Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila landsins dróst saman um tæplega 1,5 prósent á öðrum ársfjórðungi ársins 2022, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní, þegar hann er borinn saman við sama ársfjórðung í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn síðan á fjórða ársfjórðungi 2020 sem kaupmáttur ráðstöfunartekna dregst saman.
Ástæða þessa er stóraukin verðbólga, sem nú mælist 9,7 prósent. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun.
Þar kemur fram að ráðstöfunartekjur heimila í krónum talið hafi aukist um 9,1 prósent á öðrum ársfjórðungi. Þegar gert er ráð fyrir áhrifum verðbólgu varð niðurstaðan hins vegar sú að kaupmáttur dróst saman. Fleiri krónur komu í veskið, en minna fékkst fyrir þær en áður.
Í tölum Hagstofunnar kemur fram að heildargjöld heimila hafi aukist um tæplega tíu prósent á öðrum ársfjórðungi.
Þar kemur einnig fram að á árinu 2021 hafi kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila aukist um 5,4 prósent samanborið við árið 2020.
Ráðstöfunartekjur efstu tíundar jukust mest í fyrra
Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst heilt yfir umtalsvert á árinu 2021, eða um 5,4 prósent samanborið við árið 2020. Langmesta aukningin var frá miðju síðasta ári og náði hún vel inn á þetta ár, en 7,2 prósent kaupmáttaraukning var á fyrsta ársfjórðungi 2022.
[adspot]Helsta ástæða þess að ráðstöfunartekjur jukust svona mikið á þessu tímabili var að fjármagnstekjur náðu methæðum á síðasta ári. Alls höfðu einstaklingar 181 milljarða króna í slíkar tekjur á árinu 2021, sem var 65 milljörðum krónum meira en allar fjármagnstekjur einstaklingar voru árið áður. Þær hækkuðu því um 57 prósent milli ára, mest vegna söluhagnaðar hlutabréfa sem var 69,5 milljarðar króna á árinu 2021.
Kjarninn greindi frá því í júlí að í greiningu á álagningu opinberra gjalda einstaklinga eftir tekjutíundum sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi 22. júní síðastliðinn, hafi komið fram að þau tíu prósent landsmanna sem höfðu mestar fjármagnstekjur á síðasta ári hafi tekið til sín 81 prósent allra fjármagnstekna einstaklinga á árinu 2021.
Hjá þeim tíu prósent heimila í landinu sem höfðu hæstar tekjur hækkuðu ráðstöfunartekjur að meðaltali um ríflega tíu prósent í fyrra, að langmestu leyti vegna aukinna fjármagnstekja. Tekjuhækkun hjá öðrum hópum samfélagsins var mun minni, en kaupmáttur ráðstöfunartekna einstaklinga hækkaði að meðaltali um 5,1 prósent í fyrra.
Því er ljóst að stærstur hluti þeirra kaupmáttaraukningar sem varð í fyrra lenti hjá tekjuhæstu tíu prósentum landsmanna.
Greiðslubyrði lána hækkað skarpt
Frá því að hin skarpa kaupmáttaraukning hófst um mitt ár í fyrra hefur margt breyst. Þar ber helst að nefna að verðbólga hefur stóraukist, með tilheyrandi verðhækkunum.
[links]Til að takast á við hana hefur Seðlabanki Íslands hækkað stýrivexti úr 0,75 prósent í maí í fyrra í 5,5 prósent nú. Það hefur gert það að verkum að greiðslubyrði íbúðalána fjölmargra hefur stökkbreyst.
Á heimasíðu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) var nýverið tekið dæmi af breytilegu óverðtryggðu láni upp á 43,2 milljónir króna sem tekið var í fyrravor til að kaupa 90 fermetra íbúð í Kópavogi.
Greiðslubyrði þess láns hefur hækkað um 102 þúsund krónur á mánuði og er nú 266 þúsund krónur. Á ársgrundvelli nemur aukin greiðslubyrði lánsins rúmlega 1,2 milljónum króna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir