Fyrstu kaupendur þurfa nú að reiða fram að minnsta kosti 15 prósent kaupverðs

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans hefur ákveðið að ein­ungis megi lána fyrstu kaup­endum fyrir 85 pró­sentum af kaup­verði fast­eignar, í stað 90 pró­senta áður.

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands. Frá vinstri: Guðrún Þorleifsdóttir, Rannveig Sigurðardóttir, Axel Hall, Ásgeir Jónsson formaður, Bryndís Ásbjarnardóttir, Guðmundur Kr. Tómasson, Unnur Gunnarsdóttir og Gunnar Jakobsson.
Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands. Frá vinstri: Guðrún Þor­leifs­dóttir, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, Axel Hall, Ásgeir Jónsson for­maður, Bryndís Ásbjarn­ar­dóttir, Guð­mundur Kr. Tómasson, Unnur Gunn­ars­dóttir og Gunnar Jak­obs­son. Mynd: Seðlabanki Íslands

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans hefur ákveðið að lækka hámarks veð­setn­ing­ar­hlut­fall fast­eigna­lána fyrir fyrstu kaup­endur úr 90 pró­sentum niður í 85 pró­sent, en hámarks­veð­setn­ing­ar­hlut­fall ann­arra kaup­enda verður áfram 80 pró­sent. Það þýðir að fyrstu kaup­endur munu þurfa að geta reitt fram að minnsta kosti 15 pró­sent af kaup­verði eignar í útborgun, í stað 10 pró­senta áður.

Þetta segir fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd að sé gert til þess að „gæta að við­náms­þrótti lán­tak­enda og lán­veit­enda“ í ljósi þess að fast­eigna­verð hefur áfram hækkað á þessu ári, umfram lang­tíma­þætti á borð við launa­þróun, bygg­ing­ar­kostnað og leigu­verð.

„Við teljum að það sé ekki heppi­legt að fyrstu kaup­endur komi inn með 90 pró­senta lánum, þess vegna erum við að gera þetta,“ sagði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri á kynn­ing­ar­fundi fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar, sem hófst kl. 9:30.

Setur viðmið um vexti við útreikning greiðslubyrðar

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndin setur einnig fram við­mið um vexti við útreikn­ing greiðslu­byrðar í reglum sínum um hámark greiðslu­byrðar fast­eigna­lána til neyt­enda. Vext­irnir sem lán­veit­endum er gert að horfa til verða nú að lág­marki 3 pró­sent fyrir verð­tryggð lán og 5,5 pró­sent fyrir óverð­tryggð íbúða­lán.

„Auk­in­heldur hefur nefndin ákveðið að stytta hámarks­láns­tíma við útreikn­ing greiðslu­byrðar fyrir verð­tryggð lán og miða þar við 25 ár. Breyt­ingum á greiðslu­byrð­ar­hlut­falli er ætlað að efla áhættu­vit­und lán­tak­enda við val þeirra milli láns­forma en greiðslu­byrði verð­tryggðra lána er hlut­falls­lega létt­ari í upp­hafi en þyngri eftir því sem líður á láns­tím­ann. Markmið fram­an­greindra aðgerða er að tak­marka upp­söfnun kerf­is­á­hættu í fjár­mála­kerf­inu,“ segir í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar, sem birt var í morgun.

[adspot]

Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar segir að við­náms­þróttur kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna sé mik­ill og að eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða þeirra sé vel yfir lög­bundnum mörkum. Nefndin segir að gæta þurfi þess að að vax­andi efna­hags­um­svifum fylgi ekki „yfir­drifin áhættu­sækni og óhóf­legur vöxtur útlána sem gæti veikt við­náms­þrótt fjár­mála­kerf­is­ins“. Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd nefnir einnig að ef bakslag verði í alþjóð­legum efna­hags­bata gæti það haft áhrif á fjár­mála­stöð­ug­leika hér­lendis.

Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar segir einnig frá því að hún hefur ákveðið að halda sveiflu­jöfn­un­ar­auk­anum óbreyttum, en áður hafði nefndin ákveðið í sept­em­ber í fyrra að hækka auk­ann úr 0 pró­sent upp í 2 pró­sent í sept­em­ber á þessu ári. Sú tíma­lína stendur óhögguð.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd áréttar svo í yfir­lýs­ingu sinni mik­il­vægi þess að „auka öryggi í inn­lendri greiðslu­miðlun og hraða inn­leið­ingu óháðrar smá­greiðslu­lausnar“ og seg­ist áfram munu beita þeim stýri­tækjum sem hún hafi yfir að ráða til að varð­veita fjár­mála­stöð­ug­leika, „þannig að fjár­mála­kerfið geti stað­ist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með við­hlít­andi hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár