Fjárlagafrumvarpið reiknar með að restin af Íslandsbanka verði seld á næsta ári

Gert er ráð fyrir því að halli á rík­is­sjóði á næsta ári verði 89 millj­arðar króna. Reiknað er með að 42,5 pró­sent hlutur rík­is­ins í Íslands­banka verði seldur á næsta ári.

Heild­­ar­­tekjur rík­­is­­sjóðs verða um 1.117 millj­arðar króna á næsta ári. Það er tekju­aukn­ing upp á 103 millj­arða króna milli ára, miðað við fyr­ir­liggj­andi áætlun árs­ins 2022. Tekjur yfir­stand­andi árs hafa verið end­ur­metnar frá því sem sett var fram í fjár­lögum og eru nú áætl­aðar 79 millj­örðum krónum meiri. Ástæður þess eru tvær, ann­ars vegar vegna bættra efna­hags­for­senda og hins vegar vegna auk­innar verð­bólgu.

Áætl­­aður halli á árinu 2023 er 89 millj­­arðar króna en í fjár­mála­á­ætlun sem lögð var fram í vor var hann áætl­aður 82,5 millj­arðar króna. Áætlaður halli hefur því auk­ist um 6,5 millj­arða króna frá því í vor. Halli rík­is­sjóðs vegna árs­ins 2022 var áætl­aður 187 millj­arðar króna en er nú talin verða 142 millj­arðar króna.

Útgjöld munu aukast nokkuð milli ára og verða 1.206 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2023, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti í morgun.

Ef bankinn er ekki seldur þarf að fjármagna með öðrum hætti

Í for­sendum fjár­laga­frum­varps­ins er gert ráð fyrir frek­ari sölu á eign­ar­hlut rík­is­sjóðs í Íslands­banka, en ríkið á sem stendur 42,5 pró­sent hlut í bank­anum. Áætlað er að sala eigna muni skila rík­is­sjóði 75,8 millj­örðum króna í tekjur og gangi salan eftir muni skuldir rík­is­sjóðs ná að vera 33 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í lok næsta árs. Verði ekki af sölu verður skulda­hlut­fallið umtals­vert hærra og þá þarf að fjár­magna hluta af halla­rekstri árs­ins með öðrum hætti, og þá vænt­an­lega lán­töku.

[adspot]Í frum­varp­inu segir að salan á Íslands­banka yrði ekki við­var­andi þáttur í fjár­mögnun rík­is­sjóðs og því muni vera nauð­syn­legt að halda áfram að bæta und­ir­liggj­andi afkomu rík­is­sjóðs á næstu árum til þess að ná megi mark­miðum fjár­mála­stefnu um að stöðva vöxt skulda sem hlut­fall af VLF eigi síðar en árið 2026. „Það er for­sendan fyrir því að hlut­fallið geti farið að lækka aftur í sam­ræmi við fjár­mála­reglur laga um opin­ber fjár­mál. Þrátt fyrir nei­kvætt fram­lag frum­jafn­aðar á árinu 2023 þá minnkar það frá árinu áður og hefur í raun lítil áhrif á skulda­þróun á árinu. Athygli vekur hvað fram­lag vaxta­byrði er stórt. Á meðan svo er þurfa aðrir liðir að bæta það upp ef skuldir eigi að telj­ast sjálf­bærar til lengri tíma. Af þessu má ráða, eins og nefnt var fyrr í þessum kafla, að það er til mik­ils að vinna að ná niður vaxta­byrði rík­is­sjóðs.“

Þá er áfram sem áður heim­ild í fjár­laga­frum­varp­inu til að selja tæp­lega 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, en ekki er gert ráð fyrir þeirri sölu á næsta ári.

Hvorki Ríkisendurskoðun né fjármálaeftirlitið hafa skilað

Ríkið hefur þegar selt 57,5 pró­sent í Íslands­banka fyrir um 108 millj­arða króna. Síðasti hluti söl­unnar, þegar 22,5 pró­sent var selt til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði á verði sem var undir mark­aðs­verði, var harð­lega gagn­rýndur. Rík­is­end­ur­skoðun vinnur nú að stjórn­sýslu­út­tekt á sölu­ferl­inu og stefnir að því að skila skýrslu til þings­ins um nið­ur­stöður hennar síðar í þessum mán­uði. Þá hefur fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands haft ákveðna þætti tengda söl­unni til rann­sóknar.

Í yfir­lýs­ingu sem for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, þau Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son,. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­urður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra, sendu sam­eig­in­lega frá sér 19. apríl kom fram að ef þörf kæmi fram fyrir frek­ari rann­sóknir þegar nið­ur­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar og Seðla­bank­ans liggi fyrir muni rík­is­stjórnin beita sér fyrir slíku á vett­vangi Alþing­is.

Í yfir­lýs­ing­unni segir: „Ekki verður ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinni.“

Miðað við for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins er ljóst að gengið er út frá því að sölu­ferlið verði end­ur­vakið á næsta ári þrátt fyrir að nið­ur­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar og fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands liggi enn ekki fyrir.

Flestir töldu að óeðlilegir viðskiptahættir hefðu átt sér stað

Sam­­­­kvæmt könnun sem Gallup gerði í vor töldu 88,4 pró­­­­sent þjóð­­­­ar­innar að óeðli­­­­legir við­­­­skipta­hættir hafi átt sér stað við söl­una á Íslands­banka og 83 pró­­­­sent þjóð­­­­ar­innar var óánægð með fram­­­­kvæmd­ina.

Alls 73,6 pró­­­­sent lands­­­­manna taldi að það ætti að skipa rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd til að fara yfir hana en 26,4 pró­­­­sent taldi nægj­an­­­­legt að Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun gerði úttekt á söl­unni. Kjós­­­­endur Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­­­­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoð­unar nægði til.

Tæp­­­­lega þriðj­ungur kjós­­­­enda hinna stjórn­­­­­­­ar­­­­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­­­­endur stjórn­­­­­­­ar­and­­­­stöð­u­­­­flokka voru nær allir á því að rann­­­­sókn­­­­ar­­­­nefnd sé nauð­­­­syn­­­­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár