Stórar virkjanir úti í Noregi vegna vatnsskorts

Skert raf­orku­fram­leiðsla vegna vatns­skorts blasir áfram við í mið- og suð­ur­hluta Noregs ef himn­arnir fara ekki að opn­ast almenni­lega. Í raun þarf úrkoma hausts­ins að vera óvenju­lega mikil til að bæta upp fyrir þurrka­tíð sum­ars­ins.

Blásjór í eðlilegu árferði að hausti. Lónið er nú hálftómt og rafmagnsframleiðslu í virkjununum verið hætt tímabundið.
Blásjór í eðli­legu árferði að hausti. Lónið er nú hálf­tómt og raf­magns­fram­leiðslu í virkj­un­unum verið hætt tíma­bundið. Mynd: Wikipedia

Sumarið í Noregi ein­kennd­ist af minni úrkomu í suð­ur­hluta lands­ins en í með­al­ári. Þetta ástand kom í kjöl­far vetrar þar sem snjóað hafði minna en að með­al­tali. Þetta óvenju­lega árferði er stærsta ástæða þess að uppi­stöðu­lón vatns­afls­virkj­ana hafa verið rétt hálf full eða rúm­lega það þetta haustið.

En skýr­ing­anna er ef til vill að leita enn lengra aftur í tím­ann. Því á ákveðnum svæðum hefur t.d. snjóað mun minna í nokkur ár sam­fleytt en búast hefði mátt við miðað við árin á undan.

Nú eru ákveðnar blikur á lofti í úrkom­unni. Því síð­ustu daga hefur rignt mikið, en þó á afmörk­uðum svæðum, á þessum suð­lægu slóðum í Noregi. Þegar hafa fallið um 70 mm af úrkomu í Telemark, svo dæmi sé tekið. Jarð­veg­ur­inn var vissu­lega orð­inn þurr svo að hann dregur í sig mikið af regn­vatn­inu en uppi­stöðu­lónin munu taka við rest ef fram fer sem horfir.

[adspot]

Þessu hafa Norðmenn í raun beðið eftir því haustrign­ing­arnar eru þekkt fyr­ir­bæri og stundum geta þær verið ofsa­fengnar. Eitt úrhelli bjargar ekki öllu fyrir horn en það kemur sér sann­ar­lega vel. Úrkoman þarf að vera dreifð­ari um árið, bæði sem snjór að vetri og rign­ing að sumri, svo uppi­stöðu­lónin fyllist. „Við viljum mikið af rign­ingu og mikið af snjó,“ hjá orku­veit­unni í Austur-Telemark.

En það er ekki nóg að fá stað­bundna úrkomu eins og segja má að nú geisi. Til að öll uppi­stöðu­lónin njóti góðs af þarf að rigna á mun stærra svæði.

Otra­veita, ein stærsta virkjun Noregs, nýtir vatn úr uppi­stöðu­lón­inu Vatns­dals­vatni, Vatnedals­vatnet í Agder-fylki til vinnsl­unnar. Hún hefur und­an­farið fram­leitt 25 pró­sent minna raf­magn en en vant er á þessum árs­tíma. Sam­drátt­ur­inn skýrist af vatns­skorti.

Og nú von­ast stjórn­endur virkj­un­ar­innar eftir því að óvenju­legt árferði sé í hönd. Að það muni á skömmum tíma, áður en það fer að snjóa, rigna um 20-30 pró­sent meira en venju­lega. Það gæti þýtt að lónið myndi fyll­ast.

Á öðrum svæðum er ástandið enn verra og dæmi eru um að nokkur af stærstu lón­unum standi hálf tóm. Yfirborð Blásjós, lóns sem liggur milli fylkj­anna Roga­lands og Agder, fór niður í um 20 pró­sent fyrr á þessu ári. Ástandið hefur skánað og nú stendur það í 40-50 pró­sentum sem er þó veru­lega undir vatns­magni sem reikna má með að hausti.

Ekkert vatn rennur þessa dag­ana úr Blásjó og niður í gegnum virkj­ana­kerfið sem lón­inu teng­ist. Til að safna í lónið þurfti að loka fyrir vatns­rennslið.

Norska orku­stofn­unin hefur ekki reiknað út hversu mikið þarf að rigna svo að uppi­stöðu­lónin fyllist sem flest og raf­magns­fram­leiðsla farið á fullt stím aftur. Hún bendir á að vatns­skortur í lón­unum sé ekki eina ástæða þess að raf­magns­verð í Noregi, sér­stak­lega syðst í land­inu, hefur hækkað mikið síð­ustu vikur og mán­uði. Hækkunin skýrist ekki síst af stríð­inu í Úkraínu og orku­krís­unni sem átökin hafa valdið í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár