Útgjöld vegna barnabóta lækka

Ekki er gert ráð fyrir auknum útgjöldum rík­is­ins til barna­bóta á næsta ári, þrátt fyrir að fjár­hæðir þeirra til hvers ein­stak­lings hækki og skerð­ing­ar­mörk verði færð ofar. Áætluð útgjöld eru 11 pró­sentum minni en þau voru í fyrra.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið sitt fyrir næsta ár í gær.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti fjár­laga­frum­varpið sitt fyrir næsta ár í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Heild­ar­út­gjöld hins opin­bera í barna­bætur nema tæp­lega 14 millj­örðum króna, en það er 11 pró­sentum minna en útgjöldin sem runnu í mála­flokk­inn í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtu fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar.

Minna greitt út þrátt fyrir hækkun greiðslna á mann

Í kynn­ingu sinni á fjár­laga­frum­varp­inu fyrr í dag sagð­ist Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra ætla að leggja til að greiðslur hvers og eins bóta­þega verði hækk­aðar á næsta ári, auk þess sem tekju­skerð­ing­ar­mörkin verði hærri. Gangi þessar breyt­ingar í gegn fengi ein­stætt for­eldri með 375 þús­und á mán­uði í launa­tekjur rúmar 82 þús­und króna á mán­uði í barna­bætur, í stað rúmra 75 þús­unda króna sem það fengi miðað við núver­andi kerfi.

Þrátt fyrir þessar breyt­ingar er ekki búist við að rík­is­sjóður muni verja meiri fjár­munum í mála­flokk­inn, en gert er ráð fyrir að heild­ar­greiðsla barna­bóta muni nema 13,965 millj­örðum króna á næsta ári. Þetta er nákvæm­lega sama upp­hæð og var sett í mála­flokk­inn í ár, sam­kvæmt núgild­andi fjár­lögum.

Samkvæmt tekju­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er hins vegar búist við að rík­is­sjóður muni alls greiða rúma 15 millj­arða króna í barna­bætur í ár, en heild­ar­greiðsl­urnar námu 15,8 millj­örðum króna í ár. Verði barna­bóta­greiðsl­urnar á næsta ári því í sam­ræmi við fjár­laga­frum­varpið munu þær því verða 11 pró­sentum lægri en þær voru árið 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárlagafrumvarp

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár