Sex skrítnar staðreyndir um tíðarfarið í nóvember

Raf­skútur í röðum – á fleygi­ferð. Fjöldi fólks á golf­völlum. Borðað úti á veit­inga­stöðum. Nóvember fór sér­lega blíðum höndum um Ísland þetta árið. Svo óvenju blíðum að hann fer í sögu­bæk­urnar.

Rauð viðvörun! Rauði liturinn táknar að hiti á viðkomandi veðurstöð hafi verið hærri í nóvember en að meðaltali síðustu tíu árin á undan.
Rauð við­vörun! Rauði lit­ur­inn táknar að hiti á við­kom­andi veð­ur­stöð hafi verið hærri í nóv­em­ber en að með­al­tali síð­ustu tíu árin á undan. Mynd: Skjáskot: Veðurstofan

Sá hlýjasti frá upphafi mælinga

Nóvember, ell­efti mán­uður árs­ins, var hlýr um allt land og með­al­hiti var sá hæsti sem mælst hefur í nóv­em­ber á lands­vísu. Hann var um þremur gráðum hlýrri en að með­al­lagi og sló naum­lega hita­met nóv­em­ber­mán­aðar frá 1945, segir í sam­an­tekt Veð­ur­stofu Íslands.

[adspot]

Og hann var með hlýj­ustu nóv­em­ber­mán­uðum sem mælst hafa á mörgum veð­ur­stöðvum, t.a.m. sá hlýjasti frá upp­hafi mæl­inga í Grímsey, á Teig­ar­horni og á Hvera­völlum, og aðeins einu sinni hefur mán­að­ar­með­al­hiti nóv­em­ber verið jafn hár í Árnesi.

Samkvæmt Trausta Jónssyni veð­ur­fræð­ingi var mán­uð­ur­inn sá hlýjasti á öld­inni á spá­svæðum allt frá Breiða­firði norður og austur um og að og með Aust­ur­landi að Glett­ingi.

Með­al­hiti mán­að­ar­ins var hæstur 7,3 stig á Steinum undir Eyja­fjöllum.

Hæsti hiti sem mæld­ist á land­inu var 16,3 stig á Miðsitju í Skaga­firði þann 13 nóv­em­ber. Lægstur mæld­ist hit­inn -15,5 stig þennan sama dag í Svart­ár­koti.

Aldrei meiri úrkoma á ellefu mánuðum í Reykjavík

Mjög úrkomu­samt var í mán­uð­inum á Aust­ur­landi. Nýliðinn mán­uður var t.a.m. næst úrkomu­samasti nóv­em­ber­mán­uður í 85 ára langri mæli­sögu á Dala­tanga, þar sem úrkoman mæld­ist 375,5 mm.

Það sem af er ári hefur verið sér­lega úrkomu­samt í Reykja­vík. Heild­ar­úr­koma fyrstu ell­efu mán­aða árs­ins hefur aldrei mælst meiri í borg­inni. Í jan­úar til nóv­em­ber mæld­ust 1031,3 mm í Reykja­vík sem er 32% umfram með­al­heild­ar­úr­komu sömu mán­aða árin 1991 til 2020 og 24% umfram með­al­lag und­an­far­ins ára­tugar.

Nær snjólaust á miðhálendinu

Nýliðinn nóv­em­ber var einnig sá hlýjasti á öld­inni á mið­há­lend­inu. Þar er að sögn Trausta með­al­frá­vik í hita miðað við síð­ustu tíu ár mest. „Nær algjört snjó­leysi var á veð­ur­stöðvum á þessum slóðum allan mán­uð­inn sem hann segir óvenju­legt.“

Aldrei jafnstríð austanátt í háloftunum

Meg­in­á­stæða þess­ara hlý­inda er rakin til stöðugrar suð­aust­anáttar. „Aust­an­átt háloft­anna hefur aldrei verið jafn­stríð í nóv­em­ber,“ bendir Trausti á, „og sárasjaldan í öðrum mán­uðum“.

Síðasti mið­viku­dagur nóv­em­ber „ramm­aði inn“ hið óvenju­lega tíð­ar­far mán­að­ar­ins, skrifar Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur á Facebook-síðu sinni. Þá urðu tals­vert áköf en skamm­vinn hlý­indi „þegar fleygur af lofti með suð­lægan upp­runa“ fór norð­austur yfir landið.

Maríuerla enn á landinu

„Mar­íu­erla á Laug­ar­vatni rétt í þessu. Það er óvenju­legt. Sást líka fyrir viku.“ Þetta skrif­aði fugla­fræð­ing­ur­inn Tómas Grétar Gunn­ars­son á Facebook í gær. Mar­íu­erlan er far­fugl og flýgur að öllu jöfnu héðan að hausti og alla leið til Vestur-Afríku. En góð­viðrið á land­inu síð­ustu vikur og mán­uði hefur ef til vill ruglað hana í rím­inu.

Tómas var spurður hvort að þessi litli fagri fugl, sem er í miklu upp­á­haldi hjá mörgum Íslend­ingum, geti lifað af vet­ur­inn hér. „Það er ólík­legt nema hún kom­ist ein­hvers staðar inn þar sem hún finnur pöddur,“ svarar Tómas. „Mar­íu­erlur hafa lifað af vetur hér í gróð­ur­húsum og úti­húsum.“

Meiri sól, meiri sól, meiri sól

Sól­skins­stundir í Reykja­vík mæld­ust 40,8 í nóv­em­ber, en það er 1,1 stund yfir með­al­lagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mæld­ust sól­skins­stundir mán­að­ar­ins 8,8, eða 6,4 stundum undir með­al­lagi tíma­bils­ins 1991 til 2020. Það sást því oftar til sólar en við eigum yfir­leitt að venj­ast.

[adspot]

Og það er vissu­lega ágætt að þurfa ekki að skafa snjó af bílnum á morgn­ana eða vaða hann upp að hnjám á leið í strætó eða á göngu til vinnu og skóla. Og síð­ustu vikur hefur fólk notað reið­hjólin sín og raf­skutlur til að kom­ast ferða sinna enda hvorki hálku né snjó fyrir að fara. En snjór­inn lýsir upp skamm­degið og það hefur því verið sér­lega dimmt, sér­stak­lega í væt­unni, þegar fólk er helst á ferli að morgni og síð­degis.

En örvæntið eigi. Snjórinn mun koma. Og það hlýtur að fara að stytt­ast í þau sjálf­sögðu tíma­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veðurfar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár