Kaupmáttur hefur rýrnað um 4,2 prósent á þessu ári og hefur ekki verið minni síðan 2020

Í júní síð­ast­liðnum lauk tólf ára sam­felldu skeiði þar sem kaup­máttur launa jókst, sé horft til breyt­inga milli ára. Á síð­asta ári hefur kaup­mátt­ur­inn himns vegar rýrnað um 1,6 pró­sent og hefur ekki verið minni síðan í lok árs 2020.

Kallað var eftir auknum kaupmætti í kröfugöngu verkalýðsins 1. maí síðastliðinn.
Kallað var eftir auknum kaup­mætti í kröfu­göngu verka­lýðs­ins 1. maí síð­ast­lið­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því að kaup­máttur launa á Íslandi náði hámarki í jan­úar síð­ast­liðnum hefur hann rýrnað um 4,2 pró­sent. Frá þessu er greint í nýrri Hagsjá Lands­banka Íslands. Alls hefur kaup­máttur launa rýrnað um 1,6 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum og hann hefur ekki verið minni síðan í des­em­ber 2020.

[links]Í Hag­sjánni segir að laun þeirra sem starfa við rekstur gisti- og veit­inga­staða hafi hækkað lang­mest und­an­farið ár, eða um 13 pró­sent. Þar á eftir koma þeir sem starfa í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð eða veitu­starf­semi, en laun þeirra hafa hækkað um átta pró­sent. Heilt yfir hefur launa­vísi­talan hækkað um átta pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum, en þar sem verð­bólga hefur mælst 9,7 pró­sent á sama tíma­bili hefur kaup­máttur launa rýrnað um áður­nefnt hlut­fall á tíma­bil­inu.

Vert er að taka fram að kaup­máttur launa jókst sam­fleytt í tólf ár á Íslandi. Þeirri sam­felldu aukn­ingu lauk í júní á þessu ári, þegar horft er til breyt­inga á milli ára.

Telur heppilegra að meta þróunina yfir lengri tíma

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, skrif­aði grein sem birt­ist á Kjarn­anum á föstu­dag um sam­drátt í kaup­mætti launa. Þar sagði hann að óvar­legt væri að draga þá ályktun að um óheilla­þróun væri að ræða.

Færa mætti sterk rök fyrir því að heppi­leg­ast og sann­gjarn­ast sé að meta kaup­mátt­ar­þróun yfir lengri tíma, t.d. út frá gild­is­tíma lífs­kjara­samn­ings. Þegar málið sé skoðað í því sam­hengi komi í ljós að kaup­máttur launa hafi auk­ist um sjö pró­sent frá gild­is­töku lífs­kjara­samn­ings­ins í apríl 2019 þrátt fyrir að efna­hags­um­svif hafi dreg­ist saman á tíma­bil­inu vegna heims­far­ald­urs.

[adspot]Hag­stofan birti nýjar tölur í síð­ustu viku sem sýndu að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna heim­ila lands­ins dróst saman um tæp­lega 1,5 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2022, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní, þegar hann er bor­inn saman við sama árs­fjórð­ung í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn síðan á fjórða árs­fjórð­ungi 2020 sem kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna dregst sam­an. Ástæða þessa er stór­aukin verð­bólga.

Í tölum Hag­stof­unnar kom einnig fram að heild­ar­gjöld heim­ila hafi auk­ist um tæp­lega tíu pró­sent á öðrum árs­fjórð­ung­i.

Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna jókst heilt yfir umtals­vert á árinu 2021, eða um 5,4 pró­sent sam­an­borið við árið 2020. Lang­mesta aukn­ingin var frá miðju síð­asta ári og náði hún vel inn á þetta ár, en 7,2 pró­sent kaup­mátt­ar­aukn­ing var á fyrsta árs­fjórð­ungi 2022.

Halldór Benjamín benti á það í sinni grein að kaup­máttur allra tekju­tí­unda hefði auk­ist á síð­asta ári og það hefði líka átt við um þró­un­ina 2018-2021, ef lægsta tekju­tí­undin er und­an­skilin. Frá 2016 hefði kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna auk­ist um 20 pró­sent og á síð­ast­liðnum ára­tug um 39 pró­sent að með­al­tali.

Miklar fjármagnstekjur lituðu kaupmáttaraukningu

Helsta ástæða þess að ráð­stöf­un­ar­tekjur juk­ust svona mikið á síð­asta ári er að fjár­magnstekjur náðu met­hæðum. Alls höfðu ein­stak­lingar 181 millj­arða króna í slíkar tekjur á árinu 2021, sem var 65 millj­örðum krónum meira en allar fjár­magnstekjur ein­stak­lingar voru árið áður. Þær hækk­uðu því um 57 pró­sent milli ára, mest vegna sölu­hagn­aðar hluta­bréfa sem var 69,5 millj­arðar króna á árinu 2021.

Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­tí­undum sem Bjarni Bene­dikts­­­­son, fjár­­­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­­sent lands­­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­­sent allra fjár­­­­­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

[adspot]Hjá þeim tíu pró­sent heim­ila í land­inu sem höfðu hæstar tekjur hækk­­uðu ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur að með­­al­tali um ríf­­lega tíu pró­­sent í fyrra, að lang­­mestu leyti vegna auk­inna fjár­­­magnstekja. Tekju­hækkun hjá öðrum hópum sam­­fé­lags­ins var mun minni, en kaup­máttur ráð­­stöf­un­­ar­­tekna ein­stak­l­inga hækk­­aði að með­­al­tali um 5,1 pró­­sent í fyrra.

Því er ljóst að stærstur hluti þeirra kaup­mátt­ar­aukn­ingar sem varð í fyrra lenti hjá tekju­hæstu tíu pró­sentum lands­manna.

Greiðslu­byrði lána hækkað skarpt

Frá því að hin skarpa kaup­mátt­ar­aukn­ing hófst um mitt ár í fyrra hefur margt breyst. Þar ber helst að nefna að verð­bólga hefur stór­auk­ist, með til­heyr­andi verð­hækk­un­um.

Til að takast á við hana hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti úr 0,75 pró­sent í maí í fyrra í 5,5 pró­sent nú. Það hefur gert það að verkum að greiðslu­byrði íbúða­lána fjöl­margra hefur stökk­breyst.

Á heima­síðu Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) var nýverið tekið dæmi af breyti­legu óverð­tryggðu láni upp á 43,2 millj­ónir króna sem tekið var í fyrra­vor til að kaupa 90 fer­metra íbúð í Kópa­vogi.

Greiðslu­byrði þess láns hefur hækkað um 102 þús­und krónur á mán­uði og er nú 266 þús­und krón­ur. Á árs­grund­velli nemur aukin greiðslu­byrði láns­ins rúm­lega 1,2 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár