Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu Íslandsbanka frestast aftur – Kemur í ágúst

Þegar Rík­is­end­ur­skoðun tók að sér að gera stjórn­sýslu­út­tekt á sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur mán­uðum ætl­aði hún að skila skýrslu í júní. Síðan átti að skila henni fyrir versl­un­ar­manna­helgi. Nú er hún vænt­an­leg í ágúst.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Skýrslan er gerð að hans beiðni.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Skýrslan er gerð að hans beiðni. Mynd: Bára Huld Beck

Skýrsla um nið­ur­stöðu stjórn­sýslu­út­tektar Rík­is­end­ur­skoð­unar á sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­arða króna í mars síð­ast­liðnum verður ekki til­búin seint í júlí, líkt og boðað hafi verið. Þess í stað er reiknað með að skýrslan verði til­búin í fyrri hluta ágúst­mán­aðar.

[links]Þetta kemur fram í svari Guð­mundar Björg­vins Helga­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Upp­haf­lega átti skýrslu­gerðin að klár­ast í júní.

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en hann bað form­lega um gerð hennar 7, apríl síð­ast­lið­inn og Rík­is­end­ur­skoðun sam­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­far­ið. Í bréfi ráðu­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­ast um hvort fram­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­legg stjórn­­­valda sem borið var undir fjár­­laga­­nefnd og efna­hags- og við­­skipta­­nefnd Alþingis til umsagn­­ar.

Rík­­is­end­­ur­­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­­inni.

Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­­kvæmd úttekt­­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­­ur­­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­­greindra laga er rík­­is­end­­ur­­skoð­andi sjálf­­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­­kvæmt lög­­un­­um. Stefnt er að því að nið­­ur­­staða úttekt­­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í jún­í­mán­uði 2022.“

Til stendur að kalla Alþingi saman til að ræða skýrsluna

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda í stað Skúla Egg­erts Þórð­ar­son­ar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­neyt­is­stjóri í nýju við­skipta- og menn­ing­ar­ráðu­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda á þingi fyrir maí­lok.

[adspot]Því var sú staða uppi að Rík­is­end­ur­skoðun var falið að ráð­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­fé­lags­máli síð­ari ára, þar sem 88,4 pró­sent þjóð­ar­innar telja sam­kvæmt könnun Gallup að óeðli­legir við­skipta­hættir hafi átt sér stað og 83 pró­sent þjóð­ar­innar er óánægt með fram­kvæmd­ina, án þess að búið væri að skipa nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda.

Guð­mundur Björg­vin var starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­ist eftir emb­ætt­in­u.

Það frestað­ist að ganga frá kosn­ingu rík­is­end­ur­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarn­inn eftir Guð­mundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­banka­söl­una til Alþingis í síð­ustu viku júní­mán­að­ar. Dag­inn eft­ir, þann 9. júní, var Guð­mundur Björg­vin kos­inn nýr rík­is­end­ur­skoð­and­i.

Þegar þing­fundum var frestað 16. júní síð­ast­lið­inn var það gert til að þing­menn gætu verið í sum­ar­fríi til 13. sept­em­ber, eða í þrjá mán­uði. Forseti Alþingis, Birgir Ármanns­son, bað þing­menn hins vegar um að vera undir það búna að Alþingi yrði kallað saman til fram­halds­funda þegar þing­inu hefur borist skýrsla rík­is­end­ur­skoð­anda um sölu á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka.

Kjósendur Sjálfstæðisflokks þeir einu sem töldu úttekt nægja til

Sú ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar að fela Rík­is­end­ur­skoðun að gera úttekt á banka­söl­unni var harð­lega gagn­rýnd af sumum stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönn­um, sem vildu láta skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis með mun víð­tæk­ari heim­ildir til að fara ofan í saumana á söl­unn­i.

Í grein sem Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, birti á Kjarn­anum í apríl sagði meðal ann­ars: „Það má vel vera að Rík­­is­end­­ur­­skoðun sé ágæt­­lega til þess fallin að yfir­­fara ákveðna þætti er varða söl­una á Íslands­­­banka. En ef ætl­­unin er að rann­saka atburð­ina frá mörgum hlið­um, laga­­leg­um, sið­­ferð­i­­leg­um, póli­­tískum og stjórn­­­sýslu­­leg­um, og „velta við öllum stein­um“ eins og jafn­­vel stjórn­­­ar­liðar kalla eftir er hins vegar ljóst að rann­­sókn­­ar­heim­ildir Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar duga skammt og verk­efnið fellur bein­línis illa að starfs­sviði stofn­un­­ar­inn­­ar. Þá er óheppi­­legt að úttektin fari fram sam­­kvæmt sér­­stakri beiðni frá fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sama manni og hefur for­­göngu um banka­­söl­una sem er til athug­un­­ar.“

Í könnun sem Gallup birti seint í apríl kom fram að 73,6 pró­­sent lands­­manna taldi að það ætti að skipa rann­­sókn­­ar­­nefnd en 26,4 pró­­sent taldi nægj­an­­legt að Rík­­is­end­­ur­­skoðun gerði úttekt á söl­unni. Kjós­­endur Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar nægði til. Tæp­­lega þriðj­ungur kjós­­enda hinna stjórn­­­ar­­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­­sókn­­ar­­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­­endur stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokka voru nær allir á því að rann­­sókn­­ar­­nefnd sé nauð­­syn­­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár