Skýrsla Ríkisendurskoðunar um bankasöluna frestast – Ætla að reyna að klára fyrir lok júlí

Þegar Rík­is­end­ur­skoðun tók að sér að gera stjórn­sýslu­út­tekt á sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur mán­uðum ætl­aði hún að skila skýrslu í júní. Nú er stefnt að því að skila henni fyrir versl­un­ar­manna­helgi.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Skýrslan er gerð að hans beiðni.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Skýrslan er gerð að hans beiðni. Mynd: Bára Huld Beck

Skýrsla um nið­ur­stöðu stjórn­sýslu­út­tektar Rík­is­end­ur­skoð­unar á sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka til 207 fjár­festa í lok­uðu úboði fyrir 52,65 millj­arða króna í mars síð­ast­liðnum verður ekki til­búin fyrir lok júní­mán­aðar líkt og boðað hafði. Þess í stað er búist við að hún verði til­búin seint í júlí, fyrir versl­un­ar­manna­helgi, eins og staðan er í dag. Þetta er haft eftir Guðmundi Björg­vini Helga­syni rík­is­end­ur­skoð­anda á vef Frétta­blaðs­ins.

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, en hann bað form­lega um gerð hennar 7, apríl síð­ast­lið­inn og Rík­is­end­ur­skoðun sam­þykkti að taka að sér verkið í kjöl­farið. Í bréfi ráðu­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­ast um hvort fram­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­legg stjórn­valda sem borið var undir fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis til umsagn­ar.

Rík­is­end­ur­skoðun ákvað dag­inn eft­ir, þann 8. apr­íl, að verða við beiðn­inni.

[adspot]Í bréfi sem hún sendi til Bjarna vegna þess sagði að „áætlun um afmörkun og fram­kvæmd úttekt­ar­innar hefur ekki farið fram en hún mun verða end­ur­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. Í því sam­bandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. fram­an­greindra laga er rík­is­end­ur­skoð­andi sjálf­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­kvæmt lög­un­um. Stefnt er að því að nið­ur­staða úttekt­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í júní­mán­uði 2022.“

Nýr ríkisendurskoðandi kosinn í miðju úttektarferli

Það flækti málin að Alþingi átti eftir að kjósa nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda í stað Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar, sem ákvað að hætta sem slíkur og verða ráðu­neyt­is­stjóri í nýju við­skipta- og menn­ing­ar­ráðu­neyti. Til stóð að kjósa nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda á þingi fyrir maí­lok.

Því var sú staða uppi að Rík­is­end­ur­skoðun var falið að ráð­ast í úttekt á einu umdeildasta þjóð­fé­lags­máli síð­ari ára, þar sem 88,4 pró­sent þjóð­ar­innar telja sam­kvæmt könnun Gallup að óeðli­legir við­skipta­hættir hafi átt sér stað og 83 pró­sent þjóð­ar­innar er óánægt með fram­kvæmd­ina, án þess að búið væri að skipa nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda.

Guð­mundur Björgvin var starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi á þessum tíma og einn þeirra tólf sem sótt­ist eftir emb­ætt­inu.

Það frestað­ist að ganga frá kosn­ingu rík­is­end­ur­skoð­anda og þann 8. júní hafði Kjarninn eftir Guðmundi Björg­vini að til stæði að skila skýrsl­unni um Íslands­banka­söl­una til Alþingis í síð­ustu viku júní­mán­aðar. Daginn eftir, þann 9. júní, var Guð­mundur Björgvin kos­inn nýr rík­is­end­ur­skoð­andi.

Nú, tólf dögum síðar, er ljóst að birt­ing skýrsl­unnar frest­ast um að minnsta kosti mánuð og gæti litið dags­ins ljós í lok næsta mán­aðar. Guð­mundur Björgvin segir við Frétta­blaðiðað það hafi alltaf verið við­búið að það gæti teygst á vinn­unni við gert úttekt­ar­innar. „Þetta er í sjálfu sér ekk­ert ein­falt mál. Það þarf alltaf að huga að þeim upp­lýs­ingum sem þú hefur, svo þarf að afla upp­lýs­inga og hvert leiða gögnin þín og þar fram eftir göt­unum. Þannig að það var alltaf við­búið að það gæti teygst eitt­hvað á þessu. Við erum enn að vinna á fullu í þessu og ætlum þá að reyna klára þetta í júlí. Það er út­séð með að við náum að klára þetta núna í júní­mán­uði.“

Til stendur að kalla Alþingi saman í kjöl­far birt­ingar á skýrsl­unni til að ræða hana, en það fór í sum­ar­frí í síð­ustu viku. Júlí­mán­uður er langstærsti sum­ar­leyf­is­mán­uð­ur­inn á Íslandi og þjóð­fé­lagið allt oftar en ekki í hæga­gangi á meðan að á honum stendur.

Nær allir landsmenn vildu rannsóknarnefnd

Sú ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar að fela Rík­is­end­ur­skoðun að gera úttekt á banka­söl­unni var harð­lega gagn­rýnd af sumum stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönnum, sem vildu láta skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis með mun víð­tæk­ari heim­ildir til að fara ofan í saumana á söl­unni.

[links]Í grein sem Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, birti á Kjarn­anum í apríl sagði meðal ann­ars: „Það má vel vera að Rík­is­end­ur­skoðun sé ágæt­lega til þess fallin að yfir­fara ákveðna þætti er varða söl­una á Íslands­banka. En ef ætl­unin er að rann­saka atburð­ina frá mörgum hlið­um, laga­leg­um, sið­ferði­leg­um, póli­tískum og stjórn­sýslu­leg­um, og „velta við öllum stein­um“ eins og jafn­vel stjórn­ar­liðar kalla eftir er hins vegar ljóst að rann­sókn­ar­heim­ildir Rík­is­end­ur­skoð­unar duga skammt og verk­efnið fellur bein­línis illa að starfs­sviði stofn­un­ar­inn­ar. Þá er óheppi­legt að úttektin fari fram sam­kvæmt sér­stakri beiðni frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sama manni og hefur for­göngu um banka­söl­una sem er til athug­un­ar.“

Í könnun sem Gallupbirti seint í apríl kom fram að 73,6 pró­sent lands­manna taldi að það ætti að skipa rann­sókn­ar­nefnd en 26,4 pró­sent taldi nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun gerði úttekt á söl­unni. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar nægði til. Tæp­lega þriðj­ungur kjós­enda hinna stjórn­ar­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­sókn­ar­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­endur stjórn­ar­and­stöðu­flokka voru nær allir á því að rann­sókn­ar­nefnd sé nauð­syn­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár