Heimili Emmetts Till gert upp og opnað almenningi

Emmett Till var aðeins fjórtán ára er hann var pynt­aður og drep­inn af hópi hvítra karla í Miss­issippi. Heimili hans í Chicago verður brátt að safni.

Emmett Till á jólunum árið 1954. Þá var hann þrettán ára.
Emmett Till á jól­unum árið 1954. Þá var hann þrettán ára.

Í ágúst árið 1955 yfir­gaf Emmett Till heim­ili sitt í Chicago í síð­asta skipti. Hann ætl­aði aðeins að fara tíma­bundið í heim­sókn til ætt­ingja í Miss­issippi en hroða­legir hlutir áttu eftir að ger­ast. Hinn fjórtán ára gamli drengur var num­inn á brott úr húsi frænd­fólks síns og pynt­aður og loks drep­inn. Málið vakti strax mik­inn óhug og afhjúpaði það mikla kyn­þátta­hatur sem ríkti í suð­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna á þessum tíma.

Sögu hans hefur alla tíð síðan, ekki síst hin síð­ari ár, verið haldið á lofti til marks um þá níð og þá for­dóma sem svartir Banda­ríkja­menn upp­lifðu og upp­lifa enn í dag.

Hús móður hans í suð­ur­hluta Chicago, húsið sem hann yfir­gaf árið 1955, á nú að gera upp af mynd­ar­brag með styrk frá menn­ing­ar­sam­tökum sem vilja vekja athygli á merkum stöðum í sögu svartra Banda­ríkja­manna.

[adspot]

Vernd­ar­sjóð­ur­inn African American Cultural Heritage Action Fund útdeildi á dög­unum styrkjum til 33 verk­efna vítt og breitt um landið í þessum til­gangi. Eitt þeirra er við­hald á bygg­ingu sem hýsti skóla verka­fólks í Oklahoma og annað er varð­veisla banka­bygg­ingar í Miss­issippi sem var stofn­aður af einum áhrifa­mesta við­skipta­manni lands­ins.

Brent Leggs, sem fer fyrir vernd­ar­sjóðnum, segir að mikið vanti upp á að varð­veita sögu svartra Banda­ríkja­manna. Hann von­ast til þess að styrkir sjóðs­ins, sem nú hefur verið úthlutað fimmta árið í röð, eigi eftir að „fylla upp í göt“ sög­unnar, ekki síst um rétt­inda­bar­áttu svartra.

Morðið á Till varð einn stærsti vendi­punktur í þeirri bar­áttu. Og nú á að gera hús mæðgin­anna upp í þeirri mynd sem það var í er Emmett litli fór að heiman.

„Þetta hús er heil­agt í okkar huga og mark­mið okkar er að gera það upp sem alþjóð­legan sögu­stað,“ hefur AP-frétta­stofan eftir Naomi Davis, sem fer fyrir sam­tök­unum sem keyptu húsið árið 2020 með það í huga að varð­veita það.

Hún segir að áherslan verði ekki síður lögð á líf Mamie Till Mobley, móður Emmetts en sögu hans. Er hann fór að heiman og var drep­inn með hrotta­fengnum hætti af hópi hvítra karla í Miss­issippi, krafð­ist móðir hans þess að lík hans yrði haft í opinni kistu og að allir gætu séð það. Líkið var illa leikið og hafði verið dregið upp úr á, nokkrum dögum eftir morðið. Með þessu vildi móðir hans að allir vissu hvernig ras­ismi liti út.

Og þús­undir hlýddu kalli hennar og vott­uðu Emmett virð­ingu sína. Millj­ónir sáu líka mynd af lík­inu í kist­unni sem birtar voru í Jet Magazine.

Ein þeirra var Rosa Parks. Þremur mán­uðum síðar neit­aði hún að standa upp fyrir hvítum manni í stræt­is­vagni í Montgomery í Alabama-ríki. Þau kröft­ugu mót­mæli hennar gegn kyn­þátta­að­skiln­aði mark­aði tíma­mót í rétt­inda­bar­áttu svartra í Banda­ríkj­unum.

Vera Ill­uga­dóttir gerði þátt um Emmett Till í þátta­röð sinni Í ljósi sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár