánuði

Rík­is­end­ur­skoð­andi segir að ennþá sé stefnt að því að skila úttekt á sölu rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlut í Íslands­banka til for­seta Alþingis núna í ágúst­mán­uði. Þá má vænta þess að þing­menn verði kall­aðir úr sum­ar­fríi til að fara yfir málin.

Guðmundur Björgvin Helgason er ríkisendurskoðandi.
Guð­mundur Björgvin Helgason er rík­is­end­ur­skoð­andi. Mynd: Ríkisendurskoðun

Rík­is­end­ur­skoðun reiknar enn með því að skila for­seta Alþingis skýrslu um sölu á 22,5 pró­senta hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka í þessum mán­uði, en þetta kemur fram í skrif­legu svari Guð­mundar Björg­vins Helga­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Um er að ræða stjórn­sýslu­út­tekt á söl­unni, sem fór fram fór með lok­uðu útboði til alls 207 fjár­festa, sem greiddu rík­inu 52,65 millj­arða króna fyrir hlut­inn í bank­anum.

Guð­mundur Björgvin segir í svari til Kjarnans að það ráð­ist af með­förum Alþingis hvenær skýrslan verði birt en til stendur að þing verði kallað saman til þess að fara yfir málið þegar skýrslan lendir og þing­menn þá kall­aðir úr sum­ar­fr­íum sínum, sem að öðrum kosti myndu vara til 13. sept­em­ber.

Fyrst átti verkið að klárast í lok júní

Eins og aðrar skýrslur frá Rík­is­end­ur­skoðun verður úttektin tekin til umfjöll­unar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis. Upp­haf­lega átti skýrslu­gerðin að klár­ast í júní, en síðar var boðað að skýrslan yrði ekki til­búin fyrr en seint í júlí­mán­uði.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra bað for­m­­lega um að Rík­is­end­ur­skoðun myndi ráð­ast í verkið þann 7. apríl síð­­ast­lið­inn. Í bréfi ráðu­­­neyt­is­ins þar sem bónin um skýrslu­gerð­ina var sett fram kom fram að umræða hefði skap­­­ast um hvort fram­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­legg stjórn­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­laga­­­nefnd og efna­hags- og við­­­skipta­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­ar. Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir að verða við beiðn­­­inni.

[adspot]

Í bréfi sem stofn­unin sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­­kvæmd úttekt­­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­­ur­­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­­greindra laga er rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­andi sjálf­­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­­kvæmt lög­­­un­­­um. Stefnt er að því að nið­­­ur­­­staða úttekt­­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­­í­mán­uði 2022.“[links]

Á þessum tíma­punkti átti Alþingi enn eftir að kjósa nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda, en Guð­mundur Björgvin var starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi á þessum tíma og var að end­ingu kos­inn nýr rík­is­end­ur­skoð­andi þann 9. júní.

73 prósent landsmanna töldu að skipa þyrfti rannsóknarnefnd Alþingis

Sú ákvörðun Bjarna Bene­dikts­­sonar að fela Rík­­is­end­­ur­­skoðun að gera úttekt á banka­­söl­unni var harð­­lega gagn­rýnd af sumum stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­þing­­mönn­um, sem vildu láta skipa rann­­sókn­­ar­­nefnd Alþingis með víð­tæk­­ari heim­ildir til að fara ofan í saumana á söl­unn­i.

Í grein sem Jóhann Páll Jóhanns­­son, þing­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, birti á Kjarn­­anum í apríl sagði meðal ann­­ars: „Það má vel vera að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun sé ágæt­­­lega til þess fallin að yfir­­­fara ákveðna þætti er varða söl­una á Íslands­­­­­banka. En ef ætl­­­unin er að rann­saka atburð­ina frá mörgum hlið­um, laga­­­leg­um, sið­­­ferð­i­­­leg­um, póli­­­tískum og stjórn­­­­­sýslu­­­leg­um, og „velta við öllum stein­um“ eins og jafn­­­vel stjórn­­­­­ar­liðar kalla eftir er hins vegar ljóst að rann­­­sókn­­­ar­heim­ildir Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­unar duga skammt og verk­efnið fellur bein­línis illa að starfs­sviði stofn­un­­­ar­inn­­­ar. Þá er óheppi­­­legt að úttektin fari fram sam­­­kvæmt sér­­­stakri beiðni frá fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sama manni og hefur for­­­göngu um banka­­­söl­una sem er til athug­un­­­ar.“

Í könnun sem Gallup birti seint í apríl kom fram að 73,6 pró­­­sent lands­­­manna teldu að það ætti að skipa rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd en 26,4 pró­­­sent taldi nægj­an­­­legt að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun gerði úttekt á söl­unni.

Kjós­­­endur Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­­­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­unar nægði til. Tæp­­­lega þriðj­ungur kjós­­­enda hinna stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­­­endur stjórn­­­­­ar­and­­­stöð­u­­­flokka voru nær allir á því að rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd væri nauð­­­syn­­­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár