Þorsteinn Már, faðir Bjarna og gamlir bankaeigendur á meðal kaupenda í bankanum

Búið er að birta list­ann yfir þá sem fengu að taka þátt í lok­uðu útboði á hlutum í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur vikum. Þar bauðst „hæfum fjár­festum“ að kaupa hluti í banka af rík­inu með afslætti.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er meirihlutaeigandi í Eignarhaldsfélaginu Steini.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er meiri­hluta­eig­andi í Eign­ar­halds­fé­lag­inu Steini. Mynd: Skjáskot/Samherji

Haf­silfur ehf., félag í eigu Bene­dikts Sveins­sonar, keypti hlut í Íslands­banka fyrir tæp­lega 55 millj­ónir króna í lok­uðu útboði sem fram fór fyrir rúmum tveimur vikum síðan. Veittur var rúm­lega fjög­urra pró­senta afsláttur á mark­aðsvirði í útboð­inu. Benedikt er faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem tók end­an­lega ákvörðun um söl­una á hlutnum í Íslands­banka, en alls var seldur 22,5 pró­sent hlutur til 209 fjár­festa.

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf., sem er í eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Samherja og Helgu S. Guð­munds­dóttur, fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, keypti hluta­bréf í lok­aða útboð­inu fyrir 296,3 millj­ónir króna. Þor­steinn hefur áður komið að banka­rekstri en hann var stjórn­ar­for­maður Glitnis banka, fyr­ir­renn­ara Íslands­banka, þegar sá banki fór í þrot haustið 2008. Þor­steinn Már er með stöðu sak­born­ings í umfangs­mik­illi rann­sókn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á meintum mút­ur­brotum, skattsvikum og pen­inga­þvætti í tengslum við starf­semi Samherja í Namibíu.

[adspot]Fleiri sem komu að banka­rekstri á árunum fyrir hrun eru á meðal þeirra sem flokk­uð­ust sem hæfir fjár­festar og voru valdir til þátt­töku í lok­uðu útboði á hlut rík­is­ins í banka.

[links]Þar má nefna félögin Frigus II og Frigus fjár­fest­ingar, sem eru að mestu í eigu Ágústs og Lýðs Guð­munds­sona, sem oft­ast eru kenndir við Bakkavör. Félögin tvö keyptu fyrir sam­tals 468 millj­ónir króna í Íslands­banka, með afslætti.

Bræð­urnir voru stærstu ein­stöku eig­endur Kaup­þings þega sá banki féll haustið 2008. Lýður hlaut átta mán­aða fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti árið 2014, þar af fimm mán­uði skil­orðs­bundn­a. Hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur hafði áður dæmt Lýð til að greiða tveggja millj­­óna króna sekt.

Þá keypti Skel fjár­fest­inga­fé­lag, sem er skráð á markað, hlut í Íslands­banka fyrir 450 millj­ónir króna í útboð­inu. Stjórn­ar­for­maður Skel, og sá sem leiðir meiri­hluta­eig­and­ann í félag­inu Streng hf., er Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Félög tengd honum voru stærstu eig­endur Glitnis banka þegar hann féll í októ­ber 2008.

Félagið Lyf og Heilsa hf. keyptu fyrir 225 millj­ónir króna, en skráður eig­andi þess er Jón Hilmar Karlsson. Faðir hans, Karl Wernersson, átti áður félagið en seldi syni sínum það áður en hann varð gjald­þrota. Þrotabú Karls höfð­aði í kjöl­farið nokk­ur rift­un­ar­mál þar sem talið var að eign­um hefði verið komið und­an kröfu­höf­um, meðal ann­ars með því að eign­um Karls væri komið yfir til Jóns Hilm­ars. Karl var aðal­eig­andi fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Milestone fyrir banka­hrun, sem var um tíma á meðal stærstu eig­enda Glitnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár