„Mannréttindi útlendinga ættu ekki að vera minni en mannréttindi sakborninga á Íslandi“

Stjórnir Lækna­fé­lags Íslands og Félags lækna­nema telja breyt­ingu sem boðuð er á útlend­inga­lögum ekki sam­ræm­ast siða­reglum lækna.

Stjórn Lækna­fé­lags Íslands og stjórn Félags lækna­nema gerir alvar­legar athuga­semdir við þann hluta frum­varps um breyt­ingu á lögum um útlend­inga er varðar heil­brigð­is­skoð­anir og lækn­is­rann­sóknir. Sam­bæri­lega gagn­rýni hafa ein­stakir læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar gert. Frum­varps­drögin voru kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 28. jan­úar og rann umsagna­frestur út 11. febr­úar. 22 umsagnir bár­ust.

Það er 19. grein frum­varps­ins sem félögin tvö gera sér­stakar athuga­semdir við. Samkvæmt henni yrði lög­reglu gert heim­ilt „að skylda útlend­ing til að gang­ast undir heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn ef nauð­syn­legt þykir til að tryggja fram­kvæmd“.

[adspot]

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er sér­stak­lega fjallað um að þetta taki m.a. til heil­brigð­is­skoð­ana til að tryggja að ein­stak­lingur „sé nægi­lega hraustur til að geta ferð­ast (e. fit-to-fly)“.

„Við teljum þetta ekki sam­ræm­ast þeim siða­reglum sem læknar starfa eftir,“ segir í umsögn Lækna­fé­lags­ins og Félags lækna­nema og benda þau á að í 3. grein Helsinki-yfir­lýs­ing­ar­innar séu siða­reglur lækna í þessu sam­hengi vel teknar saman: „Gen­far­yf­ir­lýs­ing Alþjóða­fé­lags lækna bindur lækn­inn með orð­unum: „Ég mun hafa heilsu sjúk­linga minna að leið­ar­ljósi framar öllu öðru“ og í Alþjóða­siða­reglum lækna er því lýst yfir að „læknir skal aðeins gera það sem er sjúk­lingnum fyrir bestu, þegar hann veitir lækn­is­þjón­ustu“.

[links]Sé útlend­ingur sem vísa á úr landi til­neyddur til að sæta slíkri skoðun, „má gefa sér að við­kom­andi sé and­vígur því að vera vísað úr landi,“ segja félögin. „Oft hafa ein­stak­lingar í slíkri stöðu flókin vanda­mál, gjarnan á grunni áfallastreitu, og verið er að vísa þeim aftur í aðstæður þar sem þau telja lífi sínu og heilsu ógnað. Með því að gera ofan­greint vott­orð þyrfti læknir að telja að slík brott­vísun úr landi sé við­kom­andi fyrir bestu, sbr. ofan­greindar siða­reglur. Virðing fyrir mann­eskj­unni og gagn­kvæmt traust er grund­völlur lækn­is­starfs­ins. Fram­kvæmd sem þessi vinnur gegn hags­munum og mann­rétt­indum sjúk­linga, og teljum við hana stang­ast á við Mann­rétt­inda­yf­ir­lýs­ingu Sam­ein­uðu þjóð­anna.“

Í öðru lagi gera félögin alvar­legar athuga­semdir við að ekki sé kraf­ist dóms­úr­skurðar áður en útlend­ingur er neyddur til að sæta heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn. Til sam­an­burðar nefna þau 2. mgr. 78. gr. saka­mála­laga, þar sem segir: „Lík­ams­rann­sókn eða geð­rann­sókn skv. 77. gr. skal ákveðin með úrskurði dóm­ara nema fyrir liggi ótví­rætt sam­þykki þess sem í hlut á.“

Lögreglu heimilt að skylda fólk í líkamsrannsókn

Í til­felli sak­born­inga í saka­málum þurfi þannig dóms­úr­skurð til að gera lík­ams­rann­sókn á við­kom­andi. Í nýju frum­varps­drög­unum hafi lög­regla hins vegar „ein­fald­lega heim­ild til að skylda við­kom­andi til þess. Neiti útlend­ingur að und­ir­gang­ast slíka rann­sókn er lög­reglu heim­ilt, skv. frum­varpi, að sækja dóms­úr­skurð til þess.

Að okkar mati ætti þessu að vera öfugt snúið, að í öllum til­fellum þurfi að afla dóms­úr­skurðar nema fyrir liggi ótví­rætt sam­þykki þess sem í hlut á. Mann­rétt­indi útlend­inga ættu að ekki vera minni en mann­rétt­indi sak­born­inga á Íslandi.“

[adspot]

Þá benda félögin í umsögn sinni á að í frum­varp­inu sé margt óljóst um fram­kvæmd heil­brigð­is­skoð­ana og lækn­is­rann­sókna. „Hvaða læknar eiga að sinna þeim skoð­unum og til­heyr­andi útgáfu vott­orða? Þarf í ákveðnum til­fellum að leita álits sér­fræði­læknis? Hvað ef læknir telur við­kom­andi ekki vera hæfan til að vera fluttur úr landi? Hvað ef tveir læknar eru ósam­mála um slíkt, sbr. brott­vísun þung­aðrar konu árið 2019? Hvaða ábyrgð ber læknir sem ritar slík vott­orð?“

Heimild til að brjóta gegn mannréttindum

Stjórnir LÍ og FL telja að margir ágallar séu á 19. grein frum­varps­ins, en allra mik­il­væg­ast sé þó að fram­kvæmd á henni af hálfu lækna „er ekki í sam­ræmi við siða­reglur sem læknar eru skuld­bundnir til að starfa sam­kvæmt“.

Jafn­framt sé með frum­varp­inu boðuð heim­ild til að „brjóta gegn mann­rétt­indum fólks í mjög við­kvæmri stöðu“.

Stjórnir LÍ og FL hvetja dóms­mála­ráð­herra til að gera veru­legar breyt­ingar á þess­ari laga­grein áður en frum­varpið er lagt fram. „Hér er um flókin sið­fræði­leg álita­mál að ræða og hvetjum við ráð­herra til að leita ráð­gjafa frá sér­fræð­ingum á sviði sið­fræði í heil­brigð­is­þjón­ustu við end­ur­skoðun 19. gr. frum­varps­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár