Vill fá að vita hvað fjármálaráðuneytið og Bankasýslan hafa borgað LOGOS frá 2017

Þing­maður hefur lagt fram fyr­ir­spurn um greiðslu til lög­manns­stofu sem vann minn­is­blað fyrir Banka­sýsl­una um að jafn­ræði hafi ríkt við söl­una á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka. Sama lög­manns­stofa var lög­fræði­legur ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar við söl­una.

Kristrún Frostadóttir og Jóhann Páll Jóhannsson hafa bæði velt fyrir sér greiðslum til LOGOS vegna vinnu fyrir Bankasýslu ríkisins.
Kristrún Frosta­dóttir og Jóhann Páll Jóhanns­son hafa bæði velt fyrir sér greiðslum til LOGOS vegna vinnu fyrir Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur lagt fram skrif­lega fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þar sem hann spyr um greiðslur til LOGOS lög­manns­þjón­ustu vegna vinnu fyrir Banka­sýslu rík­is­ins.

Jóhann Páll vill meðal ann­ars fá að vita hvað Banka­sýslan, sem heyrir undir ráðu­neyti Bjarna, greiddi fyrir vinnu við lög­fræði­á­lit um jafn­ræði við sölu­með­ferð eign­ar­hluta í Íslands­banka sem dag­sett er 11. maí 2022 og hvort LOGOS hafi verið látið meta hvort sölu­með­ferð á 22,5 pró­sent eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka stæð­ist reglur um jafn­ræði áður en salan fór fram. Þá vill þing­mað­ur­inn fá að vita hvers vegna LOGOS, sem var inn­lendur lög­fræði­legur ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar í sölu­ferl­inu, hafi verið falið að leggja mat á lög­mæti sölu­með­ferð­ar­innar sem stofan ráð­lagði Banka­sýsl­unni um og hvers vegna ekki hafi verið gætt jafn­ræðis gagn­vart fjöl­miðlum þegar lög­fræði­á­litið var birt 18. maí síð­ast­lið­inn. Álitið var sent á fjöl­miðla klukkan sex að morgni en hafði þá þegar birst á for­síðu Morg­un­blaðs­ins auk þess sem ítar­leg frétt birt­ist á Innherja á Vísi klukkan 06:43.

Að lokum vill Jóhann Páll fá yfir­lit yfir allar greiðslur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins ann­ars vegar og Banka­sýslu rík­is­ins hins vegar til LOGOS frá árinu 2017 og fram til dags­ins í dag.

Ráðgjafinn komst að þeirri niðurstöðu að jafnræði hefði ríkt

Í minn­is­blað­inu sem LOGOS vann fyrir Banka­sýslu rík­is­ins var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ákvörðun um tak­marka þátt­töku í útboði á 22,5 pró­senta hlut íslenskra rík­is­ins við svo­kall­aða hæfa fjár­festa án þess að gerð yrði krafa um lág­marks­til­boð hafi ekki falið í sér brot gegn jafn­ræð­is­reglu. Í útboð­inu var hlut­ur­inn seldur til alls 207 fjár­festa undir mark­aðsvirði.

Þá telur lög­manns­stofan að full­nægj­andi ráð­staf­anir hafi verið gerðar af hálfu Banka­sýsl­unnar til að tryggja jafnt aðgengi hæfra fjár­festa að útboð­inu í laga­legu til­liti og að ákvörðun hennar um að selja ekki hlut til Lands­bank­ans og Kviku banka, sem gerðu til­boð fyrir hönd veltu­bóka sinna, hafi stuðst við mál­efna­leg sjón­ar­mið og hafi einnig verið í sam­ræmi við jafn­ræð­is­reglu.

[adspot]LOGOS var ráðið sem inn­lendur lög­fræði­legur ráð­gjafi Banka­sýsl­unnar í tengslum við sölu­með­ferð­ina á hlutnum í Íslands­banka 18. febr­úar síð­ast­lið­inn, en hlut­ur­inn í bank­anum var seldur með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars. Minn­is­blað hennar fjallar því um lög­mæti sölu­með­ferðar sem stofan vann sjálf að. Óttar Páls­son, einn með­eig­enda LOGOS, er sá sem sendir minn­is­blaðið á Banka­sýsl­una.

LOGOS vann einnig minn­is­blað fyrir Banka­sýslu rík­is­ins snemma í apríl um hvort að birta ætti lista yfir kaup­endur að hlutn­um. Þá var það nið­ur­staða LOGOS að slíkt væri óvar­legt. Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði hins vegar sjálf­stætt mat á birt­ingu list­ans og komst að annarri nið­ur­stöðu. Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins þegar list­inn yfir þá sem fengu að kaupa í Íslands­­­banka var birtur sagði að ráðu­neytið hefði metið málið þannig að upp­­lýs­ing­­ar um við­­skipti á milli rík­­is­­sjóðs og fjár­­­festa falli „ekki undir banka­­leynd og með hlið­­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­­sæi ríki um ráð­­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­­lit­ið.“

Gagn­rýnendur segja söl­una ekki stand­ast lög

Mikil gagn­rýni hefur verið á söl­una á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka, meðal ann­ars út frá þeim for­sendum að sölu­fyr­ir­komu­lagið hafi ekki stað­ist þá kröfu um jafn­ræði sem gerð er í lögum um sölu­­með­­­ferð eign­­ar­hluta rík­­is­ins í fjár­­­mála­­fyr­ir­tækj­um.

Ein þeirra sem hefur sett fram slíka gagn­rýni er Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, hag­fræð­ingur við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóri fjár­­­­­mála­­­stöð­ug­­­leika­sviðs Seðla­­­banka Íslands, sem sagði við Kjarn­ann í mars að þegar tak­mark­aður hópur fjár­festa sé val­inn til að kaupa magn bréfa sem sé svo lítið að það hefði ekki hreyft við mark­aðsvirði Íslands­­­banka ef þeir hefur keypt á eft­ir­­mark­aði þá brjóti það í bága við 3. grein og mög­u­­lega einnig 2. grein umræddra laga. „Á grund­velli þess þarf ein­hver að axla ábyrgð fyrir að hafa heim­ilað þetta og auk þess þarf að rifta þessum við­­skiptum við ein­stak­l­inga og ehf., enda eru þau ekki í sam­ræmi við lög og kaup­endum og mið­l­­urum hefði mátt vera það ljóst sem og því stjórn­­­valdi sem heim­il­aði þetta.“ Sig­ríður sat í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði af sér umfangs­mik­illi skýrslu í apríl 2010. Lögin um sölu­með­ferð á hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum horfa meðal ann­ars til ábend­inga rann­sókn­ar­nefnd­ar­inn­ar.

Þriðja grein lag­anna fjallar um meg­in­­reglur við sölu­­með­­­ferð. Í grein­inni seg­ir: „Þegar ákvörðun er tekin um und­ir­­bún­­ing og fram­­kvæmd sölu­­með­­­ferðar eign­­ar­hluta skal áhersla lögð á opið sölu­­ferli, gagn­­sæi, hlut­lægni og hag­­kvæmni. Með hag­­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­­­boðs­­gjöfum eru sett séu sann­­gjörn og að þeir njóti jafn­­ræð­­is. Þá skal við sölu kapp­­kosta að efla virka og eðli­­lega sam­keppni á fjár­­­mála­­mark­að­i.“

Segist enn sannfærðari um lögbrot

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, er á meðal ann­arra sem hafa sett fram sam­bæri­lega gagn­rýni og Sig­ríð­ur. Hún hefur meðal ann­ars, í grein sem hún birti á Vísi í byrjun maí með fyr­ir­sögn­inni „Af­ger­andi vís­bend­ingar um lög­brot“, bent á að engin ástæða hafi verið fyrir því að selja litlum fjár­festum hlut rík­is­ins í banka með afslætti, en minnsti fjár­festir­inn keypti fyrir rúma milljón króna og alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­­ónir króna.

[links]Eftir að minn­is­blaðið birt­ist sagð­ist Kristrún enn sann­færð­ari en áður um að lög­brot hafi átt sér stað við banka­söl­una. Hún sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook aug­ljóst að minn­is­blaðið væri við­bragð við grein hennar frá því í byrjun maí. „Minn­is­blaðið á að svara rök­semd­ar­færsl­unni sem birt­ist í grein minni um að jafn­ræði hafi verið brotið við söl­una á bank­an­um. Við lestur þess kemur hins vegar í ljós að engar nýjar upp­lýs­ingar er þar að finna. Engin rök sem hafa ekki nú þegar heyrst frá Banka­sýsl­unni og fjár­mála­ráð­herra. Aðeins rök sem einmitt þóttu ótrú­verðug og ég rakti í grein­inn­i.“

Hún sagði það líka athygl­is­vert að Banka­sýslan, sem sé opin­ber stofnun á fjár­lögum sem hafi starfs­menn, hafi séð ástæðu til að leita til utan­að­kom­andi lög­fræð­ings til að vinna minn­is­blað til að svara grein henn­ar. „Þar sem engar nýjar upp­lýs­ingar eða rök­semd­ar­færslur koma fram. Margir hljóta að spyrja sig hvað var greitt fyrir þessa þjón­ustu. Ef mönnum er alvara með að fara í saumana á þessu máli þá er það ekki gert með aðkeyptum lög­fræði­á­litum sem bæta engu við mál­flutn­ing­inn og er komið með for­gangi til ákveð­inna fjöl­miðla til for­síðu­birt­ing­ar.“

Salan á hlut rík­is­ins í Íslands­banka er nú til skoð­unar hjá Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands auk þess sem Rík­is­end­ur­skoðun er að fram­kvæma stjórn­sýslu­út­tekt á ferl­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár