Segir sig frá úttektinni á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka

Banka­sýsla rík­is­ins sendi bréf til rík­is­end­ur­skoð­anda með ábend­ingu um að Hersir Sig­ur­geirs­son hefði sett „like“ á til­tekna færslu á Facebook sem varð­aði útboðið. „Ég kann ekki við slíkt eft­ir­lit,“ segir Hersir.

Hersir Sigurgeirsson
Hersir Sig­ur­geirs­son Mynd: Háskóli Íslands

Hersir Sig­ur­geirs­son dós­ent í fjár­málum við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands hefur ákveðið að ljúka aðkomu sinni að úttekt á útboði og söl­u á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka eftir að hafa fengið sím­tal frá rík­is­end­ur­skoð­anda sem sagði honum að borist hefði bréf frá Banka­sýslu rík­is­ins með ábend­ingu um að hann hefði sett „like“ á til­tekna færslu á Facebook sem varð­aði útboðið.

Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

Hersir rekur atburða­rás­ina í færsl­unni og segir að rík­is­end­ur­skoð­andi hafi haft sam­band við hann þann 11. apríl síð­ast­lið­inn og óskað eftir því að hann yrði Rík­is­end­ur­skoðun til ráð­gjafar við úttekt­ina.

Hann seg­ist hafa ákveðið að verða við beiðn­inni, enda með við­eig­andi þekk­ingu og reynslu vegna starfa á fjár­mála­mark­aði og við Háskóla Íslands – og hafi hann unnið að verk­efn­inu und­an­farnar vikur. Hann segir að Banka­sýslan, fjár­mála­ráðu­neytið og fleiri sem úttektin tekur til hafi verið upp­lýst um aðkomu hans að henni.

„Í fyrra­dag fékk ég svo sím­tal frá rík­is­end­ur­skoð­anda sem sagði mér að honum hefði borist bréf frá Banka­sýsl­unni með ábend­ingu um að ég hafi sett „like“ á til­tekna færslu á fb sem varð­aði útboðið. Bréfið var alls þrjár síður, sent af starfs­manni Banka­sýsl­unnar og und­ir­ritað raf­rænt af for­stjóra hennar,“ skrifar hann.

„Ég kann ekki við slíkt eftirlit“

Hersir segir að hann hafi tekið að sér þetta verk­efni til að leggja sitt af mörkum til að gera úttekt­ina betri. „Þegar for­stjóri og starfs­menn Banka­sýsl­unnar eru farnir að verja tíma sínum í að rekja ferðir mínar á sam­fé­lags­miðlum og til­kynna skrif­lega, raf­rænt und­ir­ritað, um „like“ finnst mér þó ástæða til að staldra við.

Ég kann ekki við slíkt eft­ir­lit. Það er alvar­legt þegar starfs­menn rík­is­stofn­unar telja eðli­legt að leggj­ast í rann­sókn á skoð­unum ráð­gjafa óháðra úttekt­ar­að­ila og gera það á jafn hæpnum og hug­lægum for­sendum og hér birt­ast,“ skrifar hann jafn­framt.

Hann telur að ekki sé „hægt að setja „like“ við þessi vinnu­brögð og ljóst að nauð­syn­legt er að opin­bera þau“.

„Ég sé ekki aðra skýr­ingu á bréfa­skrifum Banka­sýsl­unnar en að hún telji sig geta notað þau til að kasta rýrð á úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar ef ein­hverjar nið­ur­stöður hennar verða stofn­un­inni ekki að skapi. Það hugn­ast mér ekki og því ákvað ég í gær að ljúka aðkomu minni að úttekt­inni,“ skrifar hann að lokum.

Staðfestir frásögnina en tjáir sig ekki meira um málið

Starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, Guð­mundur Björgvin Helgason, segir í sam­tali við Kjarnann að Hersir hafi verið ráð­inn sem sér­fræð­ingur við gerð úttekt­ar­innar og að hann hafi látið gott af sér leiða á meðan hann starf­aði með Rík­is­end­ur­skoðun.

Hann stað­festir frá­sögn Hersis en seg­ist ekki geta tjáð sig frekar um málið. „Þetta er hans upp­lifun af því sem kom upp og í sjálfu sér engu við það að bæta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár