Búið að birta listann yfir kaupendur í Íslandsbanka – Lestu hann í heild sinni hér

Banka­sýsla rík­is­ins lagð­ist gegn því að listi yfir þá 207 aðila sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur vikum með afslætti yrði birtur. Fjár­mála­ráðu­neytið taldi málið ekki falla undir banka­leynd og hefur birt list­ann.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Banka­sýsla rík­is­ins sendi í dag yfir­lit yfir kaup­endur að 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem hefur birt list­ann á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Hann má lesa hér.

Í til­kynn­ingu sem birt var síð­degis í dag segir að Banka­sýslan hafi ítrekað í bréfi þá afstöðu sína að hún teldi ekki heim­ilt að birta þær upp­lýs­ingar sem ráðu­neytið óskaði eftir. „Aftur á móti er stofn­un­inni, sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skylt að afhenda ráðu­neyt­inu umbeðnar upp­lýs­ingar um úthlut­anir til þátt­tak­enda í útboð­inu í ljósi stjórn­sýslu­legrar stöðu og for­ræðis ráð­herr­ans á sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.“

[adspot]Ráðu­neytið seg­ist hafa lagt sjálf­stætt mat á þær rök­semdir sem settar hafa verið fram fyrir því að fram­an­greint yfir­lit falli undir banka­leynd. „Að mati ráðu­neyt­is­ins falla upp­lýs­ingar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­litið.“

Í til­kynn­ing­unni kemur einnig fram að síð­ast­lið­inn föstu­dag hafi ráðu­neytið óskað eftir afstöðu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands til þess hvort laga­á­kvæði um banka­leynd stæðu því í vegi að upp­lýs­ingar um kaup­endur og um eign­ar­hlut sem hverjum og einum var seldur, yrðu gerðar aðgengi­legar almenn­ingi. Ráðu­neyt­inu hafði ekki borist svar frá Seðla­bank­anum áður en ákvörðun var tekin um að birta list­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár