„Ég er á lífi en ég lifi í raun og veru ekki“

Versti ótti Mohammad Ghanbari, 23 ára Afgana, varð að veru­leika í síð­ustu viku þegar honum var vísað úr landi eftir tæp­lega tveggja ára dvöl á Íslandi. Mohammad hefur verið á flótta í sex ár og er nú kom­inn aftur til Grikk­lands.

Jú, ég er með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi en verndin er engin og hér er ekk­ert líf. Ég er á lífi í Grikk­landi en ég lifi í raun og veru ekki.“

Þetta segir Mohammad Ghanbari, 23 ára Afgani, sem hefur verið á flótta frá því að hann var 16 ára gam­all. Mohammad er í hópi 15 umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem var vísað úr landi í síð­ustu viku.

Mohammad hafði dvalið á Íslandi í tæp tvö ár þegar lög­reglan hand­tók hann mánu­dags­kvöldið 1. nóv­em­ber. Hann, ásamt tveimur öðrum umsækj­endum um alþjóð­lega vernd, var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald og var haldið í fang­els­inu á Hólms­heiði.

Magnús Davíð Norðdahl, lög­maður, sagði í sam­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að það væri algjör­lega óboð­legt að unnið hafi verið að því að koma umbjóð­endum hans úr landi, aðeins nokkrum dögum áður en afstaða stjórn­valda til end­ur­upp­töku­beiðna í vernd­ar­málum þeirra liggi fyrir. Mál þeirra allra og tuga til við­bótar eru að mati Magn­úsar sam­bæri­leg máli hæl­is­leit­enda sem dómur féll í um miðjan októ­ber. Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var sú að óheim­ilt hefði verið að synja honum um end­ur­upp­töku máls síns vegna ásak­ana um taf­ir.

Eftir tvær nætur í fang­els­inu var Mohammad fluttur á Kefla­vík­ur­flug­völl ásamt 14 öðrum umsækj­endum um alþjóða­lega vernd. 41 lög­reglu­maður fylgdu þeim í leiguflug­vél til Grikk­lands, lands sem Mohammad þekkir vel en vekur upp hræði­legar minn­ingar.

Afganistan - Tyrkland - Grikkland - Ísland - Grikkland

Mohammad var 17 ára þegar hann lagði á flótta frá Afganist­an. Fyrst lá leiðin til Tyrk­lands og þaðan áfram til Grikk­lands. Þar dvaldi hann í rúm­lega fjögur ár þar til hann kom til Íslands í jan­úar 2021. Í við­tali við Kjarnann í maí lýsti hann dvöl­inni í Grikk­landi sem ógn­væn­legri og sagð­ist ekki geta hugsað sér að fara þangað aft­ur. „Það er ekki örugg­t,“ sagði Mohammad.

Hann var í hópi um 300 manns sem til stóð að vísa úr landi í sumar. Hópurinn var svo fjöl­mennur þar sem ekki var hægt að vísa fólki úr landi á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en í sumar voru flest lönd búin að afnema sótt­varna­reglur á landa­mærum. Hér­aðs­dómur komst svo að því í októ­ber að stjórn­völdum var óheim­ilt að synja palest­ínskum hæl­is­leit­anda um end­ur­upp­töku máls á grund­velli þess að hafa sjálfur tafið málið, meðal ann­ars með því að neita að fara í sýna­töku vegna COVID-19. Lögmaður Mohammad lagði í kjöl­farið fram kröfu á end­ur­upp­töku í máli hans, auk tuga ann­arra, sem stjórn­völd hafa enn ekki tekið afstöðu til.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í sumar að fólk sem hefur vernd í Grikk­landi búi við sömu skil­yrði og Grikkir og geti farið inn á vinnu­mark­að­inn. Það var ekki raunin fyrir Mohammed. Lífið í Aþenu var honum þung­bært og hann varð fyrir alvar­legri árás af hópi manna skömmu eftir að hann kom til borg­ar­innar, 17 ára gam­all. „Þeir voru fjórir sam­an. Og þeir réð­ust á mig,“ segir Mohammad. Í árásinni var hann einnig rændur og stóð eftir hjálp­ar­laus, and­lega og lík­am­lega nið­ur­brot­inn.

Við kom­una til Íslands fékk hann sál­fræði­að­stoð og hóf íslensku­nám í Dósa­verk­smiðj­unni, tungu­mála­skóla, sem hann hefur sinnt í rúm­lega ár. 6. októ­ber, tæpum mán­uði áður en honum var vísað úr landi, lauk hann stigi tvö í íslensku­námi frá skól­anum.

„Þegar ég kom til Íslands reyndi ég að byggja upp lífið mitt. Nú mun ég tapa því aft­ur. Það er mjög erfitt, ég var búinn að setja mér mark­mið og var að reyna að horfa fram á veg­inn. Ég vil ekki missa það þó litla sem ég er búinn að byggja upp á Íslandi. Með brott­vís­un­inni mun ég missa allt. Aft­ur,“ sagði Mohammad í sam­tali við Kjarnann í maí.

Og það er staðan nú. Mohammad er búinn að missa allt. Aftur.

Sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Mohammad hefur frá grískum yfir­völdum er hann vissu­lega enn með alþjóð­lega vernd þar í landi en dval­ar­leyfi hans er útrunn­ið. Hann þarf því að hefja umsókn­ar­ferlið að nýju og sækja um stöðu hæl­is­leit­anda.

Mann­úð­ar­sam­tök, alþjóð­leg, líkt og Rauði kross­inn, sem og inn­lend, líkt og Sol­aris, álykta að aðstæður í Grikk­landi séu flótta­fólki óboð­leg­ar. Rauði kross­inn hefur marg ítrekað skila­boð sín um að brott­flutn­ingur flótta­fólks til Grikk­lands er ófor­svar­an­legur.

„Rauði kross­inn á Íslandi for­­dæmir brott­vís­­anir íslenskra stjórn­­­valda á umsækj­endum um alþjóð­­lega vernd sem þegar hafa fengið stöðu sína við­­ur­­kennda í Grikk­landi. Félagið hefur ítrekað gagn­rýnt brott­vís­­anir til Grikk­lands og telur að þær skapi fólki hættu sem íslensk stjórn­­völd beri ábyrgð á,“ sagði í yfir­lýs­ingu Rauða kross­ins í síð­ustu viku eftir að hópnum var vísað úr landi.

Í viðtali við Kjarnann í maí lýsti Mohammad Ghanbari dvöl­inni í Grikk­landi sem ógn­væn­legri og sagðist ekki geta hugsað sér að fara þangað aft­ur. „Það er ekki örugg­t.“
Í við­tali við Kjarnann í maí lýsti Mohammad Ghanbari dvöl­inni í Grikk­landi sem ógn­væn­legri og sagð­ist ekki geta hugsað sér að fara þangað aft­ur. „Það er ekki örugg­t.“

Fleira fólk og meiri reiði í Grikklandi nú síðast

Mohammad sótti um alþjóð­lega vernd við kom­una til Íslands í jan­úar 2021. Umsókn hans var synjað af Útlend­inga­stofnun í apríl sama ár þar sem hann var skráður í gagna­grunn hjá grískum yfir­völdum í mars 2018 þar sem hann fékk alþjóð­lega vernd. Mohammad kærði ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar útlend­inga­mála í maí 2021 en nefndin tók undir nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar í ágúst. Mohammad óskaði eftir end­ur­upp­töku í jan­úar á þessu ári en var aftur synj­að. Eftir að dóm­ur­inn féll í októ­ber var krafa um end­ur­upp­töku máls Mohammad send stjórn­völdum.

„Ég er á lífi en ég lifi í raun og veru ekki,“ segir Mohammad. Við kom­una til Grikk­lands í síð­ustu viku fór hann beint á göt­una. Lífið í Aþenu hefur breyst mikið á þeim fimm árum sem liðin eru frá því að Mohammad var þar síð­ast. Hann segir mun fleira flótta­fólk á göt­unum, mörg búa á göt­unni. „Reiðin er miklu meiri,“ segir hann.

Mohammad eyddi fyrstu nótt­unum á garði í almenn­ings­garði í Aþenu en er nú komin með tíma­bundna aðstöðu í her­bergi sem hann fékk í gegnum kunn­ingja. „En það er bara í tíu daga, svo veit ég ekki hvað ger­ist,“ segir hann.

Mótmæli hafa staðið yfir í Grikk­landi síð­ustu daga þar sem bágri efna­hags­stöðu er mót­mælt. Verð­bólga í Grikk­landi mælist nú 12 pró­sent og hefur ekki verið meiri í tvo ára­tugi. Mót­mæl­endur krefj­ast bættra aðstæðna á atvinnu­mark­aði, launa­hækk­unum og færri upp­sögnum. Mohammad segir að hæl­is­leit­endur taki þátt í mót­mæl­unum og reyni að vekja á veikri stöðu flótta­fólks í land­inu.

„Grikk­land er ekki öruggur staður fyrir flótta­fólk. Grísk stjórn­völd veita enga aðstoð og flótta­fólk getur engan veg­inn aðlag­ast sam­fé­lag­inu. Það er engin fram­tíð hérna,“ segir Mohammad.

Til­finn­ingin er önnur á Íslandi þar sem hann fékk tæki­færi til að aðlag­ast sam­fé­lag­inu. „Flótta­fólk sem kemur til Íslands frá Grikk­landi er í leit að öryggi, von, mannúð og aðstöðu sem það vill búa í til lengri tíma. Fólk vill vita að fram­tíð þeirra sé örugg.“

Mohammad var and­lega nið­ur­brot­inn þegar hann kom til Íslands en hér á hann góðar minn­ingar. „Íslend­ingar eru gott fólk og góð­hjart­aðir. Ég á marga vini á Íslandi og hef átt góð sam­töl um hvernig ég ætl­aði að byggja líf mitt upp þar.“

Fram­tíðin ein­kenn­ist af óvissu en Mohammad þráir að kom­ast aftur til Íslands.

„Þar leið mér vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið undanfarið ár