Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu ekki verið meiri frá 2006

Samkvæmt vísi­tölu hús­næð­is­verðs fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið hefur íbúða­verð nú hækkað um 24 pró­sent á síð­ustu 12 mán­uðum. Árs­hækk­unin er nú orðin meiri en hún var nokkru sinni á hækk­ana­skeið­inu á árunum 2016-17.

Sérbýliseignir hafa hækkað um 25,5 prósent á síðustu 12 mánuðum, en íbúðir í fjölbýli um 23,7 prósent.
Sér­býl­is­eignir hafa hækkað um 25,5 pró­sent á síð­ustu 12 mán­uðum, en íbúðir í fjöl­býli um 23,7 pró­sent. Mynd: Mynd: Pexels

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki hækkað meira á 12 mán­aða tíma­bili síðan árið 2006. Árs­hækk­unin, sam­kvæmt nýbirtri vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir maí­mánuð, nemur nú 24 pró­sentum.

Vísi­talan hækkar um 3 pró­sent á milli mán­aða og hefur hækkað um 9,1 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum og 15,7 pró­sent á síð­ustu sex mán­uðum, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef Þjóð­skrár.

Á síð­ustu 12 mán­uðum hafa sér­býli hækkað meira en íbúðir í fjöl­býli, en hækkun sér­býla nemur 25,5 pró­sentum og á meðan að eignir fjöl­býli hafa hækkað um 23,7 pró­sent að með­al­tali.

Hækkunartakturinn orðinn meiri en árin 2016-17

Sem áður segir þarf nú að fara aftur til árs­ins 2006 til þess að finna við­líka hækk­anir íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á 12 mán­aða tíma­bili, en þá var að ganga niður sú mikla bylgja verð­hækk­ana á mark­aði sem átti sér stað á árunum 2005 og 2006.

Árs­hækk­unin er nú orðin meiri en hún var á hæsta punkti verð­hækk­ana­bylgj­unnar sem átti sér stað á árunum 2016 og 2017, en í maí 2017 hafði íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 23,5 pró­sent á 12 mán­aða tíma­bili.

Enn bjartsýn á að markaðurinn róist um mitt árið

Greining Íslands­banka telur for­sendur fyrir því að íbúða­verði haldi áfram að hækka á allra næstu mán­uðum, sam­kvæmt því sem fram kemur í umfjöllun Bergþóru Bald­urs­dóttur hag­fræð­ings um þróun hús­næð­is­verðs, sem birt­ist á vef bank­ans í dag.

Í umfjöll­un­inni segir að „von­andi“ verði fram­boð nýrra íbúða auk dvín­andi eft­ir­spurnar „nóg til að hægja á verð­hækk­unum síðar á þessu ári“. Greining Íslands­banka spáði því í þjóð­hags­spá sinni í maí að hægja myndi á hækk­un­ar­takt­inum þegar liði á árið og að um mitt ár yrði komin ró á mark­að­inn.

„Við erum enn bjart­sýn að það verði nið­ur­staðan,“ segir í grein­ing­unni.[links]

Þar er einnig fjallað um vænt áhrif aðgerða Seðla­banka Íslands á hús­næð­is­mark­að­inn, en eins og greint var frá í síð­ustu viku hefur lána­stofn­unum verið bannað að lána fyrstu kaup­endum meira en 85 pró­sent af kaup­verði eigna og auk þess hefur verið hert að greiðslu­byrð­ar­hlut­falli, sem þýðir að erf­ið­ara verður fyrir fólk að kom­ast í gegnum greiðslu­mat.

„Þetta mun vænt­an­lega hafa þau áhrif að eft­ir­spurn dvíni en hve mikið er stóra spurn­ingin,“ segir í grein­ing­unni frá Íslands­banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár