Ríkisendurskoðun afhendir ekki upplýsingar um afmörkun úttektar á bankasölunni

Búist er við því að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verði gerð opin­ber seint í næsta mán­uði, eftir fyr­ir­huguð þing­lok. Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvernig úttektin væri afmörkuð en fékk ekki.

22,5 prósent hlutur ríkisins í Íslandsbanka var seldur 22. mars síðastliðinn.
22,5 pró­sent hlutur rík­is­ins í Íslands­banka var seldur 22. mars síð­ast­lið­inn. Mynd: Íslandsbanki

Rík­is­end­ur­skoðun afhendir ekki end­ur­skoð­un­ar­á­ætlun sína vegna yfir­stand­andi úttektar á útboði og sölu á hlut í Íslands­banka. Kjarninn fal­að­ist eftir því að fá áætl­un­ina í kjöl­far þess að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd var gerð grein fyrir því við hvað úttektin mun afmarkast.

[links]Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, Guð­mundur Björgvin Helgason, að um vinnu­skjal sé að ræða og sam­kvæmt ákvæði laga um rík­is­end­ur­skoð­anda geti slík gögn – skýrslur grein­ar­gerðir og önnur gögn – fyrst orðið aðgengi­leg þegar Alþingi hefur fengið þau afhent. Í ákvæð­inu stendur líka: „ Rík­is­end­ur­skoð­andi getur enn fremur ákveðið að gögn sem hafa verið send stjórn­völdum við und­ir­bún­ing ein­stakra athug­ana og meðan á þeim stendur verði ekki aðgengi­leg.“

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið óskaði eftir því skrif­lega þann 7. apríl að Rík­is­end­ur­skoðun myndi gera úttekt á því hvort hvort útboð og sala rík­is­ins á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka sem fram fór þann 22. mars síð­ast­lið­inn hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­háttum.

Í bréfi ráðu­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­ast um hvort fram­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­legg stjórn­valda sem borið var undir fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis til umsagnar.

Rík­is­end­ur­skoðun ákvað dag­inn eftir, þann 8. apríl, að verða við beiðn­inni. Í bréfi sem hún sendi til Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­kvæmd úttekt­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­ur­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­greindra laga er rík­is­end­ur­skoð­andi sjálf­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­kvæmt lög­unum. Stefnt er að því að nið­ur­staða úttekt­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í júní­mán­uði 2022.“

Gert ráð fyrir niðurstöðu í lok júní

Vísir greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að gert sé ráð fyrir að nið­ur­stöður úttekt­ar­innar verði kynntar í lok júní­mán­aðar. Starfs­lok Alþingis eru áætlun 10. júní sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins. Þó má búast við að þing verði kallað saman til að ræða nið­ur­stöðu úttekt­ar­innar.

[adspot]Banka­sýslan, sem er undir í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar, lét LOGOS vinna fyrir sig minn­is­blað sem gert var opin­bert 18. maí síð­ast­lið­inn. Í minn­is­blað­inu var kom­ist að þeirri nið­­ur­­stöðu að ákvörðun um tak­­marka þátt­­töku í útboð­inu á 22,5 pró­­senta hlut íslenskra rík­­is­ins í Íslands­banka við svo­­kall­aða hæfa fjár­­­festa án þess að gerð yrði krafa um lág­­marks­til­­boð hafi ekki falið í sér brot gegn jafn­­ræð­is­­reglu. Í útboð­inu var hlut­­ur­inn seldur til alls 207 fjár­­­festa undir þáver­andi mark­aðsvirði.

Þá taldi lög­­­manns­­stofan að full­nægj­andi ráð­staf­­anir hafi verið gerðar af hálfu Banka­­sýsl­unnar til að tryggja jafnt aðgengi hæfra fjár­­­festa að útboð­inu í laga­­legu til­­liti og að ákvörðun hennar um að selja ekki hlut til Lands­­bank­ans og Kviku banka, sem gerðu til­­­boð fyrir hönd velt­u­­bóka sinna, hafi stuðst við mál­efna­­leg sjón­­­ar­mið og hafi einnig verið í sam­ræmi við jafn­­ræð­is­­reglu.

LOGOS var ráðið sem inn­­­lendur lög­­fræð­i­­legur ráð­gjafi Banka­­sýsl­unnar í tengslum við sölu­­með­­­ferð­ina á hlutnum í Íslands­­­banka 18. febr­­úar síð­­ast­lið­inn, en hlut­­ur­inn í bank­­anum var seldur með til­­­boðs­­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars. Minn­is­­blað hennar fjallar því um lög­­­mæti sölu­­með­­­ferðar sem stofan vann sjálf að.

Þorri almennings vildi rannsóknarnefnd

Hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar taldi ekki nægi­lega langt gengið að láta Rík­is­end­ur­skoðun fram­kvæma úttekt á banka­söl­unni og vildu að rann­sókn­ar­nefnd þings­ins yrði skipuð til að rann­saka málið.

Í könnun sem Gallup lét gera, og var birt í lok apríl, kom fram að 87,2 pró­sent lands­manna teldu að illa hefði verið staðið að útboði og sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Alls 73,6 pró­sent sögðu að það ætti að skipa rann­sókn­ar­nefnd en 26,4 pró­sent töldu nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun geri úttekt á söl­unni. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks skáru sig úr hvað þetta varðar, en 74 pró­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar nægði. Aðspurð hvort óeðli­legir við­skipta­hættir hafi verið við­hafðir við söl­una sögðu 88,4 pró­sent svar­enda svo vera og 68,3 pró­sent töldu að sölu­ferlið hafi falið í sér lög­brot.

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands er einnig með sölu­ferlið til skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár