Undrandi veðurathugunarmenn vöknuðu við rigningu á toppi Grænlandsjökuls

Starfs­menn veð­ur­stöðvar á toppi Græn­lands­jök­uls ráku upp stór augu er þau sáu rign­ingu á rúðum þar að morgni dags 14. ágúst. Ekki er vitað til þess að áður hafi rignt efst á Græn­lands­jökli.

Í 3.216 metra hæð efst uppi á Grænlandsjökli, er þessi veðurstöð, sem er mönnuð allt árið.
Í 3.216 metra hæð efst uppi á Græn­lands­jökli, er þessi veð­ur­stöð, sem er mönnuð allt árið. Mynd: Peter West/Wikimedia

Þann 14. ágúst rigndi á efsta punkti íshellu Græn­lands­jök­uls, í fyrsta skipti svo menn viti til. Þau sem starfa þar við veð­ur­mæl­ingar og rann­sóknir vökn­uðu við hljóðið í regn­inu og voru undr­andi á að sjá regn­dropa á rúðum. Enginn man eftir að hafa séð svo mikið sem dropa koma úr lofti á þessum slóðum áður.

Hita­stigið við veð­ur­stöð­ina efst á jökl­inum, í 3.216 metra hæð, var yfir frost­marki í um níu klukku­stundir sam­fleytt, að því er fram kemur á vef banda­rísku stofn­un­ar­innar NSIDC, sem fylgist með snjó og ís víða um heim.

Samkvæmt því sem segir í umfjöllun Washington Post um þennan for­dæma­lausa veð­ur­at­burð rigndi á toppnum með hléum í um 13 klukku­stundir, en eng­inn veit nákvæm­lega hversu mikil rign­ingin var.

Það voru nefni­lega engir regn­mælar á staðnum, enda bjóst eng­inn við því að það færi að rigna í þess­ari hæð.

Þarna er líka eig­in­lega alltaf frost. Raunar hefur hita­stigið á toppi Græn­lands­jök­uls ein­ungis farið þrí­vegis yfir frost­mark á síð­ustu 32 árum, eða frá því að veð­ur­mæl­ingar þar hófust árið 1989. Fjórða skiptið var síðan núna 14. ágúst og hefur hita­stigið aldrei risið yfir frost­mark jafn seint á árinu og í ár.

Samkvæmt borkjarna­mæl­ingum sem gerðar hafa verið á toppi Græn­lands­jök­uls eru engin merki um að ís hafi bráðnað þar frá því seint á nítj­ándu öld og þar til árið 1995, er hiti fór upp fyrir frost­mark efst á íshell­unni í fyrsta sinn frá því veð­ur­at­hug­un­ar­stöðin var tekin í gagnið.

Hlýtt loft sogast yfir ísinn og stöðvast

Ástæðan fyrir hlý­ind­unum á þessum slóðum síð­ustu helgi var sam­spil lægðar við Baffins­land í Norður-Kanada og háþrýsti­svæðis sem lá við suð­aust­ur­strönd Græn­lands, en vegna fyr­ir­stöð­unnar sem háþrýsti­svæðið skap­aði dróst heitt loft úr suðri með lægð­inni inn á íshell­una, stöðv­að­ist þar og olli tölu­verðri bráðnun á yfir­borði jök­uls­ins, dag­ana 14. til 16. ágúst.

[adspot]

Nákvæm­lega þessi hringrás lofts­ins er kunn orsök bráðn­unar á yfir­borði Græn­lands­jök­uls og virð­ist afleið­ingar þess­arar stöðn­unar heitra loft­strauma sem stað­næm­ast yfir jökl­inum vera að verða alvar­legri, að sögn vís­inda­manna.

Þrátt fyrir að það hafi eitt og sér ekki gríð­ar­leg áhrif að bráðnun hafi átt sér stað á Græn­lands­jökli á dög­unum – og reyndar einnig í júlí­mán­uði – er það mat vís­inda­manns­ins Ted Scambos við Colorado-háskóla í Banda­ríkj­unum að bráðn­unin um liðna helgi og rign­ingin á toppnum gefi til kynna að auk­inn ákafi kunni að vera að fær­ast í bráðnun Græn­lands­jök­uls.

Hann segir við Washington Post að rétt eins og hita­bylgjan sem gengið hefur yfir norð­vest­ur­hluta Banda­ríkj­anna að und­an­förnu sé þetta „nokkuð sem er erfitt að ímynda sér að gæti verið að eiga sér stað án áhrifa lofts­lags­breyt­inga.“

„Grænland, eins og aðrir staðir í heim­inum, er að breyt­ast,“ segir Scambos við blaðið.

Fyrr í mán­uð­inum kom út nýjasta skýrsla Milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar, þar sem sagði meðal ann­ars að enn greini­lega væri orðið en áður að athafnir mann­kyns væru meg­in­or­sök marg­vís­legra breyt­inga á lofts­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veðurfar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár