Telur lög hafa verið brotin við sölu á hlut í Íslandsbanka og vill láta rifta hluta viðskipta

Sigríður Bene­dikts­dóttir, sem sat í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið, segir að sala á hlutum í Íslands­banka til lít­illa fjár­festa í lok­uðu útboði brjóti í bága við lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta ríkis í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Sigríður Benediktsdóttir.
Sigríður Bene­dikts­dóttir. Mynd: Landsbankinn

Sigríður Bene­dikts­dóttir, hag­fræð­ingur við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, seg­ist telja að lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum hafi verið brotin við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur vikum.

Hún segir í sam­tali við Kjarnann að þegar yfir 150 aðilar séu valdir til að kaupa magn bréfa sem sé svo lítið að það hefði ekki hreyft við mark­aðsvirði Íslands­banka ef þeir hefur keypt á eft­ir­mark­aði þá brjóti það í bága við 3. grein og mögu­lega einnig 2. grein umræddra laga. „Á grund­velli þess þarf ein­hver að axla ábyrgð fyrir að hafa heim­ilað þetta og auk þess þarf að rifta þessum við­skiptum við ein­stak­linga og ehf., enda eru þau ekki í sam­ræmi við lög og kaup­endum og miðl­urum hefði mátt vera það ljóst sem og því stjórn­valdi sem heim­il­aði þetta.“

Sigríður var einn þriggja sem mynd­uðu rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði umfangs­mik­illi skýrslu í apríl 2010. Hún sat einnig um nokk­urra ára skeið í banka­ráði Lands­bank­ans.

Margir litlir aðilar fengu að kaupa

Banka­sýsla rík­is­ins, fyrir hönd íslenska rík­is­ins, seldi 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði til 207 fjár­festa fyrir 52,65 millj­arða króna. Hópurinn fékk sam­tals 2,25 millj­arða króna afslátt af mark­aðsvirði og kostn­aður við útboðið var um 700 millj­ónir króna.

Í lok síð­ustu viku var greint frá því að alls 59 fjár­festar hafi keypt fyrir minna en 30 millj­ónir króna og 20 fyrir 30-50 millj­ónir króna. Alls 167 aðilar keyptu fyrir 300 millj­ónir króna eða minna. Auk þess var hluti seldur til erlendra skamm­tíma­sjóða sem keyptu líka umtals­verðan hlut í Íslands­banka í fyrra­sumar, en seldu sig hratt niður á fyrstu dögum eftir að bank­inn var skráður á markað.

Fram­kvæmd útboðs­ins hefur verið harð­lega gagn­rýnd, meðal ann­ars á Alþingi, vegna ofan­greinds og sagt að sölu­ferlið hafi verið kynnt þannig að fara ætti þessa leið, svo­kall­aða til­boðs­leið, til að fá inn stóra fjár­festa sem ætl­uðu sér að vera eig­endur bank­ans til lengri tíma. Það hafi ekki orðið raunin.

Lög grundvölluð á skýrslu rannsóknarnefndarinnar

Frumvarp um lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum var lagt fram í sept­em­ber 2012.

[links]Í grein­ar­gerð sem fylgdi með því sagði meðal ann­ars: „Ljóst má vera að afdrátt­ar­lausar reglur með skýrri umgjörð þurfa að gilda um sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sýnir fram á nauð­syn þess, þar sem sett er fram sú skoðun að við söl­una á bönk­unum árin 2002–2003 hafi Alþingi haft ríkar ástæður til að taka afstöðu til grund­vall­ar­for­sendna varð­andi sölu og fyr­ir­komu­lag hennar í sér­stakri lög­gjöf um sölu­heim­ild­ina. Taka má undir það að fyrri aðkoma Alþingis við und­ir­bún­ing á sölu á eign­ar­hlutum í við­skipta­bönkum hafi ekki verið nægj­an­leg og þarf breyt­ing að verða á því til þess að tryggja megi að hafið sé yfir vafa að jafn­ræði og gagn­sæi sé tryggt við sölu eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Ferlið þarf að vera skýrt, meg­in­sjón­ar­mið skil­greind og hlut­verk hvers aðila í sölu­ferl­inu.“

Því var frum­varpið meðal ann­ars grund­vallað á skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, sem Sigríður Bene­dikts­dóttir átti sæti í.

Frum­varpið var sam­þykkt í des­em­ber 2012. Þriðja grein lag­anna fjallar um meg­in­reglur við sölu­með­ferð. Í grein­inni segir: „Þegar ákvörðun er tekin um und­ir­bún­ing og fram­kvæmd sölu­með­ferðar eign­ar­hluta skal áhersla lögð á opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ar­hluti. Þess skal gætt að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræðis. Þá skal við sölu kapp­kosta að efla virka og eðli­lega sam­keppni á fjár­mála­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár