Hvað varð um fellibyljina?

Það saknar þeirra eng­inn en margir eru farnir að velta vöngum yfir hvað orðið hafi af þeim. Af hverju þeir séu ekki komnir á stjá, farnir að ógna mönnum og öðrum dýrum með eyð­ingar mætti sínum, líkt og þeir eru vanir á þessum árs­tíma.

Samsett mynd frá NOAA sem sýnir gervitunglamyndir af fellibyljunum sem geisuðu á Atlantshafi árið 2020. Þeir hafa aldrei verið fleiri.
Samsett mynd frá NOAA sem sýnir gervi­tungla­myndir af felli­bylj­unum sem geisuðu á Atl­ants­hafi árið 2020. Þeir hafa aldrei verið fleiri.

„Margt sem vekur furðu í veðr­inu á þessu sumri,“ segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri veð­ur­vefs­ins Blika.is. Í færslu á Facebook-síðu sinni bendir hann á að nú ætti felli­bylja­tíðin að vera að kom­ast „á fullt skrið“, bæði á Atl­ants­haf­inu og í Kyrra­haf­inu. „Ekki það að maður sé að óska þeirra sér­stak­lega,“ segir Einar, „en til þessa hafa verið skráðir þrír hita­belt­is­stormar á Atl­ants­haf­inu, sá síð­asti snemma í júlí! Enginn þeirra náði styrk felli­byls.“ Sömu sögu sé að segja frá Kyrra­haf­inu.

„Á Atl­ants­haf­inu var spáð fleiri felli­byljum en í með­al­ári eða 6-10 af styrk felli­bylja og þar af 3 til 5 meiri­háttar,“ segir Einar. „En hvorki bólar á þeim, né umræðu á vefnum meðal þeirra sem best þekkja hverju veldur nú.“

[adspot]

Einar er þó ekki eini veð­ur­fræð­ing­ur­inn sem er að velta þessu fyrir sér. Það gerir einnig veð­ur­fræð­ingur banda­ríska veð­ur­frétta­vefs­ins AccuWeather. Í frétt hans um málið segir að nú sé aðeins um vika eftir á þriggja mán­aða tíma­bili sem ein­kenn­ist oft­ast af mörgum felli­byljum í Atl­ants­hafi og líkt og Einar segir hefur enn eng­inn hita­belt­is­stormur náð því að verða að felli­byl.

Sjávarhitinn hærri en venjulega

Hita­belt­is­stormar eru knúnir af guf­un­ar­varma raka sem berst úr sjónum. Til þess þarf yfir­borðs­hit­inn að ná til­teknu marki. Einar bendir í pistli sínum á að sjá megi á nýrri sjáv­ar­hita­grein­ingu að ekki er sjáv­ar­hit­anum um að kenna – hann er rauður (>28°C) á þessum þekktu felli­bylja­haf­svæðum. Einhver önnur skýr­ing sé á því að felli­bylj­irnir hafi ekki látið sjá sig.

Adam Sadvary, veð­ur­fræð­ingur hjá AccuWeather, er með þá kenn­ingu að þurrt og rykugt loft frá Sahara-eyði­mörk­inni í Afríku sem og óvenju­legar vind­áttir eigi þátt í því að „felli­bylja­tíma­bilið hefur verið kyrr­látt það sem af er“.

Síðustu ár verið metár

Felli­bylja­tíma­bilið í Atl­ants­hafi nær yfir­leitt hámarki á fyrri hluta sept­em­ber­mán­aðar. Þrír hita­belt­is­stormar urðu í júní og júlí en eng­inn enn sem komið er í ágúst. Fari svo að ágúst verði laus við slíka storma er það aðeins í þriðja sinn frá árinu 1961 sem það ger­ist. Það var mjög óvenju­legt því tólf hita­belt­is­stormar urðu, þar af urðu átta þeirra að felli­byljum. Þeir geisuðu hins vegar allir í júní og júlí en eng­inn í ágúst. Það er því ekki óþekkt að frá­vik eigi sér stað milli ára hvað þetta varðar.

Árin 2020 og 2021 var hins vegar ákefðin gríð­ar­leg. Í fyrra varð 21 hita­belt­is­stormur og árið þar áður voru þeir 30 sem er met frá upp­hafi mæl­inga.

Það er ekki úti­lokað að aðstæður breyt­ist á næstu dögum og að hita­belt­is­stormur, jafn­vel felli­bylur, verði til í Atl­ants­haf­inu. Það er þó að mati veð­ur­fræð­ings AccuWeather ólík­legt að slíkt ger­ist fyrir ágúst­lok.

„En mögu­lega springur þetta allt úr í sept­em­ber – hver veit?“ spyr Einar Svein­björns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veðurfar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár