Hallarekstur SÁÁ stefnir í 450 milljónir

Færri inn­lagnir, færri með­ferðir við ópíóða­fíkn og sum­ar­lok­anir verður staðan hjá SÁÁ á næsta ári miðað við fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp. Samtökin áætla að rekstr­ar­grunnur sam­tak­anna verði van­fjár­magn­aður um 450 millj­ónir króna á næsta ári.

Halla­rekstur á rekstri með­ferð­ar­sviðs SÁÁ verður 450 millj­ónir króna á næsta ári, 100 millj­ónum meiri en áætlað er í ár, miðað við áætluð fram­lög frá hinu opin­bera sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi.

Fjár­fram­lög til SÁÁ munu lækka um 98 millj­ónir milli ára, úr 1331 milljón í 1233 millj­ónir á næsta ári. Jafn há upp­hæð mun renna til sam­tak­anna úr rík­is­sjóði 2024 og 2025.

Með­ferð­ar­svið SÁÁ hefur áður óskað eftir leið­rétt­ingu á rekstr­ar­grunni samn­ingu um heil­brigð­is­þjón­ustu sem með­ferð­ar­svið SÁÁ sinnir. Í umsögn SÁÁ um fjár­laga­frum­varpið segir að rekstr­ar­grunn­ur­inn sé nú þegar van­fjár­magn­aður um 300 millj­ónir króna og stefnir í að verða 350 millj­ónir króna fyrir árið í ár og 450 millj­ónir á næsta ári.

„Að óbreyttu getur slíkur halli ekki annað en leitt til umfangs­mik­illar skerð­ingar á þjón­ustu,“ segir í umsögn SÁÁ, sem und­ir­rituð er af Önnu Hildi Guð­munds­dóttur, for­manni SÁÁ.

270 færri innlagnir og 160 sjúklingar munu ekki fá meðferð við ópíóðafíkn

Skerð­ingar á þjón­ustu munu meðal ann­ars fel­ast í 270 færri inn­lagna á Sjúkra­húsið Vogi og minnst 160 sjúk­lingar munu ekki fá lyfja­með­ferð á göngu­deild við ópíóða­fíkn. Núgild­andi samn­ingur um lyfja­með­ferð við ópíóíða­fíkn er tak­mark­aður við 90 ein­stak­linga og segir SÁÁ nauð­syn­legt að bregð­ast við með­ferð­ar­þörf­inni sem telur um 250 ein­stak­linga.

Yfir 200 manns eru nú í gagn­reyndri lyfja­með­ferð við ópíóða­fíkn, með­ferð sem dregur úr fíkn og frá­hvörfum og er lífs­bjarg­andi fyrir alvar­legri ópíóða­fíkn, að því er fram kemur í við­tali við Valgerði Rún­ars­dóttur, for­stjóra Vogs og fram­kvæmda­stjóra lækn­inga, í Lækna­blað­inu.

Heilsársopnanir byggðar á sérstökum fjáröflunum

Skerð­ingin mun einnig leiða til sum­ar­lok­ana að nýju. Síð­ast­liðið sumar voru 2.800 komur á göngu­deild í 14 mis­mun­andi með­ferð­ar­úr­ræði auk 752 við­tala. Auk þess fengu 193 inniliggj­andi sál­fé­lags­lega með­ferð á Vík en sér­stak­lega var safnað fyrir því að geta haldið með­ferð­ar­stöð­inni í Vík opinni í sumar til að tryggja með­ferð­ar­sam­fellu út árið.

Heilsárs opnun göngu­deildar í ár byggir einnig á sér­stakri fjár­öflun þar sem núgild­andi samn­ingar duga ekki til þess. Göngu­deildin er fyrsti við­komu­staður í með­ferð við fíkni­sjúk­dómum og þar er boðið upp á sam­bæri­lega með­ferð og fram fer á Vogi fyrir þá sem hentar.

Efling göngu­deild­ar­þjón­ustu er hluti af aðgerðum sem SÁÁ hefur gripið til í þeim til­gangi að vernda núver­andi þjón­ustu og mæta sívax­andi þjón­ustu­þörf með fíkni­sjúk­dóm. Í umsögn SÁÁ segir að þróa þurfi úrræði sem miða að því að mæta betur þörfum ein­stak­linga eftir fyrsta mánuð í með­ferð. Einnig er mik­il­vægt að hægt sé að sinna fjöl­breytt­ari þjón­ustu í göngu­deild sem stuðlar að betri geð­heilsu og heild­rænum bakslags­vörnum með fjöl­breyttu teymi heil­brigð­is­starfs­manna.

SÁÁ bendir á í umsögn sinni að rekstr­ar­grunn­ur­inn hefur verið van­fjár­magn­aður um 300 millj­ónir króna en með fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi verði hann 450 millj­ónir króna.

„Að óbreyttu getur slíkur halli ekki annað en leitt til umfangs­mik­illar skerð­ingar á þjón­ustu,“ segir í umsögn SÁÁ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárlagafrumvarp

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár