Seðlabankinn hækkar stýrivexti um eitt prósentustig – Hafa ekki verið hærri í fimm ár

Seðla­bank­inn hefur hækkað stýri­vexti um fjögur pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra. Hækkunin í dag mun auka greiðslu­byrði þeirra sem eru með óverð­tryggð hús­næð­is­lán umtals­vert.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands. Mynd: Seðlabanki Íslands

Pen­inga­­stefn­u­­nefnd Seðla­­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti bank­ans í 4,75 pró­­sent í morg­un. Um er að ræða hækkun upp á eitt pró­sentu­stig frá því sem áður var og alls hafa vextir hækkað um fjögur pró­­sent­u­­stig frá því í maí í fyrra, þegar vaxta­á­kvörð­un­­ar­­ferli Seðla­­banka Íslands hófst. Vextir hafa ekki verið hærri síðan í maí 2017, eða í fimm ár.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að sam­kvæmt bráða­birgða­tölum þjóð­hags­reikn­inga var nokkru meiri hag­vöxtur á fyrsta fjórð­ungi árs­ins en gert var ráð fyrir í maí­spá Pen­inga­mála. „Vís­bend­ingar eru jafn­framt um að þróttur inn­lendra umsvifa verði áfram kröft­ugur og hlut­fall fyr­ir­tækja sem segj­ast skorta starfs­fólk hefur ekki mælst hærra frá árinu 2007. Á móti vegur að vænt­ingar bæði heim­ila og fyr­ir­tækja um efna­hags­fram­vind­una hafa heldur dalað og tölu­verð óvissa er um alþjóð­legar efna­hags­horfur.“

Verð­bólga jókst í maí og mæld­ist 7,6 pró­sentu­stig. Skörp hækkun stýri­vaxta er fyrst og síð­ast til þess fallin að stemma stigu við henni. Í yfir­lýs­ing­unni segir að enn sem fyrr vegi hækkun hús­næð­is­verðs og ann­arra inn­lendra kostn­að­ar­liða þungt auk þess sem alþjóð­legt olíu- og hrá­vöru­verð hafi hækkað mikið. „Verð­hækk­anir eru á breiðum grunni og und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur auk­ist. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað á flesta mæli­kvarða og eru yfir verð­bólgu­mark­miði.“

[adspot]Í yfir­lýs­ing­unni er sterk­lega gefið til kynna að frek­ari vaxta­hækk­anir kunni að vera framundan. Þar segir að pen­inga­stefnu­nefnd telji lík­legt að herða þurfi taum­hald pen­inga­stefn­unnar enn frekar til að tryggja að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. „Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“ Þar er verið að vísa í þá stóru kjara­samn­inga­lotu sem framundan er í haust, en stjórn­völd, Seðla­banki Íslands og hags­muna­gæslu­sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa hvatt til hóf­legra krafna um launa­hækk­anir í þeim í ljósi ástands­ins.

Starfs­greina­sam­band Íslands mun kynna kröfu­gerð sína fyrir kom­andi kjara­samn­inga síðar í dag.

Aðrar aðgerðir Seðla­bank­ans hafa ekki bitið

Hækk­­andi hús­næð­is­verð er stærsti þátt­­ur­inn í þeirri stór­auknu verð­­bólgu sem mælist á Íslandi og vaxta­hækk­un­inni er ætlað að reyna að hemja. Seðla­­banki Íslands hefur reynt ýmis­­­legt til að stemma stigu við ástand­inu fyrir utan að hækka vexti skarpt, eða úr 0,75 í 4,75 pró­sent á einu ári. Það hækkar greiðslu­byrði hús­næð­is­lána gríð­ar­lega.

Dýr lán og gríð­­ar­­leg sam­keppni um allt hús­næði sem býðst til sölu gerir það að verkum að fleiri lán­takar eru að færa sig í þau lán sem bera lægstu afborg­an­irn­­ar. Það eru verð­­tryggð lán, en hin mikla verð­­bólga sem nú er gerir þau lán þó afar óhag­­stæð, enda leggst verð­­bólgan sem verð­bætur á höf­uð­stól þeirra lána.

Í sept­­em­ber í fyrra ákvað fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­­nefnd Seðla­­banka Íslands einnig að setja reglur um hámark greiðslu­­byrðar á fast­­eigna­lánum og end­­ur­vekja hinn svo­­kall­aða sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka. Áður hafði nefndin lækkað hámark veð­­­setn­ing­­­ar­hlut­­­falls fast­­­eigna­lána til neyt­enda lækkað úr 85 í 80 pró­­­sent en hámarks­­­hlut­­­fall fyrir fyrstu kaup­endur hélst óbreytt í 90 pró­­­sent.

Fyrr í þessum mán­uði ákvað fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd svo lækka hámarks veð­setn­ing­ar­hlut­fall fast­eigna­lána fyrir fyrstu kaup­endur úr 90 pró­sentum niður í 85 pró­sent. Það þýðir að fyrstu kaup­endur munu þurfa að geta reitt fram að minnsta kosti 15 pró­sent af kaup­verði eignar í útborg­un, í stað 10 pró­senta áður.

Hingað til hafa aðgerðir Seðla­banka Íslands ekki bitið þannig að þær dragi úr hækkun á hús­næð­is­verði. Í gær voru til að mynda birtar nýjar tölur frá Þjóðskrá sem sýndu að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki hækkað meira á tólf mán­aða tíma­bili síðan árið 2006. Árs­hækk­un­in, sam­kvæmt nýbirtri vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir maí­mán­uð, nemur nú 24 pró­sent­ustigum.

Telur vexti þurfa að vera hærri en verðbólga

Í pen­inga­stefnu­nefnd, sem ákveður stýri­vexti, sitja Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri sem er for­maður hennar, vara­seðla­banka­stjór­arnir Rannveig Sig­urð­ar­dóttir sem er stað­geng­ill for­manns, og Gunnar Jak­obs­son, Herdís Stein­gríms­dóttir og Gylfi Zoëga. Þau tvö síð­ast­nefndu eru ytri með­limir. Þau starfa ekki hjá Seðla­bank­anum.

[links]Gylfi, sem er hag­fræði­pró­fessor, skrif­aði grein í Vís­bend­ingu í síð­asta mán­uði þar sem hann fjall­aði um verð­bólgu og stýri­vexti. Þar sagði hann að á næstu mán­uðum verði „nauð­syn­legt að virkir vextir Seðla­bank­ans hækki nægi­lega mikið til þess að raun­vextir hans verði jákvæðir að nýju“, sem þýðir að stýri­vextir bank­ans þyrftu að verða hærri en mæld verð­bólga í land­inu. Ef það mark­mið ætti að nást núna þyrftu vext­irnir að hækka um þrjú pró­sentu­stig til við­bótar, enda verð­bólgan 7,6 pró­sent.

Í grein­inni sagði Gylfi auð­velt að benda á hvernig væri best að bregð­ast við þeim aðstæðum sem blasi við og nefndi aukið aðhald rík­is­fjár­mála, hækk­andi vexti Seðla­bank­ans og raun­vexti útlána banka og líf­eyr­is­sjóða, auk þess sem að aðilar vinnu­mark­aðar komi sér saman um hóf­legar launa­hækk­anir sem sam­ræm­ist lægri verð­bólgu.

„En hvernig er útlitið þegar þetta er skrif­að? Sumir leið­togar laun­þega hrópa hástöfum þegar vextir hækka í 3,75 pró­sent þótt raun­vextir séu nei­kvæðir og raun­virði óverð­tryggðra lána að lækka um rúm­lega 7 pró­sent á ári. Jafn­framt er ekki að heyra enn sem komið er að vilji sé til sátta á vinnu­mark­aði í haust. Á fjár­magns­hlið vinnu­mark­að­ar­ins er heldur ekki að heyra sátta­tón. Eig­endur margra stórra skráðra fyr­ir­tækja greiða sér millj­arða í arð. Mörg þess­ara fyr­ir­tækja starfa við skil­yrði fákeppni í krónu­hag­kerf­inu þar sem hagn­aður stafar ekki að fullu af því að stjórn­endur hafi tekið áhættu í ákvörð­unum eða komið með nýj­ungar í rekstri, svo vægt sé til orða tek­ið. Fréttir ber­ast einnig af háum launa­greiðslum stjórn­enda margra af þessum fyr­ir­tækj­um. Þótt þessar launa­greiðslur skipti litlu máli í þjóð­hags­legu sam­hengi þá gefa þær tón­inn fyrir hinn almenna vinnu­mark­að.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár