Telur nauðsynlegt að vextir Seðlabankans verði hærri en verðbólgan á næstu mánuðum

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði og nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, segir í grein í Vís­bend­ingu að það sé nauð­syn­legt að raun­vextir á Íslandi verði jákvæðir á næstu mán­uðum. Hann segir einnig að nú sé tími til sátta á vinnu­mark­aði.

Gylfi Zoega prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoega pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor og ytri með­limur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, segir að á næstu mán­uðum sé „nauð­syn­legt að virkir vextir Seðla­bank­ans hækki nægi­lega mikið til þess að raun­vextir hans verði jákvæðir að nýju“, sem þýðir að stýri­vextir bank­ans þyrftu að verða hærri en mæld verð­bólga í land­inu.

Eftir síð­ustu vaxta­hækkun eru vextir Seðla­bank­ans 3,75 pró­sent en verð­bólga 7,2 pró­sent, sam­kvæmt nýj­ustu mæl­ingu Hag­stof­unnar. „Það hversu mikið nafn­vextir munu þurfa að hækka fer þá eftir þróun verð­bólgu,“ skrifar Gylfi í grein sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Þar gerir pró­fess­or­inn hag­stjórn eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn að umtals­efni og ræðir einnig um kom­andi kjara­samn­inga­gerð. Varðandi kjara­samn­ing­ana segir Gylfi að mik­il­vægt sé að aðilar vinnu­mark­aðs sýni ábyrgð „með því að taka þjóð­hags­legar afleið­ingar kjara­samn­inga til greina við gerð þeirra.“

„Á vinnu­mark­aði er samið um skipt­ingu þjóð­ar­tekna á milli fjár­magns og launa. Ósætti leiðir þá til ófriðar sem yfir­leitt endar í því að laun hækka meira en fram­leiðni sem síðan veltur út í verð­lag. Auðvelt er að benda laun­þega­hreyf­ing­unni á að stilla kaup­kröfum í hóf en einnig verður að gera þær vænt­ingar til eig­enda fjár­magns að stilla eigin vænt­ingum í hóf,“ skrifar Gylfi.

„Nú er tími til að sættast!“

Hann segir auð­velt að benda á hvernig væri best að bregð­ast við þeim aðstæðum sem nú blasa við og nefnir aukið aðhald rík­is­fjár­mála, hækk­andi vexti Seðla­bank­ans og raun­vexti útlána banka og líf­eyr­is­sjóða, auk þess sem að aðilar vinnu­mark­aðar komi sér saman um hóf­legar launa­hækk­anir sem sam­ræm­ist lægri verð­bólgu.

„En hvernig er útlitið þegar þetta er skrifað? Sumir leið­togar laun­þega hrópa hástöfum þegar vextir hækka í 3,75% þótt raun­vextir séu nei­kvæðir og raun­virði óverð­tryggðra lána að lækka um rúm­lega 7% á ári. Jafn­framt er ekki að heyra enn sem komið er að vilji sé til sátta á vinnu­mark­aði í haust. Á fjár­magns­hlið vinnu­mark­að­ar­ins er heldur ekki að heyra sátta­tón. Eigendur margra stórra skráðra fyr­ir­tækja greiða sér millj­arða í arð. Mörg þess­ara fyr­ir­tækja starfa við skil­yrði fákeppni í krónu­hag­kerf­inu þar sem hagn­aður stafar ekki að fullu af því að stjórn­endur hafi tekið áhættu í ákvörð­unum eða komið með nýj­ungar í rekstri, svo vægt sé til orða tekið. Fréttir ber­ast einnig af háum launa­greiðslum stjórn­enda margra af þessum fyr­ir­tækjum. Þótt þessar launa­greiðslur skipti litlu máli í þjóð­hags­legu sam­hengi þá gefa þær tón­inn fyrir hinn almenna vinnu­markað,“ skrifar Gylfi.

[adspot]

Hann bætir því við að skortur á sam­stöðu og sam­hæf­ingu pen­inga­stefnu og rík­is­fjár­mála myndi lík­lega hafa í för með sér að vextir seðla­banka verði að hækka meira en ann­ars væri nauð­syn­legt á þessu ári og því næsta. „Ófriður á vinnu­mark­aði og miklar launa­hækk­anir myndi kalla á enn meiri vaxta­hækk­anir. Nú er tími til að sætt­ast!“ skrifar Gylfi.

Í grein­inni segir hann að verð­bólga gæti enn hækkað á næst­unni og að þau sem eldri eru geti auð­veld­lega gert sér í hug­ar­lund hvernig mál gætu þró­ast á nei­kvæðan hátt næstu miss­eri.

„Hækkandi verð­bólgu­vænt­ingar gætu valdið því að kraf­ist verði hærri launa í haust til þess að bæta launa­fólki upp bæði verð­bólgu þessa árs og vænt­an­lega verð­bólgu á næsta ári. Þessar launa­hækk­anir fara síðan út í verð­lag sem kallar á enn aðrar launa­hækk­anir. Slík víxl­verkun launa og verð­lags getur varað í áraraðir. Þegar svo seðla­bankar reyna ná tökum á verð­bólg­unni þá krefst slíkt atvinnu­leysis með til­heyr­andi hörm­ungum fyrir þá sem fyrir því verða,“ skrifar Gylfi.

Hann fjallar einnig um verð­bólgu og vexti í öðrum ríkjum og nefnir sér­stak­lega að þrátt fyrir vax­andi verð­bólgu séu seðla­banka­vextir enn lágir í Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi.

„Allar líkur eru á því að vaxta­hækk­anir hafi byrjað of seint og verið of litlar í þessum löndum sem síðan kallar á hærri vexti og meiri sam­drátt á næstu árum. Mistökin frá átt­unda ára­tugnum hafa þá verið end­ur­tekin,“ skrifar Gylfi.

Hægt er að lesa grein Gylfa Zoega í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár