Ísland ekki lengur neðst Norðurlandanna á Regnbogakortinu

Ísland er komið í topp tíu á Regn­boga­korti ILGA-Europe, sem er mæli­kvarði á laga­lega stöðu hinsegin fólks í alls 49 ríkjum Evrópu. Stefnan er að fara enn hærra, með frek­ari rétt­ar­bótum til handa hinsegin fólki á Íslandi.

Ísland færist upp um fimm sæti á Regnbogakorti ársins 2022.
Ísland fær­ist upp um fimm sæti á Regn­boga­korti árs­ins 2022. Mynd: ILGA-Europe

Eftir að hafa verið í 18. sæti árið 2019 og 14. sæti árin 2020 og 2021 er Ísland nú komið upp í 9. sæti á Regn­boga­korti evr­ópsku deildar Alþjóða­sam­taka hinsegin fólks (ILGA-Europe), en Regn­boga­kortið er mæli­kvarði á það hversu vel ríki Evrópu tryggja rétt­indi hinsegin fólks.

Ástæðan fyrir því að Ísland fær­ist upp um sæti er meðal ann­ars sú að breyt­ingar á barna­lögum leiddu til bætts réttar trans for­eldra þegar kemur að for­eldra­skrán­ingu, sam­kvæmt því sem fram kemur í umfjöllun ILGA-Europe.

Ísland skýst nú upp fyrir eitt hinna Norð­ur­land­anna, en Finnland fellur um sex sæti á milli ára og er nú í 12. sæti list­ans. Danmörk er í 2. sæti, Svíþjóð í 4. sæti og Noregur í 6. sæti, í þess­ari mæl­ingu.

[adspot]

Regn­boga­kortið tekur til alls 49 ríkja Evrópu og trónir mið­jarð­ar­hafs­eyjan Malta í efsta sæti, eins og fyrri ár, en þar í landi er rétt­ar­staða hinsegin fólks trygg­ari en í öllum öðrum ríkjum álf­unnar og upp­fyllir eyríkið 92 pró­sent þeirra atriða sem litið er til í mati ILGA-Europe.

Á hinum enda kvarð­ans er Aserbaídsjan, sem upp­fyllir ein­ungis um tvö pró­sent þeirra atriða sem litið er til á Regn­boga­kort­inu. Ísland, til sam­an­burðar, upp­fyllir nú um 63 pró­sent atrið­anna.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag segir að Ísland stefni enn hærra, með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðgerða­á­ætlun í mál­efnum hinsegin fólks, sem Kjarninn fjall­aði um fyrr á þessu ári er drög að henni lágu frammi til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þar mátti finna alls 17 aðgerðir sem ætlað var að stuðla að rétt­ar­bótum og bættri stöðu hinsegin fólks.[links]

ILGA-Europe hvetur til þess í umfjöllun sinni um Ísland að íslensk stjórn­völd grípi til frek­ari aðgerða til þess að bæta laga­lega stöðu hinsegin fólks, meðal ann­ars þess að minn­ast sér­stak­lega á kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu og kynein­kenni í öllum stefnum sem eru mark­aðar gegn hat­urs­glæpum hér­lendis og til þess að fjallað verði sér­stak­lega um þessi sömu atriði í laga­á­kvæðum sem fjalla um alþjóð­lega vernd.

Þá er sömu­leiðis hvatt til þess að bann við lækn­is­fræði­legum inn­gripum í kynein­kenni inter­sex barna verði útvíkkað frekar hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár