Enn ein hitabylgjan og skuggalegur vatnsskortur vofir yfir

Það er ekki aðeins brenn­andi heitt heldur einnig gríð­ar­lega þurrt með til­heyr­andi hættu á gróð­ur­eldum víða í Evrópu. En það er þó vatns­skort­ur­inn sem veldur mestum áhyggjum.

Það verður enn ein­hver bið á því að fólk og önnur dýr á meg­in­landi Evrópu geti varpað önd­inni léttar eftir sögu­legar hita­bylgjur sum­ars­ins. Þrátt fyrir að rúm­lega vika sé liðin af ágúst er áfram spáð miklum hita í norðan- og vest­an­verðri álf­unni þessa vik­una. Spáð er 38 stigum í hluta Frakk­lands og á Spáni frá mið­viku­degi til laug­ar­dags.

Bretar sleppa ekki heldur undan hita­bylgj­unni. Þar er spáð allt að 35 stigum þegar líður á vik­una og jafn­vel talið að nokkuð lang­dregið heitt og þurrt tíma­bil sé framundan. Hitamet var slegið í Bret­landi í síð­asta mán­uði en þá fór hit­inn upp í 40,3 gráður. Hann verður lægri í þeirri bylgju sem nú ríður yfir en hún mun standa lengur yfir ef veð­ur­spár verða að veru­leika.

[adspot]

Þurrk­arnir á Bret­landseyjum hafa verið það miklir nú þegar að farið er að skammta vatn og á sumum svæðum bannað að nota garðslöngur. Þá er fólk hvatt til að kveikja ekki á grillum því hætta á gróð­ur­eldum er mikil. „Það er útlit fyrir lang­dregin þurrka­tíma framundan og aug­ljós­lega eru það slæmar fréttir fyrir suð­ur­hluta Englands þar sem rign­ing hefði verið kær­komin,“ hefur Sky frétta­stofan eftir veð­ur­fræð­ingi. Sá segir að sem betur fer ætli hit­inn í vik­unni ekki að verða jafn yfir­þyrm­andi og í júlí en engu að síður mun fólk finna fyrir hita­bylgj­unni, hita yfir 30 stigum í fleiri daga sam­fellt.

Ekkert vatn í pípunum

Bretland er langt í frá eina landið þar sem lang­vinnir þurrkar hafa geisað. Í Frakk­landi hafa stjórn­völd skipað sér­stakt neyð­arteymi til að bregð­ast við skorti á drykkj­ar­vatni í yfir 100 sveit­ar­fé­lögum í land­inu. Tank­bílar flytja nú vatn til þeirra svæða sem verst hafa orðið úti, „því það er ekki dropi eftir í vatns­lögn­unum,“ segir Christophe Béchu, ráð­herra umhverf­is­mála. „Þetta er for­dæma­laust ástand og vondu frétt­irnar eru þær að við sjáum ekk­ert sem bendir til þess að því sé að ljúka.“

Franski for­sæt­is­ráð­herr­ann Elisa­beth Borne hefur varað landa sína við því að við blasi mestu þurrkar frá upp­hafi mæl­inga.

Hita­bylgja hefur hangið yfir Frakk­landi síðan í júní. Tré og runnar hafa fellt lauf þar sem þau fá ekki nægan vökva til að þríf­ast. Allt að því haust­legt er því víða um að lit­ast.

Í nokkra daga blés kald­ara lofti yfir sum svæði en nú er enn og aftur að hitna í veðri.

Ekkert lát eru heldur á hit­unum á Ítalíu og þar hefur sextán borgum verið skipað á „rauðan lista“ þar sem hiti hefur farið og mun fara yfir 40 gráður.

Sumarið hefur verið svo þurrt og heitt að ótt­ast er bæði um vín­ekrur og hrís­grjóna­akra í Po-dalnum en grjónin þar eru sér­lega hentug til að gera risottó. Óttast er að hrís­grjóna­upp­skeran verði ekki upp á marga fiska í ár og jafn­vel næstu ár þar sem jarð­veg­ur­inn er orð­inn saltur og plöntur hafa drep­ist. Fleiri land­bún­að­ar­af­urðir eru sann­ar­lega í hættu líka og telur land­bún­að­ar­ráð­herr­ann að mik­ill upp­skeru­brestur kunni að verða enda þurrk­arnir þeir verstu í land­inu í sjö ára­tugi.

Hol­lend­ingar búa einnig við vatns­skort og hefur inn­við­a­ráð­herra lands­ins hvatt fólk til að stytta sturtu­ferðir sínar og til að bíða með að þvo bíla sína og vökva garða. Engin rign­ing er í kort­unum og því má búast við frek­ari erf­ið­leikum við vatns­miðlun í Hollandi.

Hol­lend­ingar eru meðal stærstu útflytj­enda land­bún­að­ar­vara í heim­inum en nú hefur bændum verið bannað að vökva engjar sínar með yfir­borðs­vatni. Í for­gangi er að afla vatns sem hreinsa má til drykkju.

[adspot]

Vatns­borð Rín­ar­fljóts í Þýska­landi hefur lækkað svo mikið að skip geta ekki lengur siglt full­fermd um það. Þetta hefur leitt til hækk­aðs vöru­verðs. Skipin geta mörg hver aðeins siglt með um 25 pró­sent af hefð­bundnum farmi.

Vatn í Dóná í Rúmeníu hefur minnkað svo mikið að sand­eyjar hafa mynd­ast í far­vegi hennar.

Í síð­ustu viku hvatti fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins aðild­ar­ríkin til að nýta frá­veitu­vatn í borgum til að vökva akra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veðurfar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár