Erlendu sjóðirnir sem seldu sig hratt út eftir skráningu voru valdir til að kaupa aftur

Á lista yfir þá 207 aðila sem valdir voru til að fá að kaupa hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur vikum er að finna nokkra erlendra sjóði. Flestir þeirra tóku líka þátt í almenna útboð­inu í fyrra, og seldu sig hratt út í kjöl­farið.

Á meðal þeirra sem voru valdir til að kaupa í lok­uðu útboði á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur vikum voru erlendir sjóðir sem höfðu líka keypt í almenna útboð­inu í fyrra­sumar. Sex þeirra sem keyptu í bank­anum í aðdrag­anda skrán­ingar í maí í fyrra seldu bréfin sem þeim var úthlutað innan þriggja daga eftir skrán­ingu með umtals­verðum hagn­aði, en sölu­and­virðið var um fjórir millj­arðar króna. Á meðal þess­ara sex voru sjóðir Silver Point Capital, Fiera Capital, Lansdowne Partners og Key Square Partners.

Þrátt fyrir að þessir sjóðir hafi selt sig nán­ast strax út úr Íslands­banka þegar þeir gátu eftir síð­asta útboð þótti til­hlýði­legt að bjóða þeim þátt­töku í lok­aða útboð­inu og veita þeim afslátt af kaup­verði, en þeir 207 aðilar sem voru valdir til að kaupa fengu alls rúm­lega fjög­urra pró­sent afslátt á bréf­unum. Silver Point keypti fyrir rúm­lega 1,3 millj­arða króna, Landsdown Partners fyrir næstum 556 millj­ónir króna, Fiera Capital fyrir 468 millj­ónir króna og KeySquare Partners fyrir 409,5 millj­ónir króna. Samtals keyptu þessir fjórir sjóðir því fyrir rúm­lega 2,7 millj­arða króna í lok­aða útboð­inu og fengu í stað­inn 5,2 pró­sent hlut í Íslands­banka.

[adspot]Auk þess var sjóður í stýr­ingu banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins RWC Asset Mana­gement val­inn sem einn horn­steins­fjár­fest­anna í Íslands­banka í aðdrag­anda almenna útboðs­ins í fyrra. Sá sjóður fékk þá að kaupa 1,54 pró­sent hlut á 2,4 millj­arða króna. Hann hafði selt þorra eignar sinnar um síð­ustu ára­mót og leyst um leið út umtals­verðan hagnað. Sjóður í stýr­ingu RWC Asset Mana­gement fékk að kaupa hluti fyrir tæp­lega tvo millj­arða króna.

Capital bætti við sig

Samtals seldu sölu­ráð­gjafar Banka­sýsl­unnar ofan­greindum sjóðum hluti fyrir um 4,7 millj­arða króna í lok­aða útboð­inu. Þeir hlutir hafa þegar hækkað um rúm­lega tíu pró­sent frá útboðs­verð­inu og því má ætla að þessi hópur erlendra sjóða hafi þegar hagn­ast um næstum hálfan millj­arð króna á fjár­fest­ingu sinni.

[links]Þetta má lesa út úr lista yfir kaup­endur að 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka sem var seldur í lok­uðu útboði á 52,65 millj­arða króna 22. mars síð­ast­lið­inn með sam­tals 2,25 millj­arða króna afslætti. Virði þess hlutar sem hóp­ur­inn keypti hefur þegar hækkað sam­tals um 5,4 millj­arða króna.

Erfitt hefur reynst að fá erlendra aðila til að ráð­ast í lang­tíma­fjár­fest­ingar í félögum á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, ef Marel og Icelandair eru und­an­skilin. Þannig var hrein nýfjár­fest­ing erlendra aðila á Íslandi nei­kvæð um 60 millj­arða króna í fyrra. Ástæða þess var aðal­lega sala þeirra á inn­lendum hluta­bréf­um, sér­stak­lega í Arion banka en erlendir fjár­fest­inga- og vog­un­ar­sjóðir sem áttu hlut í honum seldu fyrir 55 millj­arða króna á árinu 2021.

Að sama skapi keyptu erlendir sjóðir í Íslands­banka fyrir um tíu millj­arða króna nettó á síð­asta ári þegar bank­inn var skráður á markað. Tveir erlendir sjóð­ir, Capital World Investors og áður­nefndur RWC Asset Mana­gement LLP, voru á meðal þeirra sem skuld­bundu sig til að kaupa hlut í aðdrag­anda útboðs. Sá síð­ar­nefndi hefur, líkt og áður sagði, þegar selt hluta af því sem hann keypt­i í fyrra. Capital Group hefur hins vegar verið að bæta jafnt og þétt við sig í Íslands­banka og keypti við­bót­ar­hlut í lok­aða útboð­inu fyrir rúman millj­arð króna. Sjóurinn á nú 5,06 pró­sent hlut í bank­anum og er fjórði stærsti eig­andi hans á eftir líf­eyr­is­sjóð­unum LSR og Gildi og íslenska rík­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár